Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Side 23

Heima er bezt - 01.03.1988, Side 23
r 'Kjfineí^r blettur átti sína sögu, hver laut sitt fallega nafn, kannski blómanafn eins og Blágresislautin og Brönugrasa- bollinn, en því miður eru þessi nöfn að hverfa, örnefnin í sveitinni, þegar jarðirnar fara í eyði. Sumarið 1906 skeði merkilegur áfangi í sögu sveitarinnar og dalsins. Þá var lagður talsími frá Sauðárkróki til Blönduóss. Við símalagninguna unnu margir menn. En aðeins voru þrír Islendingar af þeim, hinir voru Norðmenn og yfirmaðurinn var úr þeirra hópi, hann hét Óli Fossberg. Símalínan var lögð sunnanmegin í dalnum stutt frá ánni. Og þar tjöld- uðu þeir líka í stórri grænni lautu. Eftir að þeir tóku tjöldin upp og fóru þaðan var lautin kölluð Tjaldabæli. Að leggja þennan síma hefur verið bæði seinlegt og erfitt verk. Sérstak- lega að koma símastaurunum yfir fjöllin, sem eru tvö Þverárfjall og Kolugafjall nær Sauðárkrók. Senni- lega hefur staurunum verið ekið á ís að vetrinum upp Norðurá sem renn- ur eftir Norðurárdal. Ég hef heyrt frá áreiðanlegum heimildum að það hafi staðið mikill styr um þessa símalagn- ingu. Mér er ókunnugt um matseld hjá Norðmönnunum, en þeir höfðu matreiðslumann í tjöldunum, og mjólk og skyr keyptu þeir hjá for- eldrum mínum og þá var mjólkur- potturinn seldur á 12 aura. Alltaf kom norskur piltur eftir nýmjólk- inni, hann hét Jörgen Foss og var að- eins 18 ára. Foreldrar mínir fóru stundum með kaffi til símamann- anna, komu þeir þá yfir ána, og var sest niður á túninu til að drekka. Norðmennirnir kunnu vel að meta kaffið og gestrisni foreldra minna. Enda urðu þeir góðir kunningjar þeirra á meðan þeir dvöldu við síma- lagninguna í dalnum. Oft höfðu þeir talað um að mjólk- in væri góð og eftir að þeir fluttu tjöldin úr dalnum og niður í sveitina, kom Jörgen stundum og sótti mjólk á brúsa til foreldra minna. Þegar símamennirnir voru búnir að leggja símann eftir dalnum, þá höfðu þeir erfiðasta hjallann að baki, þeir voru búnir að leggja símalínuna yfir tvo erfiða fjallvegi og svo Norðurárdal- inn, en eftir það var frekar stutt og greiðfær leið til Blönduóss enda var þá sumarið næstum liðið. En Jörgen Foss átti eftir að koma aftur í dalinn, því um haustið varð hann eftir á Blönduósi og tók að sér að passa símann um veturinn. En það var að ganga með símalínunni og gera við ef eitthvað bilaði sem oft kom fyrir í vondum veðrum um vet- urinn. En á þeim ferðum kom hann alltaf að Neðstabæ til að hvíla sig og fá kaffi. Eins gisti hann ævinlega ef eitthvað var að veðri t.d. hríð. Þá kom einnig með honum annar norsk- ur maður sem hét Jón Nýmann. Hann hélt til á Sauðárkróki og tók að sér að fara með símalínunni vestur yfir Kolugafjall og Þverárfjall til Norðurárdals á móti Jörgen Foss. Þessir tveir norsku menn voru iðu- ,,Sumarið 1906 skeði merkilegur áfangi í sögu sveitarinnar og dalsins. Þá var lagður talsími frá Sauðárkróki til Blönduóss“ lega báðir næturgestir í litlu baðstof- unni á Neðstabæ fyrir 80 árum. Þetta voru kátir og elskulegir piltar en meira veit ég ekki um þá. Vonandi hefur hamingjan fylgt þeim aftur heim til Noregs. Næsta vetur tóku menn frá Blönduósi við að ganga með síman- um á veturna og voru það röskir og duglegir menn sem tóku það að sér. Þeir voru einnig marga nótt á Neðstabæ - en það er önnur saga. Heima er bezl 95

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.