Heima er bezt - 01.02.1978, Side 19
í þessum litla dal bjó faðir hans, en jörðin var of lítil fyrir
tvo, svo Anselm fór til Osló fékk þar vinnu. Frá Osló var
konan hans Anselm, og þar voru börn þeirra fædd, stúlka
18 ára og drengur 16 ára, sem nú stundaði nám á Kleiva
bændaskóla og myndi ljúka því næsta vor. Fyrir þremur
árum kom Anselm aftur heim í dalinn sinn, tók við jörð og
búi foreldra sinna, er treystu sér ekki til að búa lengur en
fluttu þá í litla húsið. Hús voru gömul og ónóg, svo hann
byggði strax, íbúðarhús og fjós. Jörðin bar ekki nema 15
kýr auk viðkomu, því ætlaði hann að byggja í vor hús yfir
200 slátursvín. Þá myndi búið skila góðum arði.
Nú var sest að borðum. Heimabakaða brauðið var
hreint hnossgæti. Svo kom terta, auðvitað gómsæt, sem
allir neyttu, og hélt nú Flóa karl að hér væru veislulok, en
þar feilreiknaði karl sig illa. Brátt sækir frú Björg aðra
tertu ekki síður girnilega. Nú fer málið að vandast en
ekkert undanfæri, allir verða að fá á diskinn, þó rúmið sé
lítið fyrir allar þessar kræsingar. En það er bara ekki allt
búið ennþá, því eftir smá stund fer frúin enn af stað og
kemur með geysistóra rjómatertu skreytta með allskonar
ávöxtum, nú áttu gestirnir fyrst að fara að hafa sig að
góðgætinu. Nú var Flóa karli öllum lokið, en ekki kom til
mála af hafa slíka hentisemi og Egill á Borg forðum hér á
meðal vina á góðri stund, hér var um aðeins eitt að ræða
að standa sig sómasamlega en slíka rausn í veitingum
hafði hann aldrei áður þegið. Og vinarylinn frá norskum
frændum, sem lagði til gestanna eins og vorsólargeisli svo
undursamlega hlýr, hér var hamingjukvöld.
Nú var ekið í hlað, húsbóndinn fer til dyra og býður
gestum inn. Hér voru komin frú Britt og Kjell Jensen
einmitt sá sami og hélt erindi um skógrækt á bændaskól-
anum fyrr í kvöld. Hann býr hér vestar á eynni og aðeins
með sauðfé, 150 fjár og er það stórt bú hér. Hann notar
beit aðeins framan af hausti, vetrarrýir allt féð og markar
lömb áður en sleppt er og nú er annatíma lokið. Langey er
aðeins 21 kílómetri á breidd og því er stutt á sumarhaga
fjárins, og stuttar haustleitir. Samkvæmt niðurstöðum
sauðfjárræktarfélags Langeyjar eru félagar 26 að tölu,
með 612 vetrarfóðraðar kindur, ull pr. kind 3.6 kíló, lömb
Kirkjan í Tromsey. Hér sést vel hið nýtískulega form
hennar.
á vetrarfóðraða kind 1.46, fallþungi 44 kg, fallþungi á
vetrarfóðraða kind 64.6 kg, lambatap yfir beitartímann
4.0% og eiga rándýr þar stóran þátt að. Féð er enskt
langhala fé.
Nú voru glös fram borin og í þau rennt sólarvatni. Flóa
karlinn lét sér þó nægja miðnætursólina, sem varpar
mildri birtu yfir litla fjalladalinn. Það kom því í hlut
íslensku húsmæðranna og Eyþórs, sem var hrókur alls
fagnaðar, að neyta þessara sólarveiga, og bjarga heiðri
landans.
Að gestaboði loknu, óku norsku hjónin gestum heim að
Kleiva og áttu með gestum sínum smá kveðjustund, er
skipst var á smá vinargjöfum. Slíkt gestaboð hafði Flóa
karl aldrei áður lifað og mun alla tíð minnast þessara
norsku vina þakklátur fyrir að hafa fengið að lifa slíka
stund.
Tíminn er ótrúlega lúmskur að fljúga frá manni,
kominn 16. júní og kveðjustund á Kleiva eftir góðan
morgunverð. Skólastjóri ásamt starfsfólki kemur á hlað
út, hlý handtök, vinarkveðjur. Að Iokum er kvatt með
íslensku lagi.
Bílunum skilar vel norður með sundinu. Á mótum
Sortlandssund og Gavlfjörd er mjótt sund. Stór brú, sem
skipfært er undir, tengir eyjar saman. Er yfir brúna er
komið blasir við lítið þorp, Strönd. Þá tekur við stærsta
eyjan í þessum eyjaklasa, Hinney, segir Agnar. Annars er
svæðið sem um er ekið kallað „Lödingen". Undirlendi er
all vítt í daladrögum undir gnæfandi fjöllum. Áður fyrr óð
hér síld inn vog og vík. Síldarverksmiðjur eru hér á stöku
stað og úr sumum rýkur. Kannski eru þær að bræða loðnu
eins og heima, hver veit? A þessum eyjum var áður fyrr
mikil loðdýrarækt, refur og minkur, enda nokkur ennþá. í
mynni Sigerfjörd er mikil snjóflóðahætta í snarbröttum
fjallahlíðum. Þó skógurinn veiti viðnám, setjast hengjur á
brúnir fjallanna, sem hlaupa fram. Slíkt gerðist hér á
síðasta ári. Flutti það snnjóflóð með sér nokkur hús á sjó
út og þrír menn létust. Greinileg merki þessa atburðar eru
auðsjáanleg í snarbrattri fjallshlíðinni. Handan Sigerfjörd
blasir við hátt fjall, Gullhoms fjallið, segir Agnar,
Brúin í Tromsey. Hin sérkennilega nýtísku kirkja sést
fremst á myndinni.
Heimaerbezt 55