Heima er bezt - 01.04.1962, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.04.1962, Blaðsíða 21
Hér sjáum við rithöfund- inn Mika Waltari i bóka- herbergi á heimili sínu i Helsingfors. Bak við hann sést á tvö málverka úr safni hans af nútíma lista- verkum, en i efstu hillu bókaskápsins, sem hann stendur við, eru eingöngu sýnishorn af hinum ýrnsu útgáfum skáldsögunnar „Egyptinn", sem gefin hefir verið út á fjölda tungumála viða um heim og alls staðar náð miklum vinsœldum, eins og raun- ar margar fleiri sögulegar skáldsögur, sem þessi mik- ilvirki rithöfundur hefir samið á undanförnum árum. að ákveða röð keppendanna, þegar tröllaukinn svartur ná- ungi birtist þar, og fylgdi honum hópur hermanna. Hann þandi út brjóstið, barði á það með hnýttum hnefum og æpti: „Iskander, Iskander! Komdu og láttu mig rífa af þér eyrun! Því næst skal ég afgreiða Antar, sem nú er á hvers manns vörum." Glímumennirnir urðu hálf-ókvæða við og sögðu í hljóði við Antta: „Þetta er glímumeistari Selims ben-Hafss. Reittu hann ekki til reiði. Lofaðu honum að vinna og hirða pen- ingana, því að þá lætur hann okkur sennilega í friði og gerir okkur engan óskunda. En ef þú vinnur, þá verður þú kvaddur til soldánsins og látinn glíma fyrir hann. Og þó að þú sigrir í fyrstu alla glímumenn hans, þá mun sá dagur samt koma, að þú liggir í sandinum hálsbrotinn." Antti svaraði hlýlega: „Trú ykkar virðist veik. Þið gleymið, að Allah hefur ákveðið alla hluti fyrirfram. Farðu, Iskander, og láttu hann sigra þig. A eftir skal ég svo jafna um hann, og þið skuluð fá að sjá glímu slíka, að þið liafið aldrei áður þvílíka séð. Sé það vilji Allahs, verður þessi glíma mín síðasta hér á kauptorginu; þar á eftir mun ég glíma fyrir soldán- inum og hirð hans.“ Við þessi orð komst mikið rót á forstöðumennina, og gull- og silfurpeningum tók að rigna niður á klæðið. Hermenn- irnir tóku sér stöðu í hring umhveris og vörnuðu áhorfend- unum að komast að, en glímumeistarinn, ljótur og gljáandi af olíu, hoppaði aftur og fram innan í hringnum og grenjaði áskoranir sínar. Iskander gaf sig fram og særði hann við nafn Allahs að brjóta ekki reglur „meinlausrar glímu“, en ekki leið á löngu, þangað til hann hófst á loft upp og kom niður með miklum hlunk. Hann lá stynjandi um hríð og þuklaði um arma sér og fætur, en ég held, að þetta hafi mest verið látalæti og hann hafi lítið meiðzt. Tveir aðrir gáfu sig fram, og glímukóngurinn felldi þá fyrirhafnarlítið. En við þessi átök mæddist hann samt lítið eitt og svitnaði, svo að honum jjótti ráðlegra að þreyta sig ekki of mikið og kallaði: „Hvað er orðið af þessum Antar? Hann er maðurinn, sem ég kom til að finna, og ég get ekki beðið eftir honum allan daginn. Haðið bíður mín.“ Antti skeytti ekki aðvörunum hinna og gaf sig óðara fram. Það var greinilegt, að Surtur hafði nokkurn ótta af honum, því að hann hringsólaði varúðarlega nokkrum sinnum kring- um hann og setti svo allt í einu hausinn undir sig og renndi á hann eins og naut. En Antti veik sér fimlega undan, náði heljartaki utan um hann og kastaði honum hátt í loft upp. En Surtur var enginn viðvaningur og kom standandi niður, og Antti þá ekki seinn á sér og kom nú á hann bragði, svo að Surtur féll og Antti á hann ofan. Antti náði taki á háls- inum á honum og þrýsti hausnum niður í sandinn, og ef til vill hefði hann hálsbrotið hann þarna — ef Surti hefði ekki tekizt að læsa tönnunum í kálfann á honum, og varð Antti þá að sleppa tökunum af sársauka. Og svo veltust þeir þarna hvor um annan, og veitti ýmsum betur, — og aldrei hef ég séð önnur eins áflog — þangað til loksins að þeir slepptu tökurn. Glímukóngurinn hafði sýnilega fengið sig fullsaddan. Hann gekk upp og ofan af mæði, armarnir héngu máttlausir niður með síðunum og hann spýtti blóði. En hann reyndi samt að bera sig mannalega og sagði: „Þú ert ekki lakari en af þér er látið, Antar. En ég hef engan rétt til að hætta mér í fjar- veru húsbónda míns, soldánsins. Og þess vegna skulum við halda áfram á morgun, að soldáninum ásjáandi. Ég efast ekki um, að hann muni launa sigurvegaranum ríkulega." Fyllið út pöntunarseðilinn og sendið hann til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri. Pantanir verða afgreiddar rnn hæl í þeirri röð sem þær ber- ast á meðan upplag endist. GILDIR AÐEINS FYRIR ÁSKRIFENDUR „HEIMA ER BEZT“ Eg undirrit......sem er áskrifandi að tímaritinu „Heima er bezt“, óska hér með eftir að mér verði send bókin FÖRUSVEINNINN, I. eftir Mika Waltari með 40 króna afslætti frá útsöluverði. □ Hjálagt sendi ég Heima er bezt andvirði bókarinnar, kr. 95.00, og fæ þá bókina senda burðargjaldsfrítt. □ Sendið mér bókina í póstkröfu, og inun ég greiða andvirðið við móttöku póstkröfugjalds. Nafn :iO :'S, :.&• Q Merkið við þann reit, sem við á. Skrifið greinilega.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.