Heima er bezt - 01.02.1978, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.02.1978, Blaðsíða 28
Hin leikandi bragsnilld Guðmundar Guðmundssonar skálds hefur örvað mörg tónskáldin okkar til verka. Mér telst til að 23 tónskáld hafi samið yfir 200 lög við ljóð hans og ljóðabálka. Dreg ég í efa að nokkurt skáld á íslandi hafi notið slíkrar tónskáldahylli. En þótt svona mörg lög hafi verið samin við ljóð Guðmunndar hefur aðeins lítill hluti þeirra verið kynntur almenningi. Þykir mér trúlegt að þau séu fleiri lögin við kvæði Steingríms Thorsteinssonar sem þekkt eru, þar á meðal þau erlendu, sem fylla myndu langan lista. Guðmundur var Rangæingur, fæddur á þjóðhátíðarári 1874 að Hrólfsstaðahelli. Mörg ljóða hans fjalla um æsku- byggðina, þar á meðal neðanskráð sem þrjú tónskáld hafa samið lag við: A.J. Johnson, Árni Thorsteinsson og ísólfur Pálsson. AUSTURFJÖLL Þið ljómið heið og breið og blá, mín björtu austurfjöll! Þar kveiktu ljósin bros á brá í bernsku álfahöll. Það birtir alltaf yfir mér, er æsku guðavé í anda við mitt hljómspil hér ég há og fögur sé. Af lýsigulli loga slær um ljósa hlíð og dal, er mildur andar aftanblær um álfakonungs sal. Úr perlugljáa glitberg rís með glóspöng yfir brún, þar bláeyg situr blómsturdís og blessar yfir tún. Þar man ég græna laut hjá lind, er líður suður mó, - þar fæddist æskuást mín blind og ung í tárum dó. í ljóma kvöldsins leið hún inn í loftsins safírhöll, - hún birtist mér í sérhvert sinn, er sé ég austurfjöll. Um júnídægrin ljós og löng er leiðin tónum greið við fjaðrablik og svanasöng um sumarveldin heið. Ég svíf í ókunn undralönd hve yfir þeim er ljóst! mér réttir aftur æskan hönd með eyrarrós við brjóst! Um hugann leggur hlýjan straum, er hljóðs og stuðla föll úr fortíð grafa gleymdan draum og gull mín heil og öll. - Þið spyrjið víst hvað valdi því að vöknar mér um brá: Svo skær er bjarminn augum í um austurfjöllin blá! Ég hef heyrt ýmsa hafa það á orði að of mikillar til- finningasemi gæti í ljóðum Guðmundar og þessvegna séu þau ekki í samræmi við raunveruleikann. Satt er það að Guðmundur fékkst ekki við það að draga upp mynd af soranum í mannlífi. En það ber að hafa í huga að hin rómantíska viðkvæmni, sem mjög setur mark á ljóð hans, túlkar aðeins viðhorf kynslóðar hans til skáldskapar, en í honum æsktu menn að sjá dýrð fegurðar og drauma og best sést á þeim viðtökum sem ljóð hans fengu strax í byrjun. Guðmundur orti annars harmþrungin kvæði um ástir og svik og sorgir, einnig um fegurð landsins og dýrð íslenskrar náttúru og þjóðtrúna, sbr. Kirkjuhvoll, sem varð strax vinsælt með eldingarhraða, ekki síst vegna laga þeirra séra Bjarna Þorsteinssonar og Árna Thorsteins- sonar. Guðmundur taldi sig mikinn hamingjumann í lífinu eftir að hann kvæntist Ólínu Þorsteinsdóttur og eignaðist með henni dætumar þrjár, Hjördísi, Steingerði og Drop- laugu. Um það vitnar best ljóð hans, Heima, sem Jóhann Ó. Haraldsson tónskáld samdi lag við. HEIMA Ég uni mér best við arin minn, og elskan mín situr með bros á kinn og raular í vökunni sönginn sinn við sofandi glókolla mína. Ég sit við borðið og les þar ljóð, er loginn snarkar á aringlóð og brosandi geislar af gömlum óð sem góðvina bráleiftur skína. Og hvar sem ég lít er Ijósbrot eitt, í litlu stofunni er bjart og heitt, frá dagstriti hvílist þar höfuð þreytt í heimilisfriðarins ríki. Sem barnsaugu horfi’ inn í hjarta mér, með himneskan unað í för með sér, hvert smávægið ylríki’ og birtu ber í brjóst mér — í engils líki. Mér finnst ég við allt og alla’ í sátt, til einhverra þrekvirkja finn ég mátt, — ég kenni hvem einasta andardrátt af elskunnar ljósvaka þrunginn. 64 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.