Heima er bezt - 02.10.1992, Síða 40
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR
frásagna af sögulegum gangna- J
og eftirleitarferðum. Þá er for-
vitnilegur formáli um selfarir fyrr
á öldum og í bókarauka er fjör-
lega rituð frásögn ungrar stúlku
um Fljótsdragagöngur fyrir fáum
árum, ítarleg lýsing á „snjógöng-
unum” 1963 á Eyvindarstaðaheiði
og önnur um vélsleðaför á heiðina j
í eftirleit. Margt mynda er í bók-
inni auk korta af helstu gangna-
svæðum.
Bók 3096 HEB-verð kr. 2000
BRAGISIGURJÓNSSON:
GÖNGUR OG RÉTTIR,
IV. BINDI
í þessari bók segir af göngum og
réttum í Skagafjarðarsýslu, Eyja-
Qarðarsýslu, og Suður-Þingeyjar-
sýslu að Mývatnssveit og Aðaldal.
í henni er margt sögulegra frá-
sagna af gangna- og eftirleitaferð-
um, auk fróðlegs formála um frá-
færur og ýmsar fráfærnavenjur.
Erlingur á Þverá í Fnjóskadal
sækir með félögum klettafé í tor-
leiði VíknaQalla, Eiríkur í Arnar-
felli og förunautar leita í snjóbíl
tveggja eftirlegulamba suður á
Fjöllum í blindbyl um hættuslóðir.
Enn segir þar af hinni miklu
gangnavillu Þorsteins í Tungukoti
á Kjálka suður á Gnúpverjaafrétti.
Bók 3097 HEB-verð kr. 2000
BRAGI SIGURJÓNSSON:
GÖNGUR OG RÉTTIR,
V. BINDI
Þetta er Fimmta og síðasta bindi
Gangna og rétta og fjallar um
göngur og réttir í Þingeyjar- og
Múlasýslum. í þessu bindi er hinn
rómaði þáttur Benedikts frá Hof-
teigi, Vopnfirðingar á Fellsrétt,
auk þess formáli er fjallar um
sauðkindina og íslenska sjálfs-
þurftarþjóðfélagið. Eins og í fyrri
bindum í þessum bókaflokki fylgir
nafnaskrá, gullnáma örnefna,
safn upplýsinga staðkunnugra
manna og fjöldi mynda.
Bók 3098 HEB-verð kr. 2000
BRAGISIGURJÓNSSON:
GÖNGUR OG RÉTTIR,
I.- V. BINDI
Öll bindi þessa bókaflokks í einum
pakka.
Bók 3099 HEB-verð kr. 8000
EIÐUR GUÐMUNDSSON:
BÚSKAPARSAGA í
SKRIÐUHREPPI
FORNA, 1. BINDI
í fyrsta bindi þessa bókaflokks er
sagt frá ábúendum á eftirfarandi
jörðum í Öxnadal:
Syðri-Bægisá, Neðstalandi,
Skriðulandi, Efstalandi, Efstaland-
skoti, Steinsstöðum II, Steinsstöð-
um, Þverá, Hólum og Engimýri,
auk nokkurra smábýla sem löngu
eru úr byggð fallin.
Bók 3100 HEB-verð kr. 1750
EIÐUR GUÐMUNDSSON:
BÚSKAPARSAGA í
SKRIÐUHREPPI
FORNA, 2. BINDI
í þessu bindi er haldið fram Öxna-
dal að austan og niður að vestan,
og sagt frá eftirtöldum jörðum:
Geirhildargörðum, Fagranesi,
Gloppu, Bakkaseli, Gili, Varma-
vatnshólum, Bessahlöðum, Þver-
brekku, Hálsi, Hrauni, Auðnum,
Árhvammi, Bakka, Hraunhöfða,
Skjaldarstöðum og Miðhálsstöð-
um, auk þurrabúðarkota sem
löngu eru úr byggð fallin. Nú er
aðeins búið á fimm af þessum
jörðum. Einnig er sagt frá búend-
um í Hörgárdal, fram að austan
og niður að vestan og sagt frá eft-
irtöldum jörðum:
Staðartungu, Búðarnesi, Bási,
Einhamri, Nýjabæ, Framlandi,
Flöguseli, Ásgerðarstaðaseli, Ás-
gerðarstöðum, Staðarbakka,
Flögu, Gunnarsstöðum, Stóra-
gerði, Myrkárdal, Myrkárbakka
og Myrká, auk allmargra fornra
kotbýla, er löngu eru úr byggð
fallin. Einnig eru frásöguþættir af
fólki sem búið hefur á jörðunum
eða tengist þeim á einhvern hátt.
Bók 3101 HEB-verð kr. 1750
EIÐUR GUÐMUNDSSON:
BÚSKAPARSAGA í
SKRIÐUHREPPI
FORNA, 3. BINDI
Þetta er framhald af Búskapar-
sögu Skriðuhrepps forna. Haldið
er áfram að segja frá búendum í
Hörgárdal. í þessari bók er sagt
frá fólki á eftirtöldum jörðum:
Gerði, Saurbæ, Þúfnavöllum
Baugaseli, Féeggsstöðum, Sörla-
tungu, Barká, Öxnahóli, Hallfríð-
arstöðum, Hallfrfðarstaðakoti og
Lönguhlíð. Einnig eru í þessu
bindi frásöguþættir um nokkra
menn, sem hafa búið á jörðunum,
eða tengst þeim á annan hátt.
Bók 3102 HEB-verð kr. 1750
EIÐUR GUÐMUNDSSON:
BÚSKAPARSAGA í
SKRIÐUHREPPI
FORNA, 4. BINDI
Hér birtist ijórða bindi af ritverk-
um Eiðs Guðmundssonar á Þúfna-
völlum. Þetta er framhald og um
leið endir á Búskaparsögu Skriðu-
hrepps forna. í þessu bindi er sagt
40
Bókaskrá