Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1985, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.03.1985, Blaðsíða 19
JÓNAS PÉTURSSON: Lífskjör Þetta orð heyrist oft nefnt. Ef til vill svo oft, að tekið sé að þreyta, suma a.m.k. Og víst játa ég að notkun þess hefir valdið ergi í huga mér; Þegar fjálglegar ritsmíðar í blöðum bollaleggja um leiðir til síbatnandi lífskjara með vaxandi tekjum — þjóðartekjum á tölvu- borðinu! Smám saman hefir mér orðið meir og meir hugsað til þessa málflutnings, og þá staldrað við hjá orðinu sjálfu, hugtakinu lífs- kjör! Mér sýnist að auglýsingastarfsemin, gróðahyggjan, sjái sér leik á borði að innræta þjóðinni, að góð lífs- kjör séu fólgin í mikl- um fjármunum, mikl- um tekjum, sem tölvan nemur — það sé jafn- vel eina leiðin til að bæta lífskjör þín og mín! En er þessu svo varið? Til þess að svara þessu er nauð- synlegt að rekja í sundur í hverju lífskjör eru fólgin. Enginn deilir um að matur, klæði og húsaskjól með hlýindum séu þættir lífskjara. En á ofanverðri tuttugustu öld er það ljósara en fyrr að fullnæging and- legra þarfa er sífellt stærri hluti. Enginn verður sáttur við sín lífskjör með lífsleiða, með því að leita dag eftir dag eftir einhverju fyrirbæri, sem hann heldur e.t.v. að hægt sé að ná fyrir peninga. En þrátt fyrir við- leitni, fjáreyðslu, leit eftir leit, sem eitthvað skilur þó eftir má ætla, þá er að kvöldi eða morgni óþreyja í sinni. Og þetta er vafalaust miklu algeng- ara nú í fjölbreytni lífsins. Þess vegna er þörf á að rekja málið betur. Ég var að vekja athygli á að óþreyja og lífsleiði fer vaxandi, fer vaxandi í aukinni velmegun. Með vaxandi tekjum, tækni og möguleikum — í einu orði velmegun — færumst við fjær því, sem talið er markmið. Bætt lifskjör! Eða orðum það heldur: Bestu lífskjör! Bestu lifskjör er vel- líðan, jafnvægi í sál og sinni, friður og sátt við sjálfan sig, umhverfi sitt, bjartsýni til komandi dags, öfund og sárindi í annara garð víðsfjarri. Sál- arfriður! Ég held að svonefndar búksorgir séu úr sögunni, eða vona það. En á morgun veit ég að enn verða einhverjir vansælir vegna skuldamála, vegna þess að velferð- aráróðurinn hefir glapið ýmsum sýn, og lagt hefir verið út í kapphlaup um þessi svonefndu bættu lífskjör, án nægilegrar forsjár. Og þar reynast sárindin mest og erfiðast að ná því sálarjafnvægi sem eru í raun: Bestu lífskjör. Það kemur margt í hugann við að velta þessu hugtaki fyrir sér. Ég las fyrir allmörgum árum í bókinni: „Foreldrar mínir“, endurminningar nokkurra fslendinga vestan hafs — í grein sr. Kristins K. Ólafssonar um föður hans og föðurbróður minn. Kristin Ólafsson og Katrínu Ólafs- dóttur. Þar segir svo: „Foreldrar mínir kunnu að komast af með það, sem efnin leyfðu og njóta þess án öfundar gagnvart þeim, er áttu betri kjör, en jafnhliða að beita sér af kappi að bæta haginn. Þetta jafn- vægi virtist lykill að heilbrigði.“ Þessa setningu skrifaði ég á blað fyrir mörgum árum, svo hreif hún mig. Ég hefi geymt blaðið í veski, sem er í vasa mínum að staðaldri, og þótt trosnað sé orðið, er gildi þess, er á því stendur óskaddað af tímans tönn! Alltaf finn ég bergmál þess í brjósti mínu. Og mig langar enn að vitna í samtal er ég átti fyrir um 20 árum við húsmóður eina á Austur- landi. Er samtal þetta fór fram bjó þessi kona í viðunandi húsnæði, með „þægindi“ sem þá voru, svo sem rennandi vatn, heitt og kalt, rafmagnstæki í eldhúsi og til hjálpar í húsfreyjustörfum, frárennsli í skólplögn. En svo sagði hún: en ég veit ekki hvort ég er nokkru ánægð- ari nú, eða sáttari við hlutskipti mitt en þá er ég var að byrja búskapinn fyrir 15-20 árum. Ekkert rafmagn þá, ekkert frárennsli fyrir skólp, vatn þurfti ég að sækja í kjallara, og þá leið líka með skólpið og út, eldivið- 94 Heima er bezt inn þurfti að sækja og svo til viðbót- ar var ég þá að eiga börnin! Þessu samtali hefi ég aldrei gleymt, svo at- hyglivert var það fyrir hógværð og skarpskyggnt mat á lífgildum. Skilningur á mikilvægi starfsins og gildi