Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.03.1988, Blaðsíða 28
líka spurði hann oft um margt sem manni fannst undarlegt að svo gáfað- ur maður hefði áhuga á að vita um, jafnvel slúðursögur. Vildi sem sagt vita allt. Rétt eftir að heimsstyrjöldin byrjaði 1914 skrapp mamma inn að Vindfelli, því við vorum þá aðeins búin að fá óljósar fregnir um að styrjöld væri skollin á. Við vissum það ekki með vissu, því dagblöð bárust þá ekki út á land nema í mesta lagi á hálfsmánað- ar fresti, en hún vissi að Gísli myndi vera búinn að fá áreiðanlegar fréttir af því. Ég fékk að fara með henni. Allhár háls er á milli bæjanna, en þegar honum sleppir taka við tvær votlendisgrundir. Tvær smáár aðskilja grundirnar, heitir önnur Hamarsá, en hin Stekkjará. Stekkjaráin var brúuð, enda miklu stærri. Hún er einnig nær bænum á Vindfelli, en þó æði spöl frá bænum. Er við vorum komnar yfir Stekkjarána sá mamma að maður sit- ur utan við bæinn á Vindfelli og er að dengja ljá. Kenndi mamma þar fljótt Gísla, því hún sá mjög vel. I sama bili heyrum við að Gísli kallar með ógur- legri þrumuraust svo bergmálaði í fjöllunum, en hann hafði mjög háan og sterkan róm: „Ja, nú eru mikil tíð- indi, Þorbjörg mín, það er komið ógurlegt stríð.“ Ég sem alltaf hef verið fljót að taka eftir öllu broslegu átti afar bágt með að hlægja ekki að þess- um hrópum í Gísla, en mamma bannaði mér það harðlega. Vissi sem var að Gísli var dálítið spéhræddur og vildi ekki styggja hann, en hún gat alltaf stillt sig um að hlægja ef hún ætlaði sér það. Mun henni þó hafa þótt þetta atferli Gísla æði broslegt. Á meðan á styrjöldinni stóð var Gísli alltaf að fara inn á Kolbeins- tanga, en svo heitir Vopnafjarðar- kauptún, til að fá fréttir af stríðinu. Sími var þá hvergi í sveitinni nema á prestssetrinu Hofi, en þangað var mun lengra að fara. Kom hann svo alltaf úteftir til okkar til að segja okk- ur nýjustu fréttir. Gísli fylgdist alltaf með gangi stríðsins af lífi og sál. Hélt hann alltaf með Englendingum en bölvaði Þjóð- verjum í sand og ösku, kallaði þá bölvaða Húna og villimenn og öllum illum nöfnum. Mamma gerði það þá stundum af glettni að látast taka svari Þjóðverja, sagði þá marga íslandsvini og mikilhæfa menn, en þá sagði Gísli jafnan: „Það er vöntun í þig, Þorbjörg mín, að þú skulir geta haldið með bölvuðum Húnunum og er það óskiljanlegt með svo gáfaða konu.“ Hann hélt einnig mikið upp á Frakka og hældi þeim á hvert reipi. Þótti sumum sem það sýndi sig að honum rynni blóðið til skyldunnar er hann hældi þeim sem mest. Man ég ennþá hvað hann dáði Napóleon Bónaparte mikið. Einu sinni um hásumar komu til okkar tvær enskar konur, sem ferð- uðust fótgangandi um landið. Þær höfðu gist á Vindfelli nóttina áður, en komu til okkar til að hvíla sig áður en þær legðu á hina illræmdu Hellisheiði og drukku kaffi hjá okkur. Þær voru báðar kennarar við háskólann í Cam- bridge og var önnur þeirra skólastjóri við þann skóla. Hún hét Bertha Philp- otts, en nafni hinnar hef ég gleymt. Philpotts talaði íslensku reiprennandi, hafði lesið mikið íslenskar bók- menntir og meðal annars öll fornritin, íslandsvinur mikill og var heiðursfé- lagi Hins íslenska bókmenntafélags. Hin talaði ekki íslensku, en skildi hana augsýnilega. Philpotts talaði mik- ið við mömmu og meðal annars talaði hún um hvað gestgjafi þeirra, Gísli á Vindfelli, væri afburða fróður og gáf- aður. Það hefði verið alveg sama um hwað tal þeirra hefði verið, hvort það hefði verið um íslandssögu, landa- fræði, mannkynssögu eða hvað annað sem hún hefði talað við hann, alls staðar hefði hann verið jafn vel heima. Sagði hún að fátítt væri að hitta fyrir slíkan mann og sem væri þá líka alveg ómenntaður. En þó hann væri svona afburða gáfaður og fróður þá var hann eins og ég hef sagt mjög sérkennilegur og barnalegur í aðra röndina. Einu sinni var Jón í Múla alþingis- maður á ferð um Vopnafjörð og var annar maður með honum. Þeir gistu á Vindfelli og var Jón eins og aðrir mjög hrifinn af gáfum Gísla og hve skemmtilegur hann væri. Þegar þeir svo fóru daginn eftir, fylgdi Gísli þeim á leið, sem vani hans var alltaf að gjöra við gesti. Þegar hann svo loks þóttist hafa fylgt þeim nógu langt, kvaddi hann þá með virktum og hélt heimleiðis. En ekki hafði hann langt farið þegar hann mundi eftir að það var nokkuð sem honum hafði láðst að spyrja Jón um og kallaði til Jóns með sinni voldugu þrumurödd og sagði: „Heyrðu Jón, hvað kostaði húfan þín?“ Jón nefndi verðið. En þetta var um hávetur og kalt í veðri og hafði Jón loðhúfu á höfði. Þá hélt Gísli áfram, en þar sem hann var svo hátal- aður og talaði auk þess oft við sjálfan sig heyrðu þeir að hann sagði: „Já, þessir geta það, þeir þurfa ekki að spara allt eins og við hinir.“ Jón sagði frá þessu og hafði gaman af, en ekki til þess að sverta Gísla, heldur aðeins af þvi að honum þótti kynlegt hvað þessi óvenjulega gáfaði maður hafði marg- slungið lundarfar. Þá fer ég að láta þessu lokið. Nú er allt þetta fólk, sem ég hef talað hér um horfið yfir móðuna miklu, sem við verðum öll að fara yfir og bráðum man enginn neitt eftir því. En ef líf er að loknu þessu, sem ég fyrir mitt leyti efa ekki að sé, þá vona ég að ég fái að hitta það allt, og ég hlakka til þess. Árið 1969 lá ég í sjö mánuði á Landspítalanum og var skorin marga og stóra holskurði. Ég var því oft mjög veik. Fékk þó aldrei óráð eins og margir skurðsjúklingar fá, nema einu sinni litla stund. Þá sagði hjúkrunar- konan sem var hjá mér að ég hefði sagt i óráðinu: „Nú fer mér að batna, hann Gísli ætlar að hjálpa mér.“ „Hvaða Gísli?“ sagðist hún hafa spurt. „Hann Gísli á Vindfelli,“ svar- aði ég. Skömmu síðar fór mér að batna smátt og smátt, en um tíma var mér ekki hugað líf. Svona er það, vináttan virðist ná út yfir gröf og dauða, ef hún er sönn og einlæg. Gísli var tryggur vinur þótt hann þætti hringlandasamur í skoðunum. Hann var einn af þessum kynlegu kvistum sem nú eru ekki lengur til. Við jarðarför Gísla var ort: Það votta mun hver vinur þinn, þér voru of fáir líkir. Þá væri hún önnur veröldin ef væru fleiri slíkir. 100 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.