Heima er bezt - 01.06.1962, Page 5

Heima er bezt - 01.06.1962, Page 5
Efvi röð. Yzt til vinstri: Steitiþór Þórðarson og Steinunn Guð-mundsdóttir, kona hans, Steinþór Torfason, Ingibjörg Zoþh- óniasdóttir, kona Torfa, heldur á Susönnu dóitur þeirra, og Torfi Steinþórsson. Neðri röð: liörn Torfa og Ingibjargar. Yzt til vinstri: Steinunn, Fjölnir, Zoþhónias og Þórbergur. Jónsdóttir sýslumanns í Hoffelli Helgasonar bónda á Svertingsstöðum í Eyjafirði. Móðir Þorleifs í Hólum, kona Halls Þorleifssonar, var Vilborg Benediktsdóttir Bergssonar í Árnanesi, systir Eiríks í Hoffelli. Voru [)au hjón, Þorleifur og Anna, því systkinabörn. Foreldrar Þórðar á Hala voru Steinn Þórðarson bóndi á Breiðabólsstað og fyrri kona hans Lússía Þórar- insdóttir Jónssonar bónda þar. Foreldrar Steins voru Þórður bóndi Steinsson á Kálfafelli og kona hans Steinunn Jónsdóttir frá Felli. Steinn faðir Þorðar bjo a Eskey a Alýrum, en um sett hans er mér ekki kunnugt. Hef heyrt þá munnmæla- sögu, að hann hafi fæðzt undir Almannaskarði, verið lagður undir stein þar og svo gefið nafn eftir steininum. Kona Steins, móðir Þórðar, hét Dýrleif Jónsdóttir bónda á Lambleiksstöðum, Hinrikssonar bónda á Við- borði 1703 Sigurðssonar. Þau Þórður og Anna bjuggu á Hala um 28 ára bil. Þau voru alltaf fátæk, en með hagsýni og nýtni komust þau sæmilega af og ólu upp 3 sonu, sem þau eignuð- ust og orðið hafa mjög nýtir og þjóðkunnir menn. Þeir eru: Þórbergur, rithöfundur í Reykjavík, Steinþór, bóndi á Hala, og Benedikt, bóndi á Kálfafelli. Þessar línur eru helgaðar einum þeirra bræðra, Stein- þóri, í því tilefni að hann á nú sjötugsafmæli. Hann er fæddur á Hala 10. júní 1892. Hann ólst þar upp við fremur þröngan kost, en ekki skort, sem að skaða væri — og gekk að allri almennri sveitavinnu með föður sín- um strax er hann komst á legg. Virðist svo, að mörg- um unglingum hafi reynzt það giftudrjúgur skóli, til andlegs og líkamlegs þroska. Ekki gekk Steinþór á neinn skóla og ekki svo gott, að hann nyti kennslu hjá farkennara. Það var ekki fyrr en eftir að hann var kominn yfir fermingaraldur, að skipulögð farkennsla komst á í heimasveit hans, en þrátt fyrir það stendur hann jafnfætis að menntun eða framar mörgum, sem setið hafa mörg ár á skólabekkjum. Þegar Steinþór var 16 ára fór hann í vegavinnu. Var þá verið að leggja veg um Nesjasveitina fyrst og svo Heima er bezt 189

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.