Heima er bezt - 01.06.1962, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.06.1962, Blaðsíða 28
EIRÍKUR SIGURBERGSSON: Eftir Eltl FJÓRÐI HLUTI „Eigum við ekki að hafa hestaskipti?“ „Jú, ef þú vilt.“ Og svo höfðu þau hestaskipti á bakkanum hinum megin við ána. Eftir það gátu þau riðið hlið við hlið og spjallað saman. Þetta var alllöng leið, en fremur greiðfarin. Þegar þau höfðu haldið um sinn meðfram fjöllunum, beygðu þau til hægri handar og héldu suður sléttlendið. Þau voru þá komin að brunanum og fylgdu vestri brún hans suður eftir. Þarna var hraunbrúnin rúmlega mann- hæð eða jafnvel tvær mannhæðir. En annars staðar var hún allmiklu lægri og sums staðar hafði hún breitt úr sér og orðið að flatri hraunhellu, sem hvarf ofan í gras- svörðinn. Landið þarna meðfram hrauninu að vestan var gras- gefið en blautt, mcstmegnis þýfðar mýrar. Þar höfðu myndazt götuslóðir, því þetta var að hálfu levti þjóð- braut, og þótti ekki verra að fara syðra eins og það var kallað, þ. e a. s. fyrir sunnan bruna, en efra, eða norðan við hann meðfram fjöllunuin, þegar farið var austur í Gnúpasveit og áfram. Þar að auki fóru þeir af Uppbæjunum hér um, er þeir voru við slátt fyrir sunnan bruna, eða þá að reka eða sækja þangað fé, fara á fjöru og þetta nokkuð. Loks voru þau kornin suður fyrir hraunbrún og beygðu austur með brunanum að sunnan. Áttu þau nú skammt eftir ófarið. Brynjólfur var farinn að líta í kringum sig og vita, hvort hann sæi ekki eitthvað af ánum sínum. Bjóst hann eins við, að þær væru nú komnar á lcið heim í átthagana. Elingað til hafði hann þó enga kindina séð. Nú inættu þau allt í einu einni ánni hennar Kristínar, mömmu lambakóngsins. En lambið sáu þau hvergi. Þetta fannst þeim bæði kvnlegt og ískyggilegt. Ærin jarmaði við og við og reif í sig á milli. Það leit út fyrir, að hún væri búin að týna lambinu, og væri jafnvel búin að leita að því alllengi og ekki gefið sér tíma til að bíta. Reyndu þau að snúa ánni við og tókst það. Ráku þau hana austur að vað- inu á Eldánni og yfir hana. Sáu þau nú mestan hluta ánna þar suður í mýrunum og hljóp ærin þangað jarm- andi. „Kannske lambið sé þar,“ sagði Brynjólfur, og riðu þau þangað fram eftir. En lambið var ekki þar. Sneru þau þá við og héldu nú heim að Bökkunum. Námu þau staðar áður en þau fóru heim að bænum og horfðu í allar áttir, ef vera mætti, að þau sæu eitthvað til lambs- ins. Allt í einu heyrðu þau hrafn krunka fyrir ofan ána, rétt ofan við vaðið. Þau litu hvort á annað og riðu þegjandi upp fyrir á, og stefndu þangað, sem hrafninn var. Þegar þau áttu skammt þangað ófarið, flaug hrafninn 'upp og hvarf upp í brunann. Þau riðu nú þangað, sem hrafninn hafði setið. Þau sáu ekkert at- hyglisvert fyrr en þau voru komin fast að hraunbrún- inni. Þar var djúp skora og þar fundu þau lambið af- velta. Hafði það skorðazt svo rækilega, að það hafði ekki getað losað sig. Þau fóru af baki og ætluðu að ná því upp. Þau lutu niður að því og toguðu í það. Það var ekki dautt. Allt í einu rak Kristín upp óp. Hrafn- inn hafði kroppað annað augað úr lambinu, það skcin í bera augnatóttina. Brynjólfur tók upp hníf. Það var ekki um annað að ræða en draga um barkann á því. Kristín var farin að gráta. Hún grét svo ákaft, að Brynjólfi ætlaði að veitast erfitt að hugga hana. „Ég var búin að hlakka svo mikið til að fara hingað í dag,“ sagði hún„ að þetta skyldi þurfa að koma fyrir! Elsku litla lambið mitt, mikið hefurðu átt bágt!“ Brynjólfur bað hana nú með mörgum fögrum orð- 212 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.