Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 32

Heima er bezt - 01.03.1988, Qupperneq 32
Rut reyndi að jafna sig, en átti erfitt með að tala fyrir ekka. ,.Þú ... þú . .. getur ... sa .. . sagt... honum hvað sem .. . sem þú vilt.“ Lilja þóttist hugsa sig um andartak. „Á ég að segja honum að kærastinn þinn hafi verið að koma til landsins, eða eitthvað í þá áttina.“ „Mér er sama. Losnaðu bara við hann eins fljótt og þú getur.“ „En viltu ekki skrifa honum nokkrar línur. Það er ekki víst að hann trúi mér.“ Rut kinkaði kolli og Lilja sótti blað og penna. „Hvað á ég að skrifa?“ spurði hún skjálfrödduð. „Ég veit það ekki,“ sagði Lilja hægt „Þú getur skrifað eitthvað á þá leið að öllu sé lokið á milli ykkar, og þú viljir aldrei sjá hann framar. Nú, svo geturðu sagt að það sé annar maður í lífi þínu, sem þú elskar.“ Rut skrifaði þetta á blað og rétti Lilju það ásamt mynd- inni. „Það er best að henda henni,“ sagði Lilja. „Þú verður að láta hann halda að þú vitir ekkert um hjónaband hans.“ „Mér er sama,“ sagði Rut bitur og grúfði sig niður í koddann. Lilja gekk fram og lokaði hurðinni. Andlit hennar ljóm- aði af sigurbrosi. Hún var ánægð með verk sitt. Henni hafði tekist að spilla sambandi Rutar og Hlyns. Nú var aðeins að bíða eftir komu Hlyns. Lilja þurfti ekki að bíða lengi eftir honum. Þegar hann spurði eftir Rut, rétti Lilja honum bréfið með döprum svip sem hún gerði sér upp, og sagði að hún væri ekki heima. „Ekki heima?“ endurtók Hlynur undrandi. „Veistu hvar hún er?“ „Nei,“ sagði Lilja döpur. „Hún fór með manni sem hún nefndi kærastann sinn.“ Hlynur starði forviða á hana. „Kærastann sinn“, át hann upp eftir henni. „Ég hélt að ég væri hann.“ „Mér þykir það leitt. Ég vissi þetta ekki fyrr en hann kom núna áðan. Hann hefur verið utanlands að læra eitthvað.“ Hlynur þakkaði fyrir og fór. Spor hans út í bílinn voru þung. Rut trúlofuð öðrum manni, hugsaði hann bitur. Hún hefur þá verið að leika sér að mér allan tímann. Hann las bréfið í bílnum og svipur hans lýsti miklum sársauka, þegar því lauk. Rut hafði þá svikið hann. Öll hennar ást hafði aðeins verið uppgerð. Hún hafði bara verið að stytta sér stundir, þar til hennar útvaldi kæmi heim. Hlynur kreppti hnefana í vanmáttugri reiði. Hún hafði svikið hann og hún gat ekki einu sinni verið svo heiðarleg að segja honum það sjálf, heldur lét hún vinkonu sína vinna skítverkin fyrir sig. Auðvitað þorði hún ekki að horfa framan í hann. Guð minn góður, hugsaði Hlynur, fullur vonbrigða. Af hverju léstu þetta ske. Ég sem hélt að hún væri svo heiðarleg og góð, en í rauninni er hún ekkert betri en Lilja. Ég vildi að ég gæti hatað hana, en hún er eina stúlkan sem ég hef elskað, og mun nokkurn tíma elska.“ Hlynur ók heim til sín. Þegar inn kom settist hann niður, gjörsamlega yfirbugaður og huldi andlitið í höndum sér. Hann leyfði tárunum að renna óhindrað niður kinnarnar. Hann var niðurbrotinn. Aldrei á ævinni hafði hann orðið fyrir eins miklum vonbrigðum og núna. Þetta var þungt áfall fyrir hann. Drottinn minn, hvað hann hafði verið heimskur. Hún hafði sennilega hlegið að honum í hvert sinn, sem hann sneri baki í hana. Hún hafði áreiðanlega skemmt sér vel yfir ástarjátningum hans og bónorði. Hún hlýtur að vera afbragðsleikkona, fyrst henni tókst að gabba mig svona. Hlynur rifjaði upp samverustundir þeirra og reyndi að koma auga á atriði, sem gátu varpað skugga á Rut, en fann ekkert. Hún hafði alltaf verið svo yndisleg, blíð og góð. Hún hafði ekki einu sinni verið með karlmanni áður, það vissi hann sjálfur. Því meir sem hann hugsaði, því betur sá hann hve snilldarlega hún hafði leikið á hann, og því varð gremja hans meiri. Ef hann ætti einhvern tíma eftir að hitta hana aftur, skyldi hann sýna henni að honum stæði á sama um hana. Hún skyldi aldrei fá að vita að hann elskaði hana og honum sárnaði óskaplega svik hennar. Nei, hann skyldi sýna henni kulda og fyrirlitningu. Hún átti ekki betra skilið af honum. Nú væri hún sennilega í örmum þess sem hún elskaði. Og í huganum myndi hún gera grin að heimsku hans. En Rut var ekkert grin í huga. Hún var hætt að gráta. Táralindir hennar voru þrotnar þessa stundina. Henni fannst hún vera galtóm. Það var eitthvað hyldýpi sem hafði opnast hið innra með henni. Lilja var óskaplega hugulsöm og góð við hana, en það gæti enginn mannlegur máttur lokað hjartasári hennar. Hún gat ekki skilið hvers vegna Hlynur hafði farið svona bak við hana. Hún sem hafði gefið honum sig sjálfa og alla þá ást sem hún átti til. Ó, góður guð, hugsaði hún bitur. Af hverju léstu þetta koma fyrir mig? Af hverju léstu Hlyn vera svona? Ég hélt að hann elskaði mig. Hann notaði mig bara sem dægrastyttingu, af því að konan hans var langt í burtu. Hann laug að mér og þóttist elska mig. Þetta bónorð hans var bara blekking, til að mig grunaði ekkert. Nú skil ég af hverju hann vildi bíða með að kynna mig fyrir fólkinu sínu. Auðvitað ætlaði hann ekkert að gera það. Þessi marg umtalaði ágúst-mánuður var auðvitað til þess ætlaður að hætta á sjónum og fara til eiginkonu og sonar. Hann hafði áreiðanleg skemmt sér vel á hennar kostnað þegar hún sá ekki til. Hún væri heldur ekki fyrsta viðhaldið hans, það var hún viss um. Hann var svo myndarlegur að hann gæti fengið hvaða stúlku sem hann vildi. Og ekki skorti hann fagurgalann. Hvernig gat ég verið svona blind, hugsaði Rut niðurbrotin. Ég hefði átt að hlusta á Lilju. Hún hafði rétt fyrir sér allan tímann, en ég vildi ekki trúa því. 7. kafli Dagarnir, sem nú fóru í hönd voru erfiðir fyrir Rut. Hún var hætt að gleðjast og grét sig í svefn á hverju kvöldi. Lilja reyndi að hressa hana, en ekkert dugði. Þegar þetta hafði 104 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.