Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Síða 10

Heima er bezt - 01.03.1988, Síða 10
Jón Dan á gangi með Valgerði dóttur sinni í erlendri stórborg. tilleiðast. En samkvæmt Parkinsonlögmálinu jukust umsvif sjóðsins fljótlega, hann fluttist í stærra húsnæði og brátt var ég farinn að starfa allan daginn. Þegar þannig var komið, sá ég að við svo búið mátti ekki standa, svo ég hætti með öllu árið 1982 og sneri mér alveg að þeirri iðju, sem hefur alltaf staðið hjarta mínu næst. Af þessari upptalningu má ráða, að ég hef lengst af lifað í tveim heimum sem embættis- maður og rithöfundur. Þeir heimar voru með öllu aðskildir. Ég skildi skáldskapinn eftir heima og embættiserillinn varð alltaf eftir niðri í Arnarhvoli. V Skógræktaráhugi Hér heima naut ég næðis við ritstörfin og Halldóra kon- an mín hefur alltaf verið besti ráðunautur minn. Hún hefur næma tilfinningu fyrir íslensku máli, ólst upp við fagurt og trútt tungutak. Við erum svo lánsöm að eiga fjögur vel gerð böm. Elst er Valgerður leikkona, sem er gift Þorsteini Gunnarssyni arkitekt og leikara. Þá er Þuríður, sem nam í Handíða- og myndlistarskólanum og starfar sem textíl- hönnuður. Maður hennar er Guðmundur Rúnar Brynj- arsson húsasmiður. Og næstur er Þórir Dan, sem lærði fyrst vatnalíffræði með fiskeldi í huga og starfaði hjá Laxalóni. En síðar nam hann tölvufræði og hóf starf sem kerfisfræð- ingur hjá Skýrsluvélum ríkisins fyrir ári. Kona Þóris er Auður Ingólfsdóttir fóstra og kennari. Yngsta dóttir okkar er Margrét Dan, sem er einkaritari hjá Landsvirkjun. Hún er gift Jóni Hróbjartssyni, en hann starfar hjá Sjóvá. — Við Halldóra byggðum okkur lítið sumarhús upp við Rauða- vatn. Fjölskyldan hjálpaðist að við þá byggingu. og m.a. handhrærðum við Valgerður dóttir mín steypuna í grunn- inn. Bústaðnum fylgir dálítill landskiki og þar hef ég fengið útrás fyrir ákafan skógræktaráhuga og við höfum gróður- sett þar skóg, sem hefur tekið ótrúlegum framförum í ár- anna rás. Þarna efra eigum við oft unaðsstundir og börnin og fjölskyldur þeirra njóta þess að vera þar með okkur gömlu hjónunum. Og nú getur þú gefið þig óskiptan að ritstörfum. Já, næði hef ég nú og viðfangsefni skortir ekki, hvað sem afköstum líður. Þó er ljóst, að skemmra hefur verið á milli útkomu bóka minna að undanförnu. Frá árinu 1977 eða á tíu árum hef ég sent frá mér fimm skáldsögur og eina ljóðabók. En tíminn verður að leiða í ljós hvert framhaldið verður. — Það líður á daginn og við Jón Dan hefðum sjálfsagt getað haldið áfram að spjalla saman fast að óttu. en kunn- um okkur hóf og fellum niður tal nær miðaftni. Skáldið fylgir mér út á varinhelluna og brosmildur veifar hann sveitamanninum, sem er nú kunnugri byggðinni uppi á Grensásnum og ekur hiklaust á braut. Bolli Gústavsson í Laufási. — Hjónin, Halldóra Elíasdóttir og Jón Dan, framan við sumarhús- ið við Rauðavatn. 82 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.