Heima er bezt - 01.06.1962, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.06.1962, Qupperneq 12
BJORN JOHANNSSON, FYRRV. SKOLASTJORI: f. ornar Kafli úr endurminningum r A rið 1915 hófum við hjónin búskap á Arnórsstöð- / vi um á Jökuldal. Foreldrar mínir voru þá enn l búsett í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu, en ákveðið hafði verið, að þau flyttu austur til mín þá um vorið. Þetta vor var svo ástatt, að hafís lá fyrir öllu Norð- urlandi og var því ekki um skipaferðir að ræða, fyrr en þá einhvern tíma seint um sumarið. Akvað ég því að fara landleiðina, enda áttum við feðgarnir fjóra hesta, sem einnig þurftu að komast austur. Taldist mér til, að ferðin mundi taka þrjár vikur, ef allt gengi að óskum. Gróðurs vegna var ekki hægt að leggja upp, fyrr en komið var nokkuð fram í júní, en ekki man ég nákvæmlega, hvenær það var. Hest til fararinnar fékk ég hjá mági mínum, Þorvaldi Benediktssyni í Hjarðarhaga. Var það rauður hestur, stilltur og þægi- legur ásetu. Enginn var hann fjörhestur, enda kominn um tvítugt. Leiðina til Akureyrar hafði ég aldrei farið og gerði ekki betur, en að ég þekkti heimaland Amórsstaða. Aftur á móti hafði ég einu sinni farið úr Húnavatns- sýslu til Akureyrar og var því ekki með öllu ókunn- ugur þeirri leið. Af þessum ástæðum voru ýmsir, sem löttu mig fararinnar og töldu, að vel gæti farið svo, að ég kæmist í vandræði, þar sem ég var öllum leiðum ókunnugur. Ekki lét ég það þó á mig fá, en treysti meðfæddri ratvísi minni, enda alltaf hægt að fá leið- beiningar, ef þess skyldi þurfa. Fyrsti áfangastaðurinn var Möðrudalur á Fjöllum. Það man ég, að löng fannst mér leiðin þangað, en hún mun vera talin um 40 km. í Möðrudal bjuggu þá stór- búi Stefán Einarsson og kona hans Arnfríður Sigurð- ardóttir. Margt var þar af ungu fólki og gleðskapur mikill. Fann ég það á öllu, að hinum ungu mönnum þar var miki forvitni á að kynnast mér, sem gerzt hafði svo djarfur að ná í eina af álitlegri heimasætum sveit- arinnar. Ekki létu þeir mig þó á neinn hátt gjalda þess, en kepptust við að skemmta mér eftir því sem föng voru á. Frá Möðrudal hélt ég svo sem leið lá út Fjöllin. Svo sem mörgum mun kunnugt, er Víðidalur eini bærinn á milli Möðrudals og Grímsstaða. Þar bjuggu þá Jón Stefánsson, sonur Stefáns í Möðrudal, og kona hans Þórunn Vilhjálmsdóttir. Ég spurði Jón, hvað langt væri til Grímsstaða og kvað hann það 19 km. Ekki var að tala um annað en að ég kæmi inn og drykki kaffi, sem ég og þáði með þökkum. Var þetta fyrsta, en ekki síðasta kaffið, sem ég drakk hjá þeim ágætu hjónum. Þegar ég kom norðan til á Biskupsháls, var ég svo óheppinn að fá á mig sandbyl. Alissti ég brátt af veg- inum og þóttist nú illa staddur. Samt paufaðist ég áfram, vissi líka, að þar sem símalínan lá um Gríms- staði, gæti varla farið svo að ég fyndi ekki bæinn. Þetta fór líka betur en á horfðist, sandbylurinn minnk- aði, eftir því sem utar dró, og eftir nokkurn tíma komst ég á veginn aftur. A Grímsstöðum gisti ég um nóttina. Þeir, sem leið áttu vestur yfir öræfin, þurftu í þá daga að fá ferju yfir Jökulsá á Fjöllum. Var ferjað frá Grímsstöðum og munu hafa verið um 4 km að ferju- staðnum. Áður en síminn kom, var einnig ferjað frá Reykjahlíð, en þaðan að Jökulsá er löng leið, líklega um 36 km. Hefur það sennilega verið lengsta ferjugata á landinu. Sá, sem ferjaði mig í þetta skipti var Páll Vigfússon, síðast bóndi á Syðri-Varðgjá í Eyjafirði, en honum átti ég eftir að kynnast nánar. Jökulsá er, eins og nafna hennar á Jökuldal, hið mesta vatnsfall, og ekki held ég að Rauð gamla hafi litizt á að leggja út í hana. Ég hélt í tauminn og var hann látinn synda á eftir ferj- unni. Allt gekk þetta þó eins og í sögu, enda var ferju- maðurinn öruggur. Eftir að hafa kvatt Pál og þakkað honum góða sam- fylgd, lagði ég á þann rauða og hélt vestur á öræfin. Enginn vandi var að rata, því að vegurinn var skýr og auk þess varðaður. Fyrst í stað lá vegurinn um flatar og nokkuð grýttar melaöldur, en síðar tóku við mel- lönd og lá vegurinn þar milli hárra melgresisþúfna. Ekki hefði ég viljað fá á mig sandbyl á þessum slóð- um. Gróður og annað umhverfi breyttist eftir því, sem vestar dró á öræfin og voru þar hin ágætustu beitilönd. Þegar kom vestur undir Nýjahraun, hitti ég menn, sem voru í fjárleitum. Voru þeir flestir úr Mývatns- sveit. Einn þessara manna sagðist þó vera á leið vest- ur og gætum við því orðið samferða. Þóttu mér það góðar fréttir. Þessi maður virtist vera um þrítugt, eftir útliti að dæma, og var mjög frjálsmannlegur í fram- komu. Hann kynnti sig og kvaðst heita Árni Jakobs- 196 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.