Heima er bezt - 01.02.1978, Side 4

Heima er bezt - 01.02.1978, Side 4
EIRÍKUR EIRÍKSSON: „Söngurinn á samleið með sumri og nýjum vonum“ Sagt frá Jónasi Tryggvasyni á Blönduósi Við húnabraut 26 á Blönduósi er reisulegt hús á tveim hæðum og á skilti í glugga á framhlið neðri hæðar standa orðin: Blindraiðjan Björk. Hér er bólsturgerð og verslun með húsgögn sem blindur maður rekur, Jónas Tryggvason, með aðstoð konu sinnar, Þorbjargar Bergþórsdóttur. Þegar ég litast um hér inni blasa við mér fallega bólstruð húsgögn með reglulega snotru handbragði. Ég kemst að raun um að næmi þessa manns í fingrum er alveg furðulegt og reyndar ofvaxið mínum skilningi. Ég er kominn hér á fund hans að áeggjan mætra manna sem telja lífshlaup hans merkilegt frásagnarefni og gott dæmi þess hvernig fatlaður maður getur orðið fyllilega hlutgengur í lífinu og til góðra verka nýtúr, ef við, hinir sjáandi, leggjum ekki stein í götu annaðhvort af með- aumkvun eða afskiptaleysi, eins og oft á sér stað í um- gengninni við fatlað fólk. Ég hygg að Jónas Tryggvason kvarti ekki yfir því að Húnvetningar umgangist hann af einhverju velviljuðu hlutleysi því þeir hafa fyrir löngu komið auga á það að óhætt var að fela honum umsjá vandasamra og erfiðra sveitarstjómarmála og til forustu hefur hann valist í tón- listar- og tónmenntamálum héraðsins. „Já, hann er merkilegur maður,“ sagði góðkunningi minn á Blönduósi. „En ég hugsa nú aldrei út í það, og sennilega mjög fáir hér, að hann sé það sem mætti nefna fatlaður maður, því hann gengur að störfum sem alsjá- andi.“ Séra Gunnar Ámason, sem eitt sinn var prestur á Æsustöðum í Langadal og þekkti mjög vel til Jónasar, skrifaði þau orð í afmælisriti um Karlakór Bólstaðar- hlíðarhrepps að Jónas nyti „hvers manns virðingar sem hann þekkja,“ og átti þá við þau störf sem hann leysti af hendi með starfshæfni sinni og alúð. Það er tvímælalaust gæfa Jónasar að samferðamenn skuli hugsa svona og léttir honum byrðina og veitir styrk. Ég byrja samtal okkar á því að spyrja hann um blind- una. Hann segir mér þá að það séu ekki nema fá ár síðan hann geti sagt að sjónin hafi alveg farið. Þó sá hann ákaflega illa sem barn. Þegar hann var átta eða níu ára gamall var farið með hann til augnlæknis sem taldi þetta nærsýni sem laga mætti með gleraugum. Með þeim margfaldaðist sjónin og hann taldi sig fleygan og færan um tíma. Sjónin reyndist þó ekki betri en það að t.d. við smalamennsku vildi hann frekar skilja fé eftir. Svo var farið með hann til annars augnlæknis sem kvað upp þann dóm að hann gengi með sjaldgæfan augnsjúkdóm sem engin læknisráð þekktust við og mjög fáir hafa fengið hér á landi. Það má fara nærri um það að þessi úrskurður var mikið áfall hinum unga sveini sem þó ekki æðraðist, og kom sér nú vel að hann hafði hlotið mikinn sálar- og viljastyrk i vöggugjöf. I barnaskóla gat hann bæði lesið og skrifað þótt miklum erfiðleikum væri bundið, og í gegnum skólann komst hann. En fljótlega þar á eftir hætti hann að geta lesið. Síðan smágekk á sjónina uns hún hvarf alveg. Jónas Tryggvason er fæddur 9. febrúar 1916 í Finns- tungu í Bólstaðarhlíðarhreppi. Foreldrar hans voru hjón- in Tryggvi bóndi Jónasson og Guðrún Jónsdóttir sem þar bjuggu. Séra Gunnar Árnason hefur sagt, í riti því sem ég áðan 40 Heima er ben

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.