Heima er bezt - 01.02.1978, Page 35

Heima er bezt - 01.02.1978, Page 35
George J. Houser: Saga hestalækninga á (slandi. Akureyri 1977. Bókatorlag Odds Björnssonar. Þetta er mikil bók og nýstárleg. Höfundurinn, sem er ameríkani. hefir lært islensku svo vel, að hann semur og skrifar bókina á íslensku, sem fátítt er um útlendinga. En það sem merkilegra er, hann hefir safnað öllu. sem tiltækt var í bókum og handritum um hestasjúkdóma og lækningar á þeim, svo langt sem seilst varð aftur í tímann og frásagnir ná til. Þá hefir hann sent spurningar til fjölda manns, sem enn lifa víðsvegar um land. En auk þessa hefir hann borið hin islensku fræði saman við erlendar bækur um þessi efni, en þar er geysimargt ritað á þessu sviði. Þetta er í stuttu máli sagt efniviður bókarinnar, en svo vel og vísindalega er að unnið að Háskóli íslands hefir sæmt höfundinn doktorsnafnbót fyrir. og verður vísindariti vart veitt meiri viðurkenning. En nú mætti ætla. að þar sem svo miklu efni er til safnað og með það farið á vís- indalegan hátt. að það væri þungt undir tönnina fyrir hinn almenna lesanda. En svo er ekki. Höfundi hefir tekist að gera efnið hverjum manni aðgengilegt, og víða er bókin bráðskemmtileg, a.m.k. fyrir alla þá, sem hafa hug á hestum eða íslenskum þjóðháttum. Enda þótt margt sé skráð í seinni tíð um íslenska þjóðhætti, er víðast fljótt farið yfir sögu um dvrasjúkdóma og læknisráð við þeim, og á það jafnt við hreinar bábiljur og raunverulegar læknisaðgerðir. Bók þessi fyllir því upp í eyðu, sem verið hefir í meðferð þessara fræða. Enginn getur vænst þes, að höf- undur hafi gjörtæmt efnið svo, að ekki kunni að finnast einhverjir smá- munir óskráðir, en varla eru þeir margir né mikilsvirði. Og þegar bókin er nú komin í almennings hendur, gefur hún þeim. sem eitthvað þykjast vita betur, tækifæri til að bæta við eða leiðrétta. þyki þeim þess þörf. Frágangur allur er með ágætum, og bókin prýði í safni íslenskra þjóð- fræða. þvi að til þeirra vil ég fremur telja hana, en læknisfræði. Laurence J Bendit: Yoga. Rvík 1977. Bókaútgáfan Þjóðsaga. Margt er nú rætt um Yoga vísindi bæði hér og annars staðar á Vestur- löndum. Það er eins og mönnum hafi nú á síðustu áratugum skilist fyrst að sitthvað í hinum fomu fræðum Indverja, geti komið oss vestrænum mönnum einnig að haldi bæði andlega og líkamlega. Þetta litla kver, sem breskur sálkönnuður hefur samið, er til þess gert að sýna hvernig hægt sé að þróa yoga. sem byggð sé á vestrænni þekkingu. Margt er fróðlegt og forvitnilegt í bók þessari. Höfundur ræðir þar ýmis dulræn fyrirbæri, og einnig hver áhrif margvísleg ofskynjunarlyf hafi á manninn. og að þau geti jafnvel skapað mikilvæga andlega reynslu. En allt stefnir þetta að einu og sama marki, að öðlast þekkingu á sjálfum sér og ná valdi yfir sál og líkama. ef svo mætti að orði kveða. Vafalaust má margt af bókinni læra. og ekki flytur hún annan fróðleik en þann, sem er manninum til gagns og góðs. En mér finnst hún vera full torskilin fyrir byrjendur þessara fræða. eða að minnsta kosti fær enginn skilið hana til fulls nema með allmikilli vinnu. En sú vinna fær sín laun, því að vissulega er hér margt kennt. sem hverjum er til gagns og þroska. Þýðandi er Sverrir Bjarnason. Ólalur H. Einarsson og Einar Karl Haraldsson: Gúttóslagurinn 9. nóv. 1932. Rvík 1977. Örn og Örlygur. Árið 1932 var ár harðra átaka í verkalýðsbaráttunni hér á landi, og má með sanni segja, að þá skipti sköpum að nokkru leyti í þeim málum. Hápunktur atburðanna var Gúttóslagurinn, er verkamenn Reykjavikur sameinuðust í baráttu gegn íhaldinu í bæjarstjórn borgarinnar, sem gerði tilraun til alvarlegra kauplækkana og árá'sar á kjör atvinnuleysingja og annarra. sem verst voru staddir. Kom til harðra átaka, þar sem allflestir lögregluþjónar bæjarins meiddust og sumir alvarlega, og einnig fjöl- margir verkamenn. I raun réttri mátti segja, að höfuðborgin væri á barmi byltingarinnar. Þeir