Heima er bezt - 01.03.1988, Side 3
HEIMA ER
BEZT
3. tbl. 38. árg. MARS 1988 Kr. 200
Steindór Steindórsson frá Hlöðum Þjóðminjasafnið 125 ára Leiðari 74
Bolli Gústavsson í Laufási Guð þarf á liðsauka að halda Rætt við Jón Dan rithöfund 76
Hinrik A. Þórðarson frá Utverkum
Barnakennsla og kuldaskór 83
Margrét Björgvinsdóttir
Kynning á kanadísku
skáldkonunni, Lauru
Salverson, og bók hennar
Játningar landnemadóttur
Sögulegar Ijósmyndir VIII
Tveir torfbæir í
Reykjadal 90
Theodór Gunnlaugsson
frá Bjarmalandi
,,Gamla heyið“
(Bernskuminning) 91
Auðbjörg Albertsdóttir frá Neðstabæ Örnefni í dalnum og gestir í lága torfbænum 94
Einar Friðriksson frá Hafranesi Dýrasögur Síðari hluti 96
Sigurlaug Guðmundsdóttir frá Eyvindarstöðum Kynlegur kvistur 99
Magnús Guðmundsson frá Reyðarfirði Af Forystu-Gránu og afkomendum hennar 101
Soffía Jóhannesdóttir Ast og undirferli Framhaldssaga 7. hluti 103
Steindór Steindórsson frá Hlöðum Bókahilla 107
Forsíðumyndin er af Jóni Dan rithöfundi.
Ljósm.: Árni Sæberg.
erfðafjandi íslensks gróðurlendis, hefir
afhjúpað sitthvað, sem engan grunaði,
og síðast en ekki síst hafa skipulegar
fornleifarannsóknir síðustu ára og
áratuga leitt svo margt í ljós, að það
vekur bæði undrun vora og aðdáun.
Má þar benda á uppgröftinn í Skál-
holti og nú síðast á Bessastöðum og í
Viðey. Og mun þó fjarri fara, að þar
séu öll kurl komin til grafar. En það er
ekki einungis moldin á höfuðbólun-
um, sem geymir fornar minjar. ,,Hver
einn bær á sína sögu“, sagði síra
Matthías. Hvarvetna um land eru
vallgrónar rústir, eða aðrar horfnar í
sand bæði á byggðun bólum og eyði-
býlum. Margt kynni þar að vera, sem
varpað gæti nýju ljósi á sögu vora og
menningu.
Fornleifarannsóknir hafa fram að
þessu að langmestu leyti verið undir
yfirstjórn og umsjá Þjóðminjasafns, og
svo verður vonandi framvegis. Því
tengjast sérfræðingarnir, sem kunna
með slíka hluti að fara af þeirri nær-
færni og kunnáttu, sem nauðsynlegt
er, og þar á að vera fullkomnasti
geymslustaðurinn fyrir slíka hluti. En
til þess svo megi verða þarf að hlynna
betur að því og láta því meiri fjármuni
í té. Þar væri æskileg samvinna ríkis og
einstaklinga.
Eg gat þess fyrr að í Þjóðminjasafn-
inu sé geymd saga vor í munum og
minjum. Því fleira, sem safnað verður
því fullkomnari verður sagan, og
vegna framtíðarinnar má ekki snið-
ganga þá hluti, sem setja svip á störf
samtiðarinnar.
Margt er rætt um þjóðmenningu
vora verndun hennar og viðhald. Til
þess að svo megi verða þarf meira en
orðin tóm, framkvæmdir verða að
fylgja. Þjóðminjasafnið er ein af varð-
stöðvum islenskrar þjóðmenningar við
hlið fornra handrita og skráðra heim-
ilda. Það er eign alþjóðar og ætti að
vera óskabarn hennar um leið.
Nýfengin er heim til landsins forláta
kirkjuklukka, sem lengi hafði verið í
útlegð. Margir munu hafa lagt fram
skerf til þess hún mætti endurheimt-
ast. Þar er fordæmið fengið. Ánægju-
legt væri ef þetta afmælisár yrði upp-
haf almenns áhuga og stuðnings við
könnun og söfnun þjóðminja gamalla
og nýrra, og um leið til stuðnings og
styrktar afmælisbarninu 125 ára
gamla.
St. Std.
Heima er bezt. Þjóðlegt heimilisrit. Stofnað árið 1951. Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Bókaforlag Odds Björnssonar. Ritstjóri: Steindór
Steindórsson frá Hlöðum. Ábyrgðarmaður: Geir S. Björnsson. Fulltrúi ritstjórnar: Bolli Gústavsson í Laufási. Heimilisfang: Tryggvabraut 18-20, pósthólf
558, 602 Akureyri. Sími 96-22500. Áskriftargjald kr. 1.370.00. í Ameríku USD 40.00. Verð stakra hefta kr. 200.00. Prentverk Odds Björnssonar hf.
Heima er bezt 75