Heima er bezt - 02.10.1992, Side 55
ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR.
r
E.M. CORDER:
HJARTARBANINN
Þessi einstæða saga er byggð á
kvikmyndinni „The Deer Hunter,”
Hjartarbaninn, sem sýnd var á ís-
landi fyrir nokkru síðan og hlaut
metaðsókn. Sagan fjallar um ör-
lög ungra manna, sem rífa sig
upp úr hversdagsleika heima-
byggðar sinnar og í hildarleik
stríðsins í Víetnam. Einkunnarorð
bókarinnar er tilvitnun í Hem-
ingway: „Engar veiðar jafnast á
við mannaveiðar, og þeim sem
veitt hafa vopnaða menn um
langa hríð og notið þess, þykir
þaðan í frá allt annað lítils vert.”
Bók HEB-verð kr. 600
HOWARD FAST:
í SKUGGA OFSÓKNA
Þessi bók er eftir höfund bókanna
um Innflytjendurna sem náðu
miklum vinsældum hér á landi
sem annars staðar. Howard Fast
skrifar hér um MacCarthy-ismann
og ofsóknir á hendur fjölda
þekktra manna á þeim tíma.
Söguhetjan er stríðsfréttaritari
sem er ofsóttur af ráðamönnum í
Washington. Howard Fast var
einmitt einn af þeim er ofsóttir
voru og sat í fangelsi ásamt mörg-
um fleirum. Hann þekkir því
sögusviðið af eigin reynslu.
Bók 5023 HEB-verð kr. 500
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLI SIGURSÆLI I
Með hinu mikla skáldverki um
Pella sigurvegara, sem kom út á
árunum 1906-1910, skipar danski
rithöfundurinn Martin Andersen
Nexö sér á bekk með fremstu rit-
höfundum þessarar aidar. Sagan
um Pella ijallar um framsókn ör-
eigans til bættra lífskjara og bygg-
ir á bernskureynslu höfundarins
sjálfs. Hún er að margra áliti ein
af markverðustu öreigalýsingum
heimsbókmenntanna ásamt öðr-
um stórverkum þessa höfundar,
svo sem Dittu mannsbarni og
sjálfsævisögu hans. 278 bls.
Bók 5024 HEB-verð kr. 2365
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLI SIGURSÆLI II
Unglingsár
í öðru bindi hins mikia skáldverks
síns um Pella sigursæla segir höf-
undurinn frá unglingárum
drengsins. Pelli hefur hleypt
heimdraganum, er floginn úr
hreiðrinu hjá Lassapabba í íjósinu
á stórbýlinu Steinagerði. Heimur-
inn er ekki auðsigraður. Pelli fer í
skósmíðanám og kemst að raun
um að skepnuskapur mannanna
bitnar á mörgum og ekki síst sak-
lausum sveitadreng. 246 bls.
Bók 5025 HEB-verð kr. 2370
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLI SIGURSÆLI III
Baráttan mikla
Þetta er þriðja bindið í þessu
þekkta ritverki Nexö um Pella sig-
ursæla. Pelli hefur átt erfiða ævi í
uppvexti og er nú orðinn full-
vaxta. í þessari bók er Pelli að
kynnast erfiðleikum þeirra fátæku
á vinnumarkaðinum. Verkalýðs-
baráttan er á frumstigi og leiðist
hann inn í þá baráttu. Hann verð-
ur formaður í verkalýðsfélagi en á
ennþá í erfiðri baráttu við sjálfan
sig, uppalinn í því umhverfi þar
sem reynt var að kenna honum
undirgefni við þá sem valdið hafa.
Hann brýst úr fjötrum því þrátt
fyrir tilhneiginguna til undirgefni
hefur ekki tekist að brjóta niður
sterka tilfinningu hans fyrir rétt-
læti. Ritverk Nexö á ekki síst er-
indi til nútímafólks sem ekki
þekkir þá baráttu sem háð var og
lagði grunn að því samfélagi sem
það lifir í. 322 bls.
Bók 5026 HEB-verð kr. 2500
Bókaskrá
55