Heima er bezt - 01.06.1962, Síða 35

Heima er bezt - 01.06.1962, Síða 35
73. Nú er ekki undankomu auðið! Frændi gamli hefur ekkert að gera í hendurnar á slíku þrælmenni sem Fúsa flakkara. Við nemum staðar á götuslóð- anum og bíðum ofsóknarans, sem kem- ur nú másandi og blótandi. 74. „Jæja, svo að þið hélduð, að það skyldi reynast svo auðvelt að leika á Fúsa Flakkara." Flann hvæsir bálreiður og rogginn. „En nú hef ég náð í ykkur aftur!“ Hann þrífur í skyrtuhálsmálið á mér og reiðir stafinn til höggs. 75. Þá heyrist allt í einu hvellt hunds- gelt inn á milli runnanna. Fúsi flakkari lækkar stafinn og snýr sér snöggt við. Eins og ör af streng kemur Mikki, tryggðatröllið, þjótandi út úr kjarr- inu og stefnir beint á fjandmanninn. 76. Mikki hefur á svipstundu áttað sig á viðhorfinu. Það er ekkert hik á honum. Með grimmilegu gelti ræðst hann á Fúsa flakkara, er óðara verður að sleppa mér, og verja sig fyrir Mikka. 77. Eftir snarpa viðureign við hundinn verður hann loks að gefast upp. Við sjá- um hann íjarlægjast meir og meir með Mikka á hælum sér, geltandi grimmdar- lega. 78. Við höldum áfram um skóginn. Brátt nær Mikki okkur og virðist heldur en ekki hreykinn af afreki sínu að reka sjálfan Fúsa Flakkara á flótta og bjarga okkur úr klóm hans! 79. í rökkrinu komum við að litlu lnisi. „Hér á ég heima,“ segir frændi. „Nti kemurðu inn og færð þér að borða." Nú segir hann, að hann sé gamall skógar- vörður á eftirlaunum og heiti Borg. 80. í litlu stofunni mætum við Önnu dótturdóttur hans, er býður okkur vel- komna og segist hafa orðið ögn hrædd um afa, er hafi verið svo lengi. Svo segir Borg henni alla söguna í stuttu máli. 81. „Án hjálpar drengsins hefði ég ekki losnað ómeiddur úr klóm Fúsa,“ segir hann og klappar mér á herðarnar. „Nú verðurðu að bjóða honum eitthvað gott, Anna mín!“ Heima er bezt 219

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.