Heima er bezt - 01.06.1962, Side 18
Dettifoss.
mér eins konar hugaryndi á dimmum haustdögum og í
grimmum vetrarhríðum, og því hef ég rakið þessar
minningar mínar hér, að ég vildi suðla að því, að ung
og lífsglöð æska vildi safna slíkunr minningum á lífsleið-
inni frá björtum, fögrum dögurn til að orna sér við á
dimmum köldum dögum á lífsleiðinni.
í upphafi þessara hugleiðinga minntist ég líka á dýr-
mœta daga. En það hittist líka svo á, að þessir björtu,
sólríku dagar sumarið 1944, voru líka mjög dýrmætir
dagar. Hlaðafli af síld var við Norðurland og ilmandi
taðan var hirt eftir hendinni um allt land. Hver sólfag-
ur dagur færði þjóðinni milljónir.
En þegar ég minnist á milljónir, þá minnist ég þess,
hve lítil börn, og jafnvel þótt stálpuð séu, bera, sem
von er, lítið skyn á tölur og tímatal. Fyrstu árin, sem
ég kenndi, þegar'ég var milli tvítugs og þrítugs, var
ég einu sinni að segja sjö og átta ára börnum frá fundi
íslands. Þá sagði fremur vel gefinn piltur, sem hlýtt
hafði á frásögnina með mesta áhuga: „Manstu þetta,
eða heufr þú lesið um það?“ Hann gat vel hugsað sér
að ég hefði verið til, þegar ísland fannst og byggðist.
-------Eins er það með tölurnar. Þegar börn ræða
um tölur, og eru að gizka á einhverjar upphæðir, þá
hoppa þau, ef til vill í getgátum sínum í einu stökki
frá hundmðum og þúsundum upp í triljónir. En á þess-
um tölum munar meiru en börn og unglingar gera sér
grein fyrir. Ég er enginn talnafræðingur, en þegar ég
var í kennaraskólanum, þá lærði ég reikning hjá doktor
Ólafi Dan., sem var hálærður og fluggáfaður stærðfræð-
ingur. Hann hafði oft gaman að spjalla við nemend-
ur sína um tölur, utan við venjulega reikningstíma.
Hann vakti t. d. athygli okkar á því, hve triljónin væri
óskaplega há tala, og hann taldi, að yfirleitt gerðu
menn sér þess ekki grein, hve gífurlega þessi tala væri
há, þótt þeir kynnu að nefna töluna og kynnu líka að
lesa úr svo hárri talna röð. Allir unglingar vita að
milljónin byrjar á sjöunda sæti í talnaröðinni, en biljón
er milljón sinnum milljón og byrjar á þrettáanda sæti
í talnaröðinni.
Bæti maður sex núllum aftan við þessa þrettán tölu-
stafi, þar sem 13. stafurinn merkir biljón, þá eru komn-
ir nítján tölustafir en sá 19. merkir triljón. — Þetta er
auðvelt að læra og eftir þessari reglu er hægt að lesa
úr geysilega háum tölum. En það var nú triljónin, sem
doktor Ólafur Dan., vildi útskýra fyrir okkur. Hann
tók dæmi til skýringar. „Lítið út um gluggann, þegar
hellirigning er. Það myndi ekki vera auðvelt að telja
dropana.“ Síðan sagði hann okkur frá því, að hann
hefði reiknað það lauslega út, eftir veðurskýrslum, að
allur raki, sem félli á ísland á einu ári, sem regn eða
snjór, væri í dropum talinn, nálægt triljón vatnsdrop-
ar. „Á þessu getið þið séð,“ sagði doktor Ólafur og
brosti við, „að triljón er vissulega stór tala.“ Annað
dæmi sagði hann líka, sem ég held ég muni rétt, en
það var um Þingvallavatn. Flatarmál þess hefur verið
mælt og dýpið á nokkrum stöðum.
Eftir þessum tölum má áætla nokkuð nálægt réttu,
hve margir rúmmetrar af vatni eru í Þingvallavatni.
Þegar maður veit, hve rúmmetrarnir eru margir, þá er
enginn vandi að reikna út, hve margir dropar eru í
Þingvallavatni, ef það væri látið leka í gegnum venju-
legan dropateljara, eins og þegar meðul eru talin í
Séð út lir Asbyrgi. Eyjan i rniðju.
202 Heima er bezt