þess fyrir samfélagið. Fyrir manninn og samfélagið, gildi þess að vera í góðu skapi. Svonefndar tómstundir gáfust þá misjafnt, en þegar þær gáfust þá var bókin nær- tækust. En með auknum tómstund- um hefir hún ekki fyllt sem fyrr í eyður, eða orðið lífsfylling þegar þörfin óx — því miður! Rétt metið er bókin ekki síður en áður markverður þáttur lífskjara. Hér hæfir svo að minna á málsháttinn: Nóg á sá sér nægja lætur. Já, lífskjör! Einn er sá þáttur ónefndur ennþá, sem mér sýnist að hljóti að vera hættulegasta andstæða góðra lífskjara. Það er atvinnuleysi. Atvinnuleysi! Orð, sem veldur mér hrolli, ef hugsun um það nær tökum á mér. Við íslendingar höfum sneitt nokkuð framhjá því. Og í mínum huga er það vottur um stjórnleysi og skilningsleysi á íslenskum skilyrð- um, á skyldum þjóðar við ættjörð sína, og gildi þess að búa í landi mikilla möguleika og mikilla þarfa að leggja vit og strit af mörkum við móður náttúru. Og fullnægja jafn- framt mannsins þörfum fyrir vinn- una, sem í raun eru æðstu gæði lífs- ins, uppspretta bestu lífskjara. Það er þetta sem ég hefi ríka hneigð til að segja af öllum þeim mætti, sem mér er gefinn: Lífskjörin, góð lífskjör, bestu lífskjör eru starfið, vinnan, efling orku, sem hún ein skapar, lifsgleðin, fullnægjan á þrá íslend- ingsins til að vernda og fegra fóstru sína, varpa ljóma bjartsýni á fjöl- skyldu sína, nágranna, umhverfi og vekja með því athygli á íslenskum lífsgæðum, fögru landi, tæru vatni, hreinasta lofti veraldar, blárri himni, nóttlausum vorum. En líka ísköld- um éljum á stundum —„en á samt til blíðu það meinar allt vel“. Hvernig stendur á því að margir sækja vatnið yfir lækinn? íslenska sólskinið er ís- lensk afurð, ódýrari, ánægjulegri. Sólskin, sem hvergi er hreinna. Ég bjó 13 ár á Skriðuklaustri. Bestu ár ævi minnar. Hvergi hefir mér liðið betur. Var það vegna frægðarljóma, sem staðurinn ber frá Gunnari skáldi? Ef til vill var það þáttur. En fyrst og fremst vegna viðfangsefnisins, búskaparins og þeirrar þrotlausu vinnu, sem þarna var hœgt að koma við, sem við- fangsefnið og mitt innsta eðli krafð- ist og orkumestu ár ævinnar féllu saman við. Eftir á gerði ég mér grein fyrir að mestu starfsárin hafi náð hátt á fjórða þúsund stunda. Ef til vill var það helst til mikið og hafi sagt eitthvað til sín síðar, en það var eitt af því sem færði mér bestu lífs- kjör œvinnar. Ég hætti á að segja frá þessu ef það skýrirbetur í einhverra hug inntak þess, sem ég vil segja. — Að hlusta á lækinn, sem hjalar við mosató, teyga smárailminn og horfa með aðdáun á blómaskrúð náttúr- unnar, gefa sig á vald þess óminnis, sem íslensk náttúra í öllum sínum breytileik býr yfir, einnig í hvítum breiðum vetrar, þegar máni og stjörnur sindra í kaldri kyrrð, sem þó verður hlý, þegar við opnum dyr náttúrubarnsins, sem innra með okkur öllum býr! Hvar bjóðast betri lífskjör? Hér er Austfirðingamót. Austur- land er stórt land, mikilla gæða í líf- beltunum tveim. Hvers vegna fjölgar ekki fólkinu þar meira en raun ber vitni? Kristján frá Djúpalæk segir: „Úr Hallormsstaðaskógi ber angan enn í dag“, — þaðan, sem skógar- hjarta íslands slær. Við ströndina er sjór sóttur, þar sem sjómenn „færa björgin í grunn undir framtíðar- höll“, eins og Örn Arnarson orðar það, svo vitnað sé í austfirsku skáld- in úr Bakkafirðinum. Já lífbeltin tvö sem Kristján Eldjárn fyrrverandi forseti minnti svo viturlega á í nýj- ársræðu. Til þess að segja í sem fæstum orðum það, sem innra með mér býr í þessari umfjöllun íslenskra lífskjara, vitna ég í kvæði eftir spekinginn Einar Benediktsson: Sjálft hugvitið, þekkingin, hjaðnar sem blekking, sé hjartað ei með, sem undir slœr. Sú þjóð, sem í gœfu og gengi vill búa á guð sinn á land sitt skal trúa. Þetta eru einhver mestu spá- dómsorð sem íslensk tunga geymir. Ræða flutt á árshátíð Austfirðingafélagsins í Reykjavík þar sem jafnframt var minnst 80 ára afmælis félagsins á Hótel Sögu 23. nóvember 1984. Heima er bezt 95

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.