Heima er bezt - 01.03.1988, Page 6
Þetta er líkan af bernskuheimili Jóns Dan, að Brunnastöðum
á Vatnsleysuströnd. Þar fæddist Jón þann 10. mars 1915. For-
eldrar hans voru hjónin Jón Einarsson útvegsbóndi og Margrét
Pétursdóttir. Líkanið af Brunnastöðum gerði Eggert Guðmunds-
son listmálari.
raun um, að þessi afstaða hans er engin tilgerð. Maðurinn
er heill og agaður — hógvær og skarpskyggn. Afstaða hans
til lífsins og höfundar þess kemur í ljós, þegar við höfum
setið góða stund í vistlegri stofu þeirra hjóna, Halldóru
Elíasdóttur og Jóns. Þá höfðum við vikið tali að síðustu
skáldsögu hans, „1919 Árið eftir spönsku veikinasem út
kom á liðnu ári. Fæstum mun dyljast, að sú saga er byggð á
bernskureynslu Jóns á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd.
Þar greinir frá merkilegri konu, Valgerði, sem tók að sér
heimili ekkjumanns, þ.e. föður Jóns, en fimm ungir drengir
eru á heimilinu, og faðirinn deyr síðan frá öllum hópnum á
vordögum eftir langa vist á sjúkrahúsi. Sagan greinir fyrst
og fremst frá starfi og hugarheimi Valgerðar, auk þess sem
hún lýsir heimilinu og nágrönnunum. Og ég vík talinu að
þessari sérstæðu konu, sem var um margt eins og trúr
lærisveinn heimspekingsins hógværa, en þó óvitandi um
tilvist hans.
II
Trúir þú á Guð?
Valgerður minnist nokkrum sinnum á trúmál. Og bænir.
Það gerir Einar líka. Er Valgerður strangtrúuð?
Já. Hún leyfir sér ekki að biðja Guð að gera henni greiða,
hvorki í smáu né stóru. Allt verður að fara að guðsvilja.
„Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ Ég held að eina
hjálpin sem hún getur þegið af Guði sé sú að hann gefi
henni hið daglega brauð, fyrirgefi henni syndirnar og leiði
hana ekki í freistni. Vegni henni vel hefur það verið guðs-
vilji, um slíkt var aldrei beðið. Þetta hefur henni verið
innrætt í barnæsku og út af því getur hún ekki brugðið. En
þegar hún verður þess vör að Einar biður Guð að láta
Jóhanni batna, þá hvetur hún hann. Hún grípur í það
hálmstrá að Einar sé barn og geti þess vegna leyft sér að
koma á framfæri við Guð sinn bænakvaki sem ekki sé alveg
í samræmi við trúarlærdóminn. Að óska og vona, það er
svo annað mál.
Já. En hvað um höfundinn? Einföld spurning: Trúir þú á
Guð?
Einfalt svar: Já. En Guð minn er ef til vill ekki Guð þinn
eða nokkurs annars manns. Hann er algóður og kannski
alvitur. En ekki almáttugur. Þess vegna þarf hann á liðs-
auka að halda. Að trúa á Guð, það er aðferð mín til að
leggja hinu góða lið.
Viltu útskýra þetta.
Já. Ég held við getum verið sammála um að hið góða eigi
heldur erfitt uppdráttar í heiminum. Guð er i'mynd hins
góða. Hann á því í stöðugri baráttu við illskuna. Hann þarf
á hjálp okkar að halda. Hann þarf fleiri liðsmenn. Sérhver
maður sem reynir að auka veg hinna góðu afla og koma í
veg fyrir útbreiðslu þess sem er illt, hann leggur Guði lið.
Kemur þetta fram í bókum þínum?
Jón Dan á yngri árum.
78 Heima er bezt