sem muna þá tíma minnast þess, að óhug setti að þjóðinni við að heyra slika atburði og standa andspænis því, að hvenær sem verkast vildi gæti svo farið, að mál manna yrðu afgreidd með ofbeldisaðgerðum, í því efni skipti ekki máli, hvar í flokki menn stóðu. Það var þarft verk að safna saman og skrá sögu þessara atburða, meðan enn voru uppistandandi menn, sem tekið höfðu þátt í baráttunni, og gátu með minningum sínum fyllt upp í eyður skráðra heimilda í blöðum og réttarskjölum. Höfundar hafa skráð sögu þessa baráttuárs, þvf margt fleira kemur þar fram en Gúttóslagurinn einn, í þeim stíl, sem kallast blaðamennsku sagnfræði. Ef til vill má finna þeirri aðferð sitthvað til foráttu, en hinu verður ekki neitað, að með því móti verður frásögnin gædd meira lífi, og lesandinn fær meira svigrúm til að meta og dæma sjálfur, en þar sem um hina hefðbundnu sagnfræðifrásögn er að ræða. Enda þótt ljóst sé hvoru megin hugur höfundanna er, þá hefur þeim tekist furðuvel að gæta hlutleysis, og tilvísanir í skráðar heimildir gera létt að kanna hin skráðu gögn. Ásamt bókinni 30. mars, er út kom s.l. ár, er Gúttóslagurinn gagnlegt heimildarrit um sögu samtíðar vorrar. Rökkur. Nýr flokkur. Rvík 1977. Enn heldur Axel Thorsteinsson áfram útgáfu tímarits síns Rökkurs, sem kemur til manns eins og gamalkunnur, kærkominn gestur, án þess að eiga nokkum fastan útgáfutíma, en alltaf fylgir því sami þýði andblær- inn frá rómantík liðins tíma. Rökkur er svo blessunarlega laust við ys og þys samtíðarinnar, að það er notaleg hvíld að fá það í hendurnar. Þetta hefti hefst á nýrri útgáfu Alpaskyttunnar í þýðingu Steingríms Thor- steinssonar, einni hinni sígildu þýðinga hans, og það endar á spennandi leynilögreglusögu í þýðingu ritstjórans. Annars er heftið einkum helgað minningum ritstjórans bæði frá bernsku hans í Reykjavík kringum aldamótin síðustu og um nokkur skáld, sem hann hreifst af í æsku, og hefir sú hrifning enst honum fram á elliár. Þá er 60 ára minning frá 1. maí í Noregi, athyglisverð grein enn í dag. Einnig eru þar nokkur kvæði. Margt af þessu efni hefir áður birst fyrir löngu í blöðum og tímaritum, en er jafngóð lesning fyrir því. Axel Thorsteinsson er nú gamall maður, sem margt hefir reynt og séð, en er alltaf ungur í anda. Skyldi hann hafa enst svo vel, af því að hann gengur þráfaldlega á vit bemsku og æsku og rifjar upp margt af því, sem þar var fegurst og best sagt. A.C.Bouchet: Daglegt líf á dögum Krlsts. Rvík 1977. örn og örlygur. Það er ekki ýkjaoft, sem vér fáum sagnfræðirit í hendur, sem eingöngu fjalla um daglegt líf þjóðar eða þjóða á liðnum öldum án atburðasögu eða mannlýsinga. En svo er því farið um þetta rit, að það segis eingöngu frá háttum daglegs lífs. Höfundurinn er enskur lærdómsmaður, sem hefir tekið sér fyrir hendur að opna oss sýn í það umhverfi, sem Kristur lifði og starfaði í, ekki aðeins í Gyðingalandi, heldur einnig vítt um Rómaveldi. Þarna fáum vér fylgst með fólkinu frá vöggu til grafar, vér kynnumst þar mataræði, húsakosti, klæðnaði og vinnubrögðum, allra stétta, allt frá götusalanum til rómverskra herforingja og höfðingja. svo að eitthvað sé nefnt. Fyrir þeim, sem lítt eru lærðir í þessum fræðum opnar bókin nýjan heim, og þeir, sem eitthvað kunna fyrir sér, geta vissulega lært margt nýtt. Ég fæ ekki betur séð en þetta sé ómissandi handbók öllum klerkum og kennurum, sem kenna kristin fræði, og grunar mig, að frásagnir hennar gætu gefið kristindómsfræðslunni nýtt líf og laðað unglingana meir að þessum fræðum en oft er. Þá hlýtur hún einnig að vera harla gagnleg öllum sögukennurum. En hún er þó ef til vill fremur öðru ánægjuleg bók hverjum fróðleiksfúsum manni, sem skyggnast vill um í horfnum menningarheimi, þar sem í rauninni er að finna undirstöðu og uppsprettu menningar samtíðar vorrar. Bókin er prýdd fjölda mynda. Þýðandinn er dr. Jakob Jónsson.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.