Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Side 5

Heima er bezt - 01.03.1988, Side 5
Guð Jón Dan stendur á stéttinni framan við Stóragerði 13, þegar ég hef þrætt götuna á hægri ferð og lesið á númeraplötur. Hann hafði fylgst með ferðum sveitamannsins þar uppi í ásnum og gengið út fyrir til þess að auðvelda honum leit- ina. Þarna stendur hann beinvaxinn, grannur og fíngerður maður og lyftir hendinni brosandi. Vetrarsólin skín á hél- aða jörð, svo stirnir á silfur. Þetta er fagur dagur á þorra og mér kemur ósjálfrátt í huga heimsókn, sem Jón hefur lýst í ljóði, og vona, að samtal okkar verði með öðrum hætti, en það, sem þar er frá greint: Vinur minn segir sérðu þetta land, eymd þess og fátækt, það á sér engin gæði, — engin aldin á trjánum, ekkert sólskin á sumrin, engar perlur í sænum, enga góðmálma í jörð, ekkert gull, ekkert silfur, hvorki demant né safír, bara auðnir og illviðrin hörð. Vinur minn kveður, komið fast að óttu, hvíldinni feginn sæki ég bók að lesa, opna og fletti — heyri klið í lofti, — heyri söngþyt í trjánum, heyri perlurnar niða, er sem sólskinið flæði svo að stirnir á silfur, leiftra safir og demant, glóir skirasta gull. Landið mitt góða, hérna er þitt full. I „Höfundur sem vekur traust“ Ég er hingað kominn til þess að ræða við skáldið um líf þess og list. Jón Dan hefur í nær fjóra áratugi lagt sitt af mörkum til þess að bæta á og krydda það full. sem vand- látir lesendur kneyfa og njóta, og við nefnum bókmenntir. Hann var þó kominn yfir fertugt, þegar fyrsta bók hans, Þytur um nótt, kom út árið 1956, en hafði þá um alllangt skeið glímt við bókmenntaleg viðfangsefni og náð öruggum tökum á vandmeðförnu formi smásögunnar, svo athygli vakti. Árið 1951 hlaut hann þriðju verðlaun í fjölmennustu smásagnasamkeppni, sem efnt hafði verið til hér á landi. á vegum Samvinnunnar. Árið 1955 varð hann fremstur í Jón Dan rithöfundur 76 Heimaerbezt þarf á liðsauka að halda keppni hjá sama tímariti, og samtímis hlaut hann fyrstu verðlaun fyrir smásögu hjá Helgafelli. Þær tvær sögur, sem fengu fyrstu verðlaun eru Jörð í festum og Kaupverð gœf- unnar. Þær birtust ásamt átta öðrum smásögum í fyrr- greindri bók. Gagnrýnendum duldist ekki að fram var kominn athyglisverður höfundur, sem mikils var af að vænta, og m.a. ritaði Bjarni Benediktsson frá Hofteigi af skörpum skilningi um smásögurnar í Þjóðviljann undir fyrirsögninni „Höfundur, sem vekur traust“. Sú einkunn hefur aldrei fallið úr gildi. Bjarni vakti athygli á því, að Jón Dan væri ekki raunsætt skáld „í venjulegri merkingu þeirra orða: ádeila ellegar boðskapur liggur honum fjarri, per- sónur hans rísa ekki af þjóðfélagslegum bakgrunni — þær eru annað hvort fullvaldar af sjálfum sér eða umkomu- lausar fyrir innri rök. Jón Dan lætur sig meira varða rökkvaða launstigu hjartans en lýstar breiðgötur umhverfis og samfélags“. Þarna tel ég, að Bjarni háfi einmitt skynjað rétt afstöðu Jóns og tilgang, sem að ýmsu leyti er í anda heimspekingsins Baruchs Spinoza, sem hæst bar á sautj- ándu öld, en lífsviðhorf hans hefur átt miklu fylgi að fagna á vorum tímum. Af mörgum er hann talinn hið mikla ljós heimspekinnar, sem komist hafi sanni næst um tilveruna. Og hinn virti danski guðfræðingur, N.H. Soe, kemst svo að orði, að það sæti engri furðu, þótt hámenntaðir hugsuðir hafi getað sagt, að spinozisminn myndi verða trúarbrögð framtíðarinnar. Spinoza leggur áherslu á fallvelti þeirra stundlegu gæða, sem hann greinir í þrennt: nautnir, ríki- dæmi og mannvirðingar. Hann leiðir glögg rök að því, að maðurinn finni aldrei fullnægju í þeim, er til lengdar láti. Oftast verða þau þeim að falli, sem hafa tök á þeim, en alltaf þeim, sem þau fá tökin á. Að áliti Spinoza er það hin skapandi náttúra, er kemur skipulagi á heiminn og allt, sem í honum er, og veldur því, að allt sem fyrir kemur, er háð ákveðnum, órjúfanlegnm lögmálum. Að skilja Guð og öðlast þekkingu á honum, er því sama og að kynnast lögum náttúrunnar og semja sig að þeim og jafnframt að komast til viðurkenningar á sannleikanum og sætta sig við allt það, sem hann kennir okkur. Það kemur fram í minningabókum tveggja skáldbræðra Jóns Dan, þeirra Jóns Óskars og Hannesar Sigfússonar, að hann hafi dáð mjög heimspekinginn Spinoza og kynnt sér verk hans af kostgæfni. Það kemur því ekki á óvart, að hann velur fyrstu bók sinni einkunnarorð úr þeim verkum, er þannig hljóða: ,,Anauð kalla ég vanmátt mannsins til að stjórna tilfinningum sínum eða halda þeim í skefjum. Því sá, sem er á valdi tUfinninga sinna, er ekki sjálfum sér ráð- andi... “ Þetta ber þeim að hafa í huga, sem kryfja verk þessa agaða höfundar til mergjar. Ég tel einsýnt, að það muni þykja verðugt viðfangsefni. Og hver, sem á þess kost að sitja með Jóni Dan og ræða við hann, kemst fljótt að sóttur heim á þorra Heima er bezt 77

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.