Heima er bezt - 02.10.1992, Page 6
NÝJAR BÆKUR
DR. ÖRN ÓLAFSSON:
KÓRALFORSPIL
HAFSINS
Titill þessa rits er tekinn úr
Dymbilvöku Hannesar Sigfússon-
ar og á að sýna viðfangsefnið,
módernisma í íslenskum bók-
menntum fram eftir þessari öld.
Ritið skiptist í tvo meginhluta, því
fyrst er fjallað um ijóð en síðan
um lausamálsrit. Þessi skipting
helgast af mismunandi aðferðum
bókmenntagreina, enda þótt
sömu skáld komi fyrir í báðum
hlutum.
Bók 21 HEB-verð kr. 2540
CHRISTOPHER ANDERSEN:
MADONNA,
ÁN ÁBYRGÐAR
Þessi bók segir frá lífshlaupi þess-
arar þekktu poppsöngkonu og
leikkonu. Hún hefur lifað hátt og
fer ekki leynt með það. Þessi bók
var ekki skrifuð í samráði við
hana. Höfundurinn hefur fylgst
með Madonnu lengi og skrifar hér
opinskáa lýsingu á æviferli þess-
arar umdeildu persónu.
Bók 22 HEB-verð kr. 2110
1 EINARINGVIMAGNÚSSON:
DULRÆNN VERULEIKI
í þessari bók er að finna athyglis-
verðar frásagnir af dulrænni
reynslu fólks. Margir segja frá,
þ.á.m. Eiríkur Kristófersson fyrr-
verandi skipherra, en hann taldi
að dulræn reynsla hefði oft komið
honum að miklu gagni í sínu
gæfuríka starfi sem skipherra.
Forvitnileg bók um forvitnilega
reynslu.
Bók 24 HEB-verð kr. 2115
BILL STOTT OG DAVID PYE:
GEGGJAÐ GRÍN UM
SKOKKARA,
Bók 25
GEGGJAÐ GRÍN UM
SKÓ LALÍFIÐ,
Bók 26
Sprenghlægilegur texti og teikn-
ingar gera þessar bækur ógleym-
anlegar.
HEB-verð kr. 670 hvor bók.
CD
NOKKUR ORÐ
UM KONUR OG
KÆRLEIKA
Þetta er fimmta bókin úr bóka-
ílokknum „Gullkorn úr lífi fólks.”
Hér birtast spakmæli kvenna,
stjórnmálakvenna, leikkvenna,
skálda, mæðra, dætra, freistara,
dýrlinga og brautryðjenda. Falleg-
ar bækur, smekklegar vinagjafir.
Bók 27 HEB-verð kr. 750
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLI SIGURSÆLI
DÖGUN - 4. BÓK
Dögun er Qórða og síðasta bindið
af höfuðverki danska rithöfundar-
ins Martins Andersen Nexö um
Pella sigursæla, bókmenntaverki
sem tvímælalaust ber að flokka
með stærstu og merkilegustu
skáldritum heimsbókmenntanna á
sínu sviði, þ.e. baráttu alþýðunnar
til efnislegra framfara og andlegs
þroska. Þetta bindi hefst á lausn
Pella úr áralangri fangelsisvist
þar sem hann hafði afplánað
refsidóm fyrir ,peningafölsun,”
tylliástæðu ráðandi afla þjóðfé-
lagsins til að kveða niður rödd
sem orðin var óþægur ljár í þúfu
þeim sem völdin höfðu og pening-
ana. Hér er lýst þeim hartnær óyf-
irstíganlegu hindrunum sem
verða á vegi þess sem dæmdur
hefur verið frá eignum og æru og
þarf að klífa þrítugan hamarinn
til að komast upp í samfélag
„heiðarlegs” fólks að nýju, hamar
þar sem hætt er við að undan
hrynji í hverju spori, og klífandinn
missi endanlega fótanna og eigi
sér ekki viðreisnar von, eins og
svo mörg dæmi sanna.
Bók 58 HEB-verð kr. 2455
DEANR. KOONTZ:
FYLGSNIÐ
Þetta er fyrsta bókin sem kemur
út á íslensku eftir þennan víð-
fræga metsöluhöfund. Gagn-
rýnendur voru sammála um að
FYLGSNIÐ væri ein allra besta
spennusaga sem komið hefur út á
þessu ári. Allar bækur höfundar-
ins hafa komist á metsölulista
New York Times.
Bók 59 HEB-verð kr. 1690
SVEN HASSEL:
TORTÍMIÐ PARÍS
Mest lesni stríðsbókahöfundur
seinni tíma. Höfundurinn var ung-
ur maður í ævintýraleit þegar
hann gekk í þýska herinn. Hann
lifði af hörmungar stríðsins og á-
kvað að segja frá reynslu sinni í
bókum sínum.
Bók 60 HEB-verð kr. 1690
Bókaskrá