Heima er bezt - 01.06.1962, Page 13

Heima er bezt - 01.06.1962, Page 13
son og vera frá Skógaseli, að mig minnir. Mjög var hann ræðinn og hinn skemmtilegasti. Fræddi hann mig meðal annars um nöfn á fjöllum og öðru, sem sjá mátti af veginum. Dálítið ræddum við um bókmennt- ir og virtist hann hafa ákveðnar skoðanir á þeim. Svo var t. d., er við ræddum um Jón Trausta, að mér fannst hann gera of lítið úr höfundinum og verkum hans. Rétt vestan við Námaskarð fórum við af baki og horfðum yfir Mývatn og Mývatnssveit. Þeirri sjón gleymi ég aldrei. Eyjar, nes, víkur og vogar blöstu við sjónum okkar, en umhverfis stóðu einstök fell og fjöll, sem „risar á verði“ um þessa fögru og sérkennilegu sveit. Áður en við Árni skildum við túnið í Reykjahlíð, hafði hann komið orðum heim að bænum, þar sem hann bað húsráðendur um að veita mér einhvern beina og greiða götu mína eftir föngum. Árnaði hann mér síðan allra heilla á ferðalaginu, en ég þakkaði, sem vera bar, ágæta samfylgd og fyrirgreiðslu. Þegar við Rauður höfðum hvílt okkur góða stund í Reykjahlíð, og ég þegið þar veitingar og leiðbein- ingar, héldum við aftur af stað. Þjóðleiðin lá þá norð- ur fyrir vatn og þaðan upp á Hólasand, sem er milli Mývatnssveitar og Laxárdals. Komið var ofan hjá Hól- um, en ekki gerði ég þar vart við mig, þar sem mér hafði verið bent á Þverá sem gistingarstað. Sá bær er nokkru utar í dalnum, vestan megin ár. Á Þverá bjó þá Snorri Jónsson, bróðir Benedikts á Auðnum. Hann tók mér hið bezta og taldi strax sjálf- sagt að ég yrði þar um nóttina. Þegar inn var komið, varð mér starsýnt á bókasafn bónda, sem var stærra en ég hafði þá séð á sveitabæjum. Margt var þar ágætra fræðibóka, bæði á íslenzku og útlendum málum, og benti það til þess, að eigandinn væri maður fróðleiks- fús. Þegar Snorri hafði spurt mig spjörunum úr, um mig og mitt ferðalag, beindist tal okkar inn á aðrar brautir. Ég gat meðal annars um það, hvað mér hefði fundizt einkennilegt að sjá hraunstrauminn, sem endur fyrir löngu hefði fallið niður Laxárdal og mýflugurnar, sem myndað höfðu þéttan vegg, beggja megin vaðsins. Fór Snorri þá undir eins að tala um jarðfræði og önnur náttúrufræðileg efni, og fann ég, að hann var vel heima á því sviði. Hann heyrði ég fyrst halda fram þeirri kenningu, að Ásbyrgi væri gamall farvegur Jökulsár í Axarfirði, en hefði ekki myndazt við jarðsig, eins og löngum hafði verið talið. Adinntist hann í því sambandi á þá staðreynd, að þar sem foss fellur fram af háu bergi, myndast að jafnaði dæld eða kvos, og þar sem kvos væri innst í Byrginu, benti það til þess, að þar hefði verið foss til forna. Lítið gat ég um þetta dæmt, þar sem ég hafði aldrei komið í Ásbyrgi, en glögg fundust mér rök þau, er Snorri færði máli sínu til sönn- unar. Daginn eftir, er ég fór frá Þverá, varð sonur bónda, Áskell Snorrason, síðar tónskáld, mér samferða yfir til Reykjadals. Af samtali þeirra feðga, áður en lagt var af stað, skildist mér, að hann ætlaði að stjórna kór, sem átti að syngja þar í dalnum. Var eins og gamli maðurinn væri á móti dansi í sambandi við sönginn, og heyrði ég, að Áskell sagði eitthvað á þá leið, að fólkinu væri víst ekki of gott að dansa, ef það hefði ánægju af því. Eltki man ég að segja frá samtali okkar Áskels, með- an leiðir okkar lágu saman, og nær er mér að halda að hann hafi ekki verið mjög margmáll. Við komum ofan í Reykjadal rétt hjá Stóru-Laug- um. Bæði þár og víðar í hlíðinni risu upp gufustrókar, sem sýndu glöggt, af hverju dalurinn hafði fengið nafn. Annars var ég ekkert óvanur jarðhita, því að laugar eru í Húnavatnssýslum báðum, en að þessi auð- æfi yrðu beizluð eftir tiltölulega fá ár, datt mér þá ekki í hug. Á Fljótsheiðarbrún, hinni vestari, nam ég staðar og virti fyrir mér það, sem fyrir augun bar. Beint fram- undan bar mest á Ljósavatnsskarði og glampaði á vatn- ið. Ég var að láta mér detta í hug, að þeir, sem upp- haflega gáfu vatninu nafn, hafi komið að austan, því að yfirborð þess virðist einkennilega Ijóst, ef horft er á það af Fljótsheiðarbrún. Nær mér gat að líta Goða- foss og kannaðist ég vel við hann af myndum. Bæina, sem ég sá, þekkti ég aftur á móti ekki, nema hvað ég gat mér til um Ljósavatn. Nú var heldur enginn til að leiðbeina mér. Þennan dag fór ég að Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði og gisti þar. Ekki gaf ég mér tíma til að líta á Vaglaskóg, er ég fór þar fram hjá, næsta dag, og hefði það þó verið gaman. En til þess að standast ferðaáætlunina, mátti ég ekki eyða miklum tíma í útúrdúra. Þegar ég kom á Vaðlaheiðarbrún og varð litið yfir Eyjafjörð, brá mér heldur en ekki í brún. Fjörðurinn var aílur fullur af hafís. Að vísu hafði ég heyrt áður en ég fór að heiman, að ís lægi fyrir öllu Norðurlandi, en ekki datt mér þó í hug, að hann væri svona alveg uppi í landsteinum. Stóð ég þama æði stund og starði á ísbreiðuna, því að þótt einkennilegt megi virðast, þar sem ég var alinn upp á Norðurlandi, hafði ég þó aldrei áður séð þennan „landsins forna fjanda“. Lítið stóð ég við á Akureyri, enda þekkti ég þar engan mann, svo að ég vissi. Hélt ég þaðan, sem leið liggur, að Krossastöðum á Þelamörk. Var ég þar um nóttina. Bóndinn þar, Jón Guðmundsson, tók mér ágætlega og ltvað gistingu heimila. Mjög var Jón ræðinn og kom víða við. Einkum varð honum þó tíðrætt um unga fólkið, skemmtanafýsn þess og áhugaleysi fyrir vinnunni, sem að hans dómi fór mjög í vöxt. „Það gengur allt upp í fínheitum og hégómaskap, karl minn,“ sagði hann. Þar sem ég taldi mig til unga fólksins, reyndi ég að malda í móinn og kvað hann gera of mikið úr þessu, en ekki gaf hann sig að heldur. Heima er bezt 197

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.