Heima er bezt - 01.10.1993, Side 5
„VftMKum
test hér rætur“
Síldarœvintýri siglfirskra
fyrir rúmlega átta árum,
eða vorið 1985. Jóhanna er
einnig komin í sólbaðið í
heimilisgarði Báru og við
gefum henni orðið.
,,Ég náði í skottið á
síldarævintýrinu á Siglu-
firði og það var sko ævin-
týri, skal ég segja þér. Ég
var ekki há í loftinu þegar
ég byrjaði að salta, þannig
að það þurfti að hlaða und-
ir mig kössum til að ég
næði niður í botninn.
Stundum hafði ég það á til-
finningunni að ég væri að
steypast ofan í tunnuna.
Það hefði verið geðslegt að
enda lífið sem síld í tunnu,
eða hitt þó heldur,“ segir
Jóhanna og hlær dátt að
minningum síldaráranna.
Jóhanna verður fertug á
næsta ári.
„Ég tek á móti gestum í
Tælandi, ef vinir mínir á
íslandi vilja gleðja mig á
stúlkna í Portúgal
„Nei, biddu fyrir þér,
inaður minn, við sjáuin
ekki eftir því að hafa yfir-
gefið ættjörðina fyrir átta
árum til að setjast að í
heitara landi. Þetta var
afdrifaríkt skref og það
þurfti ákveðna áræðni til
að stíga það. En við vær-
um tilbúnar til að gera
það sama aftur í dag ef
við stæðum á sama stað,
þó við séum reynslunni
ríkari. Það er á hreinu.“
Við erum komin í heim-
sókn til Portúgal, nánar til-
tekið til Algarve, í lítinn
fiskimannabæ, sem heitir
Albufeira. Við sitjum úti í
garði í um þrjátíu og fimm
gráðu hita, í sandölum og
ermalausum bol, og það fer
vel um okkur. Við erum
komin í heimsókn til Báru
Hauksdóttur frá Siglufirði.
Hún flutti til Albufeira
ásamt Jóhönnu systur sinni
Gísli Sigurgeirsson í
heimsókn hjá
Jóhönnu og Báru
Hauksdœtrum í
Albufeira
Heima er bezt 325