Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Page 24

Heima er bezt - 01.03.1988, Page 24
V Ég átti einu sinni kú sem hét Bílda. Hún var hvít með svarta bletti á fótum og kringum augun. Hún var mesta eftirlæti allra, sem kynni höfðu af henni, því að hún var afbragðs mjólkurkýr, góðlynd, þokkaleg á bás og því ávallt eins og sparibúin. Hún var svo kálfelsk, að hún tók að sér alla kálfa, sem gengu með kúnum í haga, sleikti þá og beið eftir þeim ef þeir drógust aftur úr í rekstri, eða hikuðu við, ef þeir komu að einhverju, sem þeim þótti ekki árennilegt yfirferðar. Var sama hvort hún átti sjálf kálfana eða aðrar kýr. Bílda var mjög mannelsk og gátu kunnugir tekið hana í haga hvar sem var, enda mætti hún aldrei nema góðu af mönnum. Eitt sinn ól ég sem oftar kvígu undan henni. Var hún silfurgrá að lit og að öllu hin ásjálegasta. En sá var galli á henni, að er hún eltist og tími var til kominn gat hún aldrei hafnast. Vildi ég samt ekki lóga henni vegna þess að hún var alveg sérstaklega álitlegt kýrefni að allra dómi. Hugði ég að hennar tími hlyti að koma. Þegar hún var næstum þriggja ára gömul ákvað ég þó að farga henni. Þetta var seinni hluta sumars. Samdi ég við Jón Davíðsson verslunarstjóra á Fáskrúðsfirði að kaupa kjötið af henni, og skyldi hann sækja það einhvern tíma er hann sendi bát að Vattarnesi eftir fiski. Átti hann að láta mig vita þegar bát- urinn færi, svo að ég gæti haft allt tilbúið er hann kæmi. Svo var það dag nokkurn fyrir hádegi að Jón hringdi og tilkynnti, að báturinn væri á leiðinni. Brá ég strax við og sendi mann eftir kvígunni, sem var í haga með hinum kúnum. Voru þær skammt fyrir utan bæinn, en þó í hvarfi við hann. Gekk vel að ná kvígunni, sem var orðin því vön að láta taka sig þannig, því að oft hafði hún verið tekin þar og leidd undir tarfa á öðrum bæjum, þótt aldrei kæmi að gagni. Kýrnar voru líka vanar því að hún væri leidd burtu frá þeim og fengust eigi um. Eins fór að þessu sinni, að þær skeyttu því engu. Þegar komið var með kvíguna stóðum við tilbúnir að slátra henni. Skaut ég hana strax á bala utan við hlaðvarp- ann. En um leið og skothvetturinn bergmálaði í klettunum. kvað við hátt og skerandi baul. Varð okkur þá litið út með hjallanum ofan við bæinn og sáum hvar Bílda kom hlaup- andi á harða spretti. Var hún óðar komin á hæð ofan við bæinn, þar sem sá heim. Þarna stansaði hún og mændi heim til bæjar. Hefir hún án efa séð, hvað þar var starfað, þó dálítil vegalengd sé á milli. Átti nú að reka hana það- an, en hún vildi hvergi fara. Stóð hún allan daginn til kvölds þarna á hæðinni og leit ekki í jörð. Var að sjá að hún væri í djúpum hugleiðingum. Nú kann einhver að segja, að hún hafi orðið hrædd er hún heyrði skotið, og ætlað að flýta sér heim í fjós. En hvers vegna fór hún þá ekki lengra? Og ekki voru kýr á beit við Reyðarfjörð á sumrin óvanar skothljóði. Nei, henni hefir áreiðanlega orðið hugsað til barnsins síns, sem nýbúið var að sækja í hagann til hennar, og örlaga þess, þegar skot- hvellurinn kvað við. VI Á unglingsárum mínum á Þernunesi átti faðir minn jafnan um 40 sauði eldri en veturgamla. Hafði hann þá í beitarhúsi niður við sjó milli Beruness og Þernuness. Var um 15 mín. gangur þangað að heiman frá okkur. Ég hafði það á hendi nokkra vetur að gæta þessarar litlu hjarðar, og á margar skemmtilegar minningar í sambandi við það. Þótti mér sérstaklega gaman að standa yfir þeim á krafstursjörð og einkum þegar moka þurfti fyrir. Þá eltu þeir mig, sem hafði reku í hendi, og brutu af miklum dugnaði út frá holum þeim er ég bjó til, ofan í hreina og mjúka rótina í lyngi og kjarri vöxnum haganum. Meðal þessara sauða var um mörg ár einn grár, sem bar nafnið Forustugráni. Ekki var Gráni neinn sérstaklega mikill garpur í rekstri þegar ófærð var. Hafði þó oftast forustu ef hann var hvattur til þess og sæmilega stóð í bæli hans. En svo mikið vald hafði hann yfir þessum sauðahóp. 96 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.