Heima er bezt - 01.06.1962, Blaðsíða 4
HJALTI JÓNSSON, HÓLUM:
SJÖTUGUR SÆMDARBÓNDI
Suðursveitin í Austur-Skaftafellssýslu er mjó
strandlengja milli Kolgrímuaura að austan og
Breiðamerkursands að vestan. Á aðra hönd er
hafið við hafnlausa, brimsorfna strönd, en hina
há og víða hrikaleg fjöll með Vatnajökul að baki. Aust-
urhluti sveitarinnar og í raun og veru öll sveitin er ein-
föld bæjaröð með fjöllunum, en Steinasandur og
Steinavötn slíta hana fram undan Kálfafellsdal. Voru
fyrir vestan sandinn þrjár stórjarðir: austast Breiðabóls-
staður, þá Reynivellir og vestast Fell, sem var stærsta
höfuðbólið og sýslumannssetur fram á 18. öld, en
Breiðumerkurjökull svarf svo að því, að það lagðist í
eyði, þó ekki algjörlega fyrr en á síðari hluta 19. ald-
arinnar. En þá var Fellsengið, sem orðlagt var fyrir að
vera hið bezta í sýslunni, komið undir sandlag svo þar
sást ekki stingandi strá. Tvær hjáleigur voru byggðar
úr landi Breiðabólsstaðar, einhvern tima fyrr a öldum,
en ekki eru greinilegar sagnir af þvi hvenær það var.
Þær heita Gerði og Hali.
Steinþór Þórðarson.
Hali var ein minnsta jörðin hér í Austur-Skaftafells-
sýslu og-langt frá því að geta talizt lífvænleg bújörð á
nútíðar mælikvarða. Túnið gaf af sér um 50 hesta af
töðu í meðalári og engjar rúmlega annað eins, eða inn-
an við 100 hesta. En svo mátti telja það til hlunninda,
að silungsveiði nokkur var í lóni, skammt frá bænum
og helzt hún enn við.
Árið 1887 byrjuðu ung hjón búskap á Hala. Þau
hétu Þórður Steinsson og Anna Benediktsdottir. Tóku
þau við búsforráðum af foreldrum Önnu, Benedikt
Þorleifssyni og Guðnýju Einarsdóttur. Guðný var dótt-
ir Einars bónda á Brunnum Eiríkssonar og konu hans
Valgerðar Sigurðardóttur. Benedikt faðir Önnu var
Þorleifsson, Hallssonar bónda í Hólum í Nesjum og
konu hans Önnu Eiríksdóttur Benediktssonar bónda í
Hoffelli, Bergssonar prests í Bjamanesi Guðmundsson-
ar prests á Hofi í Álftafirði Ólafssonar prests og sálma-
skálds á Sauðanesi.
Móðir Önnu Eiríksdóttur var Þómnn, kona Eiríks,
Steinunn Guðmundsdóttir, kona Steinþórs.
188 Heima er bezt