Heima er bezt - 01.02.1978, Side 31

Heima er bezt - 01.02.1978, Side 31
Skildi konungur helming liðsins eftir í skarðinu undir stjórn Hreiðars jarls og hélt þegar að því búnu áleiðis heim til höfuðborgarinnar. Taldi konungur, að þangað hefði Valgeir greifi leitað, fyrst honum mistókst, að ná skarðinu. Varð konungur þarna sannspár, eins og seinna sannast. 22. kafli. VÖRNIN VIÐ HÖLLINA. Hin fyrsta nótt leið tíðindalaust og næsti dagur. Þann dag allan riðu herflokkar látlaust fram hjá borginni Sólvangi. Úr turninum mikla sást út yfir alla borgina. Fjöllin miklu lágu í fjarska, blámóðu vafin. Þarna uppi í fjöllunum og að baki þeim var hildarleikur háður, þar sem barizt var um, hvort ríkið Garðaveldi yrði áfram undir stjórn konunganna Manfreðs og Bjarnharðar eða undir stjórn þeirra, sem inn í landið réðust. Engum var rótt þama heima. Engin frétt barst frá Bjamharði og mönnum hans. Þó gat varla annað verið en þeim hefði tekist að ná fjallaskarðinu og verðust þar, því annars væru óvinirnir komnir. Á fjórða degi eftir brottför konungsins fékk Manfreð konungur boð frá verðinum, að nauðsyn bæri til, að hann sjálfur kæmi upp í turninn. Komungur brá þegar við og fór á fund varðmannsins. „Var það eitthvað, sem þú sást,“ mælti konungur. „Já, herra. Tíu fylkingar fóru inn í borgina Sólvang, en ekki nema níu út úr henni aftur. Einnig sá ég mann laumast að dyrunum, sem eru á varnarmúrnum bak við höllina. Eitthvað er óhreint við það. Þetta vildi ég segja yður, herra, milliliðalaust.“ „Þakka þér fyrir, Hörður,“ mælti konungur. „Hafðu nánar gætur á öllu. í nótt mun til tíðinda draga, ef svikarar hugsa sér til hreyfings. Það mun ekki seinna vænna fyrir þá.“ Að svo mæltu gekk konungur aftur niður í turninn til sinna manna. Á leiðinni kom hann við hjá drottningu sinni og dóttur. Hann sagði þeim, hvers vörðurinn hefði orðið vis, og kvaðst búast við því, að hér væru svik í tafli. Nú væri sá tími kominn, sem svika væri von. Þeir þyrðu varla að bíða lengur, ella töpuðu þeir tækifærinu, sem nú byðist þeim. „Hvað ætlar þú að gera, Manfreð konungur, ef hér eru svik á ferðum?“ mælti Hróðmar. „Það þyrfti að senda njósnara út í borgina,“ svaraði Manfreð konungur. „Heil herdeild dylst engum. En hvemig myndir þú haga vörnum, Hróðmar, ef svik eru í vændum?“ „Ég myndi gera þetta, sem þú talaðir um. Einnig myndi ég kalla alla varðmenn burtu af hallarmúmum. Þeir eru svo fáir, að þeir fá engri vörn við komið, ef ráðizt verður á höllina af heilli herdeild og árás gerð á mörgum stöðum í senn. Þama eru til vamar nokkur hundruð manna. Suma myndi ég senda til hjálpar þeim, er verja eiga hina sjúku, en hina tæki ég hingað til hjálpar við vamir tumsins.“ „Þetta er í meginatriðum það sama, sem ég hafði ætl- að,“ mælti konungur. „Hér er ekki margra kosta völ.“ Fljótlega kom sá aftur, sem sendur hafði verið að njósna um herdeildina, sem í felum var. Heil herdeild var auð- fundin grá fyrir jámum. Maðurinn hafði komizt mjög nærri hermönnunum, sem ekki þekktu hann frá öðrum borgarbúum. Maðurinn skýrði svo frá: „Ég heyrði þá tala um, að fyrst ættu fáir menn að læðast í næturmyrkrinu að bak- dyrum á varnarmúrnum, sem þá myndu ólokaðar vera og opna aðalhliðið, svo herdeildin kæmist óhindruð inn í kastalagarðinn. Þar næst á að brjóta upp vígturninn, ræna öllum tignum konum og flýta svo förinni til Hamraborgarkastala. Þann sem fyrir þessari herdeild er, heyrði ég nefndan Álfgeir greifa." Manfreð konung setti hljóðan. „Ills er af illum von,“ mælti hann. „Far þú, Valbjörn, og biddu foringja varn- arliðsins að finna mig strax.“ Valbjörn fór þegar. „Þetta er röskleikamaður,“ mælti Hróðmar, sem nú vildi ekki láta framar nefna sig konungsnafni. Hann hafði einnig óskað eftir uppgjöf á hirðsiðum öllum, á meðan ófriður væri og viðsjálir tímar. Þessi mikla kempa sagðist hafa hugboð um, að nú væri sín ævi bráðum á enda. Sagðist hann helzt vildi láta lífið fyrir þetta tigna fólk, sem hér væri í varnaraðstöðu. Sér væri og skylt að verja tengdadóttur sína, Elísu, fyrir allri vansæmd. Þessi orð, sem nú hafa skráð verið, talaði Hróðmar Valdimarsson í afmælishófi daginn áður, en þá var Elísa 23 ára gömul. Yfirforinginn kom, fékk fyrirskipanir og fór aftur. Hann átti þegar í stað að koma inn í vígturninn, með fáa menn, en hina skyldi senda til sjúkrahússins til varnar þar. „Eitt skil ég ekki,“ mælti Hróðmar. „Hvers vegna svik- arar sitja á svikráðum við annan eins þjóðhöfðingja og þú ert?“ „Margt hefði mátt fara betur í minni stjórnartíð, en orðið hefur,“ mælti Manfreð konungur. „Ríkið er víðlent. Tekjurnar miklar og valdið þó mest, sem getur orðið beinlínis voðalegt, ef það væri í höndum illræðismanna, eins og þeirra Valgeirs greifa og Álfgeirs illa. Næðu þeir í þetta vald, þá myndi verða í þessu ríki ógnarstjórn manndrápa og níðingsverka. Þó er Álfgeir greifi mikið verri. Hann er blauður óþokki, sem þyrfti sannarlega að afmá.“ „Látum þá koma, þessa svikahunda,“ mælti Hróðmar og reis á fætur í allri sinni stærð. „Já, komi þeir bara. Þeir reikna með sigri , en eitt taka þeir auðvitað ekki með í reikninginn. Þeir munu hafa með sér útbúnað til þess að brjóta hurðina á turninum með. Látum svo vera. En þá eiga þeir eftir að komast upp stigann. Ætli þeim bregði ekki í brún, þegar þeir sjá tröllkarlinn Hróðmar Valdi- marsson standa við hlið kempunnar, Björns sterka, til varnar við uppgöngu upp í turninn.“ „Vel sagt, Hróðmar Valdimarsson," mælti Manfreð konungur. „Komum nú upp í turninn, þangað sem drottning mín Heimaerbezt 67

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.