Heima er bezt - 02.10.1992, Page 16
ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR
sitt úti á víðavangi, um sumar-
harmsögu Skara og Nóru, um
Kóngsgarðs-Möttu, sem læknaði
höfund bókarinnar af kvenfæln-
inni, um fleira gott fólk.
Bók 1039 HEB-verð kr. 300
HANNA BRÁ:
ÓLGANDI BLÓÐ
Saga Hönnu Brá er nútímasaga,
ekki nein væmin „kerlingabók,”
heldur djörf og spennandi, at-
burðarás sögunnar er hröð frá
upphafi til enda, og hefur skáldið
í brennipunkti lífssvið, er nær
jafnt til yngri sem eldri.
Bók 1040 HEB-verð kr. 250
JÓN BJARMAN:
DAUFIR HEYRA,
SÖGUR ÚR ÞJÓNUSTU
í þessari bók er brugðið upp
mynd frá sjónarhorni ungs prests
í Reykjavík. Lesandinn fylgir
prestinum í vitjun til deyjandi
manns, situr við hlið hans á með-
an hann talar á milli hjóna, sér
hann sporðreisa brauðtertu í
skírnarveislu og fylgir honum inn
í fangaklefa, svo fátt eitt sé nefnt.
I sjö sjálfstæðum þáttum lýsir Jón
högum og vanda þeirra sem leita
eftir þjónustu prestsins, þar er
vissulega ekki allt sem sýnist.
Bók 1041 HEB-verð kr. 250
BENEDIKT PÁLSSON:
MANNLEG TILBRIGÐI
Bókin, sem er rituð undir dulnefni
höfundar, er skrifuð af fádæma
hreinskilni og heiðarleika, í nokk-
urskonar dagbókarstíl.
Bók 1042 HEB-verð kr. 250
ERLINGUR DAVÍÐSSON:
UNDIR FJÖGUR AUGU
í þessari bók eru ellefu smásögur,
sem bæði eru ástarsögur og dul-
rænar ævintýrasögur. Bókin er
óður til ástarinnar og fegurðar-
innar, aiis þess er lifir og hrærist
umhverfis okkur og oft er lítill
gaumur gefmn.
Bók 1043 HEB-verð kr. 250
IÓM MÝRDAL
MANNANIIINUR
JÓNMÝRDAL:
MANNAMUNUR
Mannamunur eftir Jón Mýrdal er
ein af fyrstu íslensku skáldsögun-
um og því merkilegt verk í bók-
menntum okkar. En jafnframt er
bókin vinsæl skemmtisaga, sem
hver kynslóð á fætur annarri les
sér tii ánægju og þykir fróðleg
heimild um horfna tíð. Þetta er
langvinsælasta saga Jóns Mýrdals
og hefur verið prentuð aftur og
aftur. Hún er hér í flmmtu útgáfu
með skemmtilegum teikningum
eftir Halldór Pétursson listmálara.
Bók 1044 HEB-verð kr. 400
BRAGISIGURJÓNSSON:
LEIÐIN TIL
DÝRAFJARÐAR
Bragi Sigurjónsson fer eigin götur
í smásagnagerð, grípur efni úr
ýmsum áttum, margbreytilegir
einstaklingar koma fram hjá hon-
um og ýmis konar atburðir gerast.
Sumar sögur Braga munu ugg-
iaust hneyksla einhverja, aðrar
kitia hláturtaugarnar, enn aðrar
vekja áleitna umhugsun.
Bók 1045 HEB-verð kr. 200
SOFFÍA JÓHANNESDÓTTIR:
ÖRLAGARÍK
ÁKVÖRÐUN
Hér er skarplega á málum tekið
og ritað um ástir og örlög manna
á þann hátt að spennan fylgir les-
andanum frá upphafi til enda.
Bók 1046 HEB-verð kr. 350
Oj
AÐALHEIÐUR KARLSDÓTTIR
FRÁ GARÐl:
STURLA FRÁ
STEKKJARFLÖTUA/I
Þetta er sagan af Sturlu, ungum
bóndasyni, sem er vart kominn af
barnsaldri, er hann missir föður
sinn, sagan af Matthildi, móður
Sturlu, sem ekki á sjö dagana
sæla við búskaparhokur í sveitinni
eftir að bóndinn er horfinn úr lif-
enda tölu, sagan af Ögmundi, út-
gerðarmanninum, sem býr yfir
meira göfuglyndi en flestum er
gefið og reynist öllum vel, sagan
af Sólrúnu, stúlkunni fögru, sem
hreif hugi piltanna og allir vildu
eignast.
Bók 1047 HEB-verð kr. 250
76
Bókaskrá