Heima er bezt - 01.04.1962, Page 31

Heima er bezt - 01.04.1962, Page 31
rétt fyrir sér. Þyrfti hún að standa upp, fylgdu henni áttatíu árvökur augu, sem mældu hana út frá hvirfli til ilja. Það leyndi sér ekki, að vöxtur hennar var að breyt- ast. Jafnvel verkstjórinn varð kuldalegri í viðmóti. Hún var ung og lagleg, og hann hafði aldrei haft neitt á nióti fallegum stúlkum, en þegar þær voru svona á sig komnar, féll af þeim mesti glansinn, og hann varð jafn súr sem hann áður hafði verið sætur við hana. Strax eftir fyrstu útborgun fékk hún sér kápu, og þá voru peningarnir búnir. Ingunn var henni svo góð, sem bezt varð á kosið, en Ásta átti ákaflega bágt með að þiggja peninga af henni. Ingunn vissi ekki, hvernig hún ætti að koma henni í skilning um, að hún hefði eins mikla ánægju af að hjálpa henni, og þótt hún hefði verið hennar eigin dóttir. V. Óvæntm fundur — Karlsen sat í ldefa sínum og las, þegar Ponni kom og tilkynnti honum, að maður væri kominn um borð, sem vildi tala við hann. „Láttu hann koma hingað inn,“ sagði Karlsen. Það gekk hægt eins og venjulega að fá afgreiðslu hér á Lágeyri. Skeggjaðir karlarnir fóru sér ekki að neinu óðslega. Nú var sunnudagur, og hátt kaup, svo að þeim fannst ekld nema sjálfsagt að reyna að hafa eins mildð og hægt væri upp úr blessuðum deginum, ekki væri af- koman svo beysin hjá þeim, verkamönnunum. Góð stund leið. Karlsen hélt áfram að lesa og hafði nærri gleymt, að hann ætti von á gesti, þegar drepið var á dyr. Karlsen stóð upp og opnaði hurðina. Frammi á gang- inum stóð aldraður maður, grár fyrir hærum, með hvöss, athugul augu, sem virtust þó þess albúin að hverfa undir þung augnalokin, væri í þau litið. Andlit mannsins var mjög rautt, og hann var móður, enda vel í hold kominn. Hendurnar hvítar og vel hirtar, með gullhring á, leituðu í ákafa í öllum vösum eftir klút til að þerra svitann, sem spratt fram á enni mannsins. Þeir sögðu til nafns 'og virtu hvor annan fyrir sér eins og glímumenn, sem vega og meta styrkleika hvors annars. „Hvað skyldi höfðinginn Sigurður Hansen vilja mér?“ hugsaði Karlsen. Hann bauð kaupmanninum sæti, en það þáði hann ekki, heldur ræskti sig og hummaði nokkrum sinnum. „Hvar í fjandanum hef ég séð þetta andlit áður?“ hugsaði hann og hnyklaði brýnnar loðnar og rniklar. Svo hvessti hann augun á Karlsen. „Mér var ráðlagt að spyrja þig um, hvert farið hcfði Ásta Bjarnadóttir, sem kom hér um borð í síðustu ferð norður.“ „Nú, ekki hef ég fengið nein fyrirmæli um að fylgj- ast með farþegunum, hvorki þeim sem koma hér frá Lágeyri eða öðrum stöðum,“ svaraði Karlsen og leit ekki undan rannsakandi augnaráði kaupmannsins. „Mér hefur verið sagt, að hún hafi haldið til í klefa þínum á Ieiðinni,“ sagði Sigurður. „Hver segir það?“ spurði Karlsen og pírði augun- um, það var farið að síga í hann. „Ég hef það eftir brytanum, að hún hafi sofið hjá þér allar nætur.“ „Hvers vegna er þér svo annt um að vita, hvert þessi stúlka hefur farið, er hún þér eitthvað nákomin?“ spurði Karlsen. Sigurður horfði fram hjá Karlsen út um ljórann. „Já,“ sagði hann svo, „hún er mér nákomin.“ „Þá get ég fullvissað þig um, að hún var í betri höndum, meðan hún dvaldist á skipinu, en meðan hún var í þínum húsum. Ég skaut skjólshúsi yfir hana, þeg- ar þið höfðuð kastað henni á dyr. — Vissirðu ekki, að hún var á góðri leið með að gera þig að afa?“ Sigurður opnaði munninn nokkrum sinnum, en kom ekki upp neinu orði. „Er það satt?“ stundi hann loks upp og lét sig falla niður á stólinn, sem hann áður hafði afþakkað, og þerr- aði sér um ennið með klútnum. Karlsen hló háðslega, þegar Sigurður tautaði aftur og aftur fyrir munni sér: „Það vissi ég ekki, að hún væri að gera mig að afa.“ „Nei, það vissir þú ekki, vissirðu yfirleitt nokkuð, hvað fram fór í þínu eigin húsi síðastliðið ár?“ sagði hann. „Nei,“ svaraði Sigurður lágt. „Það er víst satt, ég vissi lítið hvað þar skeði, ég vissi ekki um, fyrr en Ásta litla var farin, en annars hefði ég víst ekki mik- ið getað gert.“ Svo brosti hann allt í einu og hélt áfram: „Nú fer ég að skilja, hvers vegna hún tætti peninga- seðlana í svo smáar agnir, áður en hún fór, að enginn treystir sér til að líma þá saman, og eru þeir þó geymd- ir enn, sneplarnir. Ég vildi að hún hefði verið dóttir mín, ég var farinn að gera mér vonir um hana sem tengdadóttur. Enginn sona minna var eins nærgætinn og hún, ég fann það bezt, eftir að hún var farin.“ „Hvaða peninga reif hún sundur?“ spurði Karlsen kíminn. „Ætli það hafi ekki verið einhver þóknun fyrir að fara, eða kannske bara kaupið, sem Margrét hefur ver- ið að borga henni fyrir öll árin, sem hún hefur þrælað hjá okkur.“ Sigurður dró upp veski sitt, tók úr því blað og penna úr vasa sínum og skrifaði dálitla stund á það, lét það síðan í umslag, ásamt búnka af seðlum, skrifaði utan á það og fékk Karlsen. „Þú kemur þessu til skila fyrir mig, stýrimaður, fyrst ég fæ ekki að vita, hvar hún er.“ „Nei, það er hennar leyndarmál, og bréfið vil ég helzt ekki færa henni, hún hefur slitið öll þau bönd, sem bundu hana við þennan stað, eða kannske væri rétt- ara að segja, að þau hafi verið slitin fyrir hana, og ég held að bezt sé, að hún fái að vera í friði, þar sem hún er,“ sagði Karlsen kuldalega og bandaði hendi við bréfinu. (Framhald). Heima er bezt 135'

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.