Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 22

Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 22
Auðbjörg Albertsdóttir frá Neðstabæ • • Omefni í dalnurn og gestir í lága torfbænum ,,.Einn fagran sumardag koma fjórir menn ríð- andi neðan dalinn, með marga lausa hesta sem renna veginn á undan fylgdar- manninum“ Eftir nýár fóru aftur að koma gestir, strax annan janúar. Það voru skóla- piltar frá Hólum í Hjaltadal. Þeir höfðu farið vestur í sýslu heim til sín í jólaleyfinu en voru nú aftur að fara norður að loknu jólafríi. Skólapiltar voru alltaf gangandi. Þeir komu við á Neðstabæ að hvíla sig og fá hress- ingu; þeir komu vanalega við í báð- um leiðum. Þá voru það skólastúlkur frá Kvennaskólanum á Blönduósi. Stúlkurnar voru úr Skagafirði og höfðu einnig farið heim í jólafríi. Oft voru þær fluttar á hestum ef færi var gott. Margir Skagfirðingar þekktu foreldra mína og þeir komu alltaf við til að hvíla hestana og fá kaffi. Allt þóttu þetta aufúsugestir og ekki nema sjálfsagt að taka vel á móti þessu skólafólki og fylgdar- mönnum þess. Þetta var ungt og kátt æskufólk og flutti með sér hressandi blæ inn í baðstofuna á Neðstabæ. Þetta var nokkurs konar skemmti- legur endir á jólunum. Svo voru það alþingismennirnir sem komu alltaf í byrjun febrúar á leið suður á þing. Þá ferðuðust allir á hestum og þeir voru oft með marga hesta. Alltaf kom Jón Sigurðsson al- þingismaður á Reynistað. Jón var fríður og glæsilegur maður og hann var líka bóndi og bjó stórbúi á Reynistað. Hann korn alltaf við á Neðstabæ, bæði þegar hann fór á þing eða kom af þingi á vorin í maí. Stefán Stefánsson bóndi og alþingis- maður í Fagraskógi kom líka, þeir Jón voru oft samferða og höfðu stundum fylgdarmann. Einu sinni komu þeir í stórhríð og settust upp og gistu með marga hesta. Þá þurfti að losa hesthúsið til þess að geta hýst aðkomuhestana og gefið þeim. Það var mikil umferð á þessum árum bæði af ríðandi og gangandi ferðamönnum, og ekkert síður yfir sumarmánuðina, þá var mikil umferð um dalinn. Oft voru það hópar ríðandi fólks með marga hesta eða kannske aðeins einn eða tveir saman. Þetta var alfaraleið milli Blönduóss og Sauðárkróks áður en bílvegurinn yfir Vatnsskarð kom. Einn fagran sumardag koma fjórir menn ríðandi neðan dalinn, með marga lausa hesta sem renna veginn á undan fylgdarmanninum. En þar sem vegurinn beygir ofanað ánni við túngirðinguna á neðsta bænum í dalnum þá blasir iðgrænt bæjarnesið við, grasið og árniðurinn freistar hestanna og þeir snarbeygja ofanfyr- ir veginn og dreifa sér um nesið, áður en meðreiðarsveinninn og ferða- mennirnir átta sig. En mennirnir sjá strax að þarna er gott að æja hestun- um, svo þeir fara af baki og spretta af reiðhestunum sem strax velta sér í næsta moldarflagi en mennirnir labba undir brekkuna og setjast þar niður. Þarna var á ferð fyrsti ráð- herra íslands, Hannes Hafstein. Hann var bæði fríður og föngulegur og ástsælt skáld Islendinga og hann vakti athygli hvar sem hann kom. En þegar hann nú situr þarna vígir hann brekkuna fallegu örnefni með nær- veru sinni, því eftir þennan dag var brekkan aldrei kölluð annað en Ráð- herrabrekkan af fólkinu í dalnum. Það voru æði margir ferðamenn sem áðu undir Ráðherrabrekku vor og sumar meðan þeir ennþá voru á ferð á hestum. Þannig urðu örnefnin til, þau tengdust frægum mönnum, fall- egu landslagi eða atvinnuháttum og vinnu fólksins t.d. Torfmýrin, þar sem torfið var rist á heyin, Mómelur- inn þar sem mórinn var þurrkaður í eldinn, Taðlautin o.s.frv. Hver 94 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.