Heima er bezt - 01.04.1962, Side 39

Heima er bezt - 01.04.1962, Side 39
55. Nú er um að gera að vera snar í snúningum. Þegar við erum komnir inn aftur hjálpa ég gamla manninum til að ganga frá böndunum áþekkt og áður var, en vef þeim þó lauslega um hann. 56. Ég fel mig fyrir aftan gamla tjaldið og gaegist um rifu í dúknum. Fúsi flakk- ari leitar utanhúss að þessum ósýnilega fjandmanni, en árangurslaust og er því öskuvondur. 57. Loks kemst Fúsi flakkari í dyrnar, bálreiður og blótandi. Hann fer óvart til gamla mannsins og þrumar: „Hvaða bölvaður náungi er að snuðra hérna úti og inni? Svaraðu mér?“ 58. „Flýttu þér að segja satt, lagsi!“ þrumar Fúsi flakkari æstari og æstari. Hann þrífur i hálsmálið á skyrtu gamla mannsins og hristir hann og skekur og reiðir síðan stafinn sinn á loft eins og til höggs. 59. Hvað á ég að taka til bragðs? Á ég að grípa fram í? Nei, það væri fásinna. Hvað get ég gert gegn þessum heljar- karli? Mér dettur nokkuð í hug. Ryðgað- ur skrúflykill liggur á gólfinu. Ég þríf hann og þeyti honum í gegnum rúðuna. 60. Kling, klang, þar fór rúðan! Lag- lega af sér vikið! Fúsi flakkari sleppir fanga sínum og glápir steinhissa i allar áttir. „Hver fjandinn er hér á ferðinni!" öskrar hann. „Er hann þarna aftur, bölv- aður gluggagægirinn! Bíddu nú bara! 61) Fúsi flakkari heldur enn á stafnum og þýtur til dyra. Hann ætlar nú ekki að bíða boðanna með að ná í bragðarefinn! En honutn dettur ekki i hug að hann sé innanhúss. 62. Fúsi flakkari hleypur umhverfis húsið og nemur svo staðar við brotna gluggann. Allt í einu rekur hann augun í skrúflykilinn og tekur hann hann upp. „Þarna er lykillinn, sem ég fleygði!" 63. Fúsi flakkari þýtur inn aftur og rakleitt inn að forhenginu, þar sem ég ég er í felum bak við. Hann þeytir því frá og hleypur að því loknu beint á rnig.... Heima er bezt 143

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.