Heima er bezt - 01.02.1978, Qupperneq 14
Stefán Stefánsson, bóndi á Hlöðum.
Hörgárdalur blasi við fram í botn, og lokar þar Grjótár-
dalshnjúkur útsýn. Til norðurs er opin sýn til hafs úti í
fjarðarmynni, þarsem miðnætursólin syndir í haffletinum
um sólstöðumar. „Siglir í hafi sólarskip“, kvað Ólöf á
Hlöðum. Látraströndin allt norðan frá Gjögurtá, og
Höfðahverfi blasa við og yfir þeim gnæfir Kaldbakur í
öllu sínu veldi og nýtur sin óvíða betur. Opin er sýn að
Laufási og um nyrsta hluta Svalbarðsstrandar nokkuð inn
fyrir Víkurskarð, en er innar dregur byrgir hæðin fyrir
ofan bæinn sýn til bæja á Svalbarðsströnd, en vel sér til
efsta hluta Vaðlaheiðar. Til suðurs er fjallasýn mikil og
fríð. Þar rís fjallabálkur Vindheimajökuls upp fyrir miðju
austan frá Stórahnjúk og vestur á Vindheimaöxl, en upp
úr honum miðja vegu rís Strýta eins og píramídi, en
mestur hluti jökulsins blasir við í suðurhlíð Fossárdals.
Austan þessa fjallabálks er Glerárdalur og skilur hann
Súlur frá meginfjallinu, en að vestan er Bægisárdalur, og
sunnan hans Landafjall í Öxnadal. Súlur og Landafjall
skapa jafnvægi í hina miklu mynd. Fjöllin milli öxnadals
og Hörgárdals blasa við, en Hraundrangi sést þó ekki,
nema þokuhnoðri liggi í skarðinu sunnan undir honum
annars rennur hann saman við fjöllin að baki. Það spáði
ætíð úrkomu, ef Drangi sást. Eins og fyrr getur sést öll
vesturhlíð Hörgárdals, og í vestri „standa hnjúkamir
50 Heimaerbezt
stilltir í röðum með starandi andlitin beint móti Hlöðum“
segir Ólöf. Þar er Staðarhnjúkurinn upp af Möðruvöllum
bringubreiðastur og svipmestur.
Að Hlaðalandi liggja lönd þessara jarða: Skipalóns að
norðan, Gása, Dagverðareyrar og Glæsibæjar að austan
en Tréstaða og Djúpárbakka að sunnan.
Svo voru mér kennd landamerki í æsku: Að vestan
ræður Hörgá, að norðan lína úr Sandhólum (nafnið var
ætíð haft í fleirtölu) nokkur ágreiningur var um, hvar
miðað skyldi við Sandhóla en venjulega þó talið um þá
miðja og sjónhending í Gunnsteinsþúfu, og frá henni í
merkjavörðu beint norður af Hvasshól. Sú varða var
löngu horfin, en Stefán bóndi vissi nákvæmlega, hvar hún
stóð. Að austan voru merkin úr umræddri vörðu í Hvass-
hól og þaðan suður Neðstuhæð um háhæðina og suður
eftir í Stórhæð. Að sunnan lágu slitur af gömlum merkja-
garði frá Stórhæð niður í norðanverða Messuklauf og
þaðan í krókinn á Tréstaðalæk við norðausturhom túns-
ins, réð lækurinn síðan merkjum í Hörgá. Við ána er
grasbakki, kallaður Tréstaðahólmi, var hann þrætuland
milli Tréstaða og Djúpárbakka, en ofan við hann átti
Djúpárbakki landræmu norður í Tréstaðalæk. Þegar girt
var á merkjum keypti Stefán á Hlöðum dálitla skák af
Djúpárbakka sunnan við lækinn, var það nokkurra hesta
Þorsteinn Stefánsson, Hlöðum.