Heima er bezt - 01.04.1962, Side 19
AÐEINS
Kr. 95.oo
til áskrifenda
„Heima er bezt“.
Bókhlöðuverð kr. 135.00
F öras vemninn
eftir Mika Waltari
(Fyrra bindi.)
Hver sem grípur þessa bók til lestrar, verð-
ur að vera við því búinn, að hann leggi hana
ekki frá sér aftur fyrr en hann hefur lesið
hana spjaldanna á milli, svo spennandi er
hún frá upphafi til enda. Höfundur Iienn-
ar, MIKA WALTARI, er nefnilega einn
hinna fáu stórbrotnu frásagnameistara nú-
tímans, sem er sú list lagin, að vekja til lífs-
ins liðnar kynslóðir, og leiða löngu horfna
tíma fyrir sjónir lesandans, með litauðgi
þeirra, hóflausu skrauti, ofsa og ástríðum.
Lesandinn fer, ef svo mætti segja, í ham
söguhetjanna, lifir sjálfur lí£i þeirra, flæk-
ist í vélabrögð þeirra, situr með þeim að
sumbli í veizluskálum og veitingakrám, og
er með í ævintýmm |)eirra og hrekkjabrögð-
um.
Söguleg skálclsaga
eftir Iiöíuncl
EGYPTANS
r
I
FÖRUSVEININUM vekur Waltari upp
16. öldina. Söguhetjan er ungur, finnsk-
ur menntamaður, Mikael að nafni.Hann
segir söguna sjálfur, eftir að hafa komizt
óskaddaður gegnum furðulegustu ævintýri.
Meginþráður sögunnar er, að Mikael og Antti,
bróðir hans, sem er tröll að burðum en gáfnatregur,
sigla frá Feneyjum í pílagrímsfor áleiðis til Lands-
ins helga árið 1527. Á skipinu er ung hefðarmær,
Júlía að nafni. Hún hylur andlit sitt með blæju,
því að augu hennar eru mislit, annað blátt en hitt
brúnt. En á þeim tímum drottnaði sú hjátrú, að
slíkum afbrigðilegum augnalit fylgdi bölvun, og
hættulegt væri að verða fyrir augnaráði þeirra, sem
þannig væru eygðir, en Júlía var einnig gædd þeirri
gáfu að sjá fyrir óorðna hluti. Mikael varð það á að
lyfta blæjunni frá andliti hennar og varð samstundis
hrifinn af fegurð hennar og yndisþokka.
En skipið lendir í höndum serkneskra sjóræn-
ingja. Mikael, Antti og Júlía eru tekin höndum og
seld í ánauð. Síðar lenda þau í þjónustu Sólimans
soldáns hins mikla í Miklagarði. Taka þau þátt í og
fylgjast með ofbeldisverkum hans og afrekum. Hin-
ir stórfelldu, sannsögulegu viðburðir, sem sagan
skýrir frá, gera auðæfi, grimmd, losta, vélabrögð og
óhóf yfirstéttanna í Tyrkjaveldi hinu forna ennþá
stórfelldari.
Mikael og Antti taka þátt í frelsun Algeirsborgar,
umsátrunum um Budapest og Vínarborg, og þeir
verða vitni að morði vinar þeirra, Ibrahims stór-
vesírs, sem geldingar soldáns hengja að boði hans.
Mikael kvænist Júlíu, sem er spillingin holdi
klædd, lostafull, ótrú og öfundssjúk, eða í senn dá-
samlega fögur og ægilegt skass. Atburðir þeir, sem
gerast þegar hún verður aðili að vélræðum þeim,
sem brugguð eru í höll drottningar soldáns í Mikla-
garði, eru samtímis hroðalegir og gæddir skáldlegu