Heima er bezt - 01.06.1962, Blaðsíða 31

Heima er bezt - 01.06.1962, Blaðsíða 31
ekki unnizt tími til að kenna honum. Brynjólfur hafði boðizt til að taka hann án meðlags. Var því boði tek- ið fegins hendi. Gáfu fyrrverandi húsbændur hans honum þau meðmæli, að hann hefði tæplega gripsvit og gæti raunar varla talizt með öllum mjalla. Hafði enginn mótmælt því, ekki einu sinni drengurinn sjálf- ur. Prófasturinn, mágur Brynjólfs, hafði þó trúað hon- um fyrir því, að honum væri alveg óhætt að taka Sveinka, hann vissi sínu viti. Enda bar ekki á öðru en Sveinki hugsaði um ærnar eins og 'heilvita maður. Og sannleikurinn er sá, að Sveinka líkaði prýðilega á Bökkunum. Hann fékk nóg að éta, var aldrei laminn, fékk að sofa nokkurn veginn eins og hann þurfti og var hóflega skammaður. Honum hafði aldrei liðið jafn- vel á ævinni. Að vísu bar svo við, að þeir hentu gam- an að honum, húsbóndinn og Steini. En Sveinki litli tók slíkt og þvílíkt ekki um of alvarlega; hvað var það, hjá öðru verra? Það var helzt hann Gvendur, sem gat átt það til að vera dálítið illkvittinn, kannske af gömlum vana, kannske af því, að Sveinki sýndi hon- um mjög svo takmarkaða virðingu. Aðrir karlmenn voru ekki á heimilinu. Og eru þá ekki taldir hlaupamenn, sem Brynjólfur hafði fengið sér til hjálpar bæði fyrir og eftir slátt við að koma upp gripahúsunum. Húsfreyjan á Syðri-Völlum hafði gert dóttflr sína vel úr garði á allan hátt. Hún hafði séð um, að allur hennar fatnaður, bæði ytri og innri, væri í góðu standi og rúmföt nægileg. Hún hafði haft auga með koppum og kirnum, potturn og keröldum og öðrum botélum. Og hún hafði tryggt dóttur sinni, að hún væri vel á vegi stödd með kvenhöndina. Hún hafði látið hana fá Guðrúnu Guðmundsdótt- ur, sem verið hafði á Syðri-Völlum frá því árið áður en Kristín fæddist. Höfðu þær snemma hænzt hvor að annarri, Kristín og hún. Var Guðrún nú komin urn fimmtugt, og þótt hún væri tekin að lýjast nokkuð, þá var hún samt enn þá bezta hjú. Hafði hún mörg und- anfarin ár ekki gengið að útivinnu, heldur hjálpað Ólöfu húsfreyju innanstokks, enda þótti hún einkar myndarleg við öll innistörf. Var það hvort tveggja, að Ólöf á Syðri-Völlum hefði aldrei latið Guðrúnu frá sér fara af frjálsum vilja né Guðrún farið af því góða heimili, nema sem eins konar fylgifiskur Kristínar litlu. Enda hafði það verið ákveðið frá upphafi vega, að Guðrún færi með Kristínu, þegar hún færi að búa. Kom það fyrst tii tals um það leyti og Kristín litla fór að babla. Síðan mikið um það rætt, meðan engum datt í hug í alvöru, að til þess kæmi. En svo þegar Kristín var orðin stór og allt benti til, að hún vrði manni gefin, var minna um þetta talað, en mcira um það hugsað. Hiifðu þær þrjár verið ásáttar með sjálf- um sér, án þess að segja neitt. Að lokum hafði brott- för Guðrúnar verið. undirbúin eins og Kristínar. Þá hafði Ólöf látið Kristínu hafa með sér unglings- stúlku, sem verið hafði á Syðri-Völlum frá því að hún var fermd. Höfðu þær verið samrýmdar, Kristín og hún. Þessi stúlka hét og Guðrún, eins og áður segir, og var Jónsdóttir. Var hugmyndin, að hún yrði með tíð og tíma eins konar Guðrún önnur þar á Bökkun- um. Stóðu vonir til, að hún giftist ekki, með því að ihún var af bláfátæku foreldri og átti ekkert til. Auk þess hafði hún lýti á andlitinu, en það var valbrá, sem náði frá vinstra gagnauga niður alla kinn. Enda köll- uðu strákarnir hana aldrei annað en stelpuna með val- brána, og jafnt þótt hún heyrði til. En hún var mynd- arstúlka og kom sér ágætlega. Þessi Guðrún var alltaf kölluð Gunna, en hin aldrei annað en Guðrún. Já, það var mikið að gera, sem vænta má. Ö!1 gripa- hús óreist í sláttulok. Nema hvað komið hafði verið upp fjósi. Það átti nú að gera úr því hesthús, handa hestunum, sem teknir yrðu á gjöf, þeim Rauð og Stjarna og tveim öðrum, Bleik og Brún, því um vetur- nætur yrðu kýrnar látnar undir pallinn í baðstofunni. Strax í sláttulok höfðu þeir Brynjólfur og Steini farið að byggja fjárhústóttina. Þeir hlóðu hana úr kekkjum, vegna þess að þeir höfðu ekki getað náð í grjót í hana. Um annað grjót en hraungrýti var ekki að ræða, enda ágætt að nota það. En það var fvrir of- an Eldána, og ekki vegur að flytja það nema á sleða að vetrinum, í æki. Varð nú að hafa það, þótt fyrstu útihúsin á Bökkunum væru hlaðin úr kekkjum. Þegar þau yrðu bvggð að nýju, skyldu þau hlaðin úr grjóti. Annað var verra, að hafa ekki getað náð í hellu á þök- in. En sama gilti um helluna og grjótið, að eigi var hægt að flytja hana nema í æki. Auk þess allseinlegt að vælja hana og tína saman. Nú skyldi sá háttur á hafð- ur að láta mel á raftana undir torfið. Gat það verið ágætt til að byrja með. Svo var hægt að safna hellu og flytja hana að vetri til. Hana þurfti að sækja alla leið upp að fjalli, því hraunhellur voru ekki góðar á þök, það rann ekki nógu vel á þeim. En þegar búið var að safna hellu á þak, var hægt, haust eða vor, eftir því, sem á stóð, að rífa ofan af húsinu og setja helluna á. Og helluna var hægt að nota upp aftur og aftur, þegar þurfti að rífa hús og endurreisa. Sama var að segja um grjótið. Það var hægt að nota aftur og aftur. Þau hús stóðu auk þess miklu lengur, sem hlaðin voru úr grjóti. En um slíkt þýddi nú ekki að tala í þetta sinn. Brvnjólf- ur hafði verið svo heppinn að ná í ágætis stungu, svo bann var eftir atvikum ánægður. Tvenn laugardags- kvöld um sumarið hafði hann rokið til með Steina og stungið heilmikið af kökkum, svo nægja myndi í kof- ana. I bæði skiptin hafði verið komið fram á morgun, þegar þeir hættu, enda þá komið nóg. En það var hin mesta nauðsyn að láta kekkina síga vel, áður en hlaðið var úr þeim. Þeir voru og mjög vel signir, en ekki laust við, að þeir væru grónir saman yzt. Þeir Brynjólfur og Steini höfðu getað verið að mestu óskiptir við byggingar um haustið. Var og venjulega maður með þeim þaðan úr hreppnum. Gvendur hafði farið í göngur og Sveinki snúizt kringum féð og hross- in, þegar þess þurfti við. En eftir að féð var komið Heima er bezt 215

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.