Heima er bezt - 01.04.1962, Side 25

Heima er bezt - 01.04.1962, Side 25
þegar hafísinn væri, en Jói taldi að þetta væri mest sagt til að hræða þá frá ísnum, en þó var það svo, sagði Jói, að amma hans mundi eftir því, að bjarndýr kom með ísnum, og það hafði etið heila kind áður en það var skotið, „og amma skrökvar ekki,“ bætti hann við með alvöruþunga. Það var svo sunnudag einn á Þorranum, er hafísinn hafði verið landfastur í viku, — nokkuð frost var, en veður kyrrt, — að þeir leikfélagarnir, sem að framan getur, fóru allir á skauta eftir hádegið, nokkuð langt frá bænum, en þeim var harðbannað að fara nokkuð niður í fjöru. Þeir voru vel búnir drengirnir, því að nokkurt frost var. Pétur var í rauðu peysunni sinni, sem hann fékk í jólagjöf, og var hann mjög montinn af peysunni, því að hinir strákarnir áttu ekki litaðar peysur. Eftir að hafa rennt sér nokkra stund á skautunum, kom Pétur að máli við Jóa, og spurði, hvort þeir ættu ekki að skreppa niður í fjöru og leika sér milli hafís- jakanna, og líka væri gaman að skoða ísinn. Nú væri komið nálægt fjöru, svo að þetta væri ágætur tími. Jói tók þessu fyrst heldur fálega, en lofaði þó að koma með, ef hann endilega vildi fara. „Má e líka?u sagði Bjössi litli, sem var smámæltur og heldur kjarklítill. „Ef þú blaðrar því ekki í alla,“ sagði Pétur. „Engum segja nema mömmu,“ svaraði Bjössi, og byrjaði að leysa af sér skautana, sem voru úr tré með járnteinum neðan í. „Mömmu,“ tók Pétur upp eftir honum. Hann þreif í öxlina á Bjössa um leið og hann sagði: „Ef þú segir nokkrum lifandi manni frá þessu, þá flengjum við Jói þig og látum svo bjarndýrn éta þig. — Ætlarðu að muna það?“ „Já, já,“ kjökraði Bjössi. — Pétur var sterkur. Það vissi Bjössi vel, og þorði hann því ekki annað en segja já við öllu, sem Pétur sagði. Drengirnir hlupu svo allir niður í fjöruna, án þess eftir þeim væri tekið. Það var sannarlega sitt hvað að skoða fyrir drengina þarna í fjörunni. Jakarnir höfðu ýmiss konar lögun, og mynduðu alls konar ísgerfinga, — mjög furðulega, sem hugmyndaflug drengjanna skýrði út jafnharðan. Flestir jakanna voru það þykkir, að þeir voru hærri en allir drengirnir samanlagðir, og alls staðar á milli jakanna blöstu við blágræn, lokkandi göngin inn í þennan furðuheim. Sandurinn í fjörunni var freðinn, svo að gott var að ganga þarna inn á milli jakanna, enda var ekki langt þangað til að Pétur fór að fara í könnunarferðir inn á milli þeirra, og kom hróðugur út aftur með þær fréttir, að engin hætta væri á að villast, svo að Jói réðst þá einnig til inn- göngu, en annar hvor þeirra, varð þó alltaf að leiða Bjössa. Hann var svo hræddur við bjarndýrin. Innan skamms voru drengirnir komnir í feluleik, alls óhræddir og fannst þetta mjög gaman. Pétur og Jói földu sig til skiptis, en Bjössi var með þeim, sem leitaði. Á meðan sveikst tíminn frá drengjunum, og áð- ur en þeir vissu af, var farið að bregða birtu, en þeir -héldu áfram leiknum áhyggjulausir og ánægðir. Smalinn, sem stóð hjá fénu, fór nú að hugsa til heim- ferðar, svo að hann hefði skímu heim með féð, er það rynni meðfram fjörunni. Hann gaf stóra smalahund- inum sínum, sem hét Kátur, merki um að fara í kring- um féð, og halda heim á leið, en Kátur lýsti ánægju sinni yfir því, með því að dilla skottinu og horfa vina- lega á húsbónda sinn, og svo skokkaði hann af stað. Drengirnir voru líka farnir að tala um heimferð. Jói ætlaði þó að fela sig einu sinni enn. Pétri hafði alltaf gengið svo vel að finna hann, en nú ætlaði hann að vera reglulega kaldnr og fara langt inn í ísinn. Hann smeygði sér fram hjá hverjum jakanum af öðrum, þar til að fyrir honum varð pollur. Jói vildi ekki væta sig í fæturna, svo að hann fór til baka. Varð þá enn fyrir honum pollur. Hann tók því einn krókinn enn, til að komast á þurrt, og þar hafði hann ekki komið áður, því að þar var spýtukubbur freðinn inn í jakann. „Ágætt efni í skútu,“ hugsaði Jói, og fór að reyna að losa kubbinn úr jakanum með hnífnum sínum. Var hann að fást við þetta nokkra stund, en mundi þá eftir því, að hann hafði aldrei hóað, til merkis um að Pétur mætti fara að leita, svo að hann fór að hóa, en fékk ekkert svar. Það fannst honum grunsamt. Hann tok þa eftir því, að tekið var að skyggja, svo að að honum læddist beygur um að svo gæti farið, að hann rataði ekki út úr ísnum. Og þegar hann fór að athuga málið, vissi hann hreint ekkert í hvaða átt skyldi fara, og svo var eitthvað uggvekjandi við sjóinn, sem þokaðist hljóðlaust inn á milli jakanna. Þetta gerði hann óróleg- an. Sennilega var hann kominn fram að sjónum og far- ið væri að falla að. Jói reyndi þó að vera rólegur og fór enn að kalla til Péturs, að hann væri hættur að fela sig, en fékk ekkert svar frá Pétri. Hann hélt svo áfram að kalla og hlusta á víxl. Að lokum svaraði Pétur, og ætlaði Jói þá að hlaupa á móti honum, en hafði skammt farið, er fyrir honum varð sjór, sem dýpkaði óðum, svo að hann sneri við, þegar sjórinn náði honum í hné. Hann var að komast á þurrt aftur, þegar hann loks mætti Pétri, sem var þá með Bjössa á bakinu. Pétur var rennblautur í fætur og mjög alvarlegur á svipinn. Þeir fóru þangað, sem spýtan var í jakanum. Þar var þurrt og nokkuð rúmt um þá. Pétur ávítaði Jóa fyrr að fara svona langt, og svíkjast um að hóa, þegar hann var búinn að fela sig. Pétur sagðist hafa verið búinn að leita lengi, þegar hann heyrði í honum köllin, og þá hefði hann orðið að fara enn lengra inn í ísinn, og væri nú alveg villtur. Myrkrið væri að skella á og komið bunandi aðfall. Jói boraði tá hægri fótar ofan í freðinn sandinn, eins og það væri hans aðal áhugamál, en svaraði engu ávít- unum Péutrs. Það varð löng þögn. Loks hætti Jói að bora tánni í sandinn. Hann leit beint á Pétur og spurði: „Getum við ekki reynt að standa hvor upp á öðrum, og komizt þannig upp á einhvern jakann?“ En nú var Heima er bezt 129

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.