Heima er bezt - 01.10.1993, Side 6
un þegar minnst var á síldarævintýrið,
þannig að ég vildi vinna mikið til að
reyna þessa dásemd. En ég vildi ekki
sleppa vinnunni á hótelinu, þannig að
þegar ég var búin þar á kvöldin, fór ég
bara beint í síldina. Það var gaman að fá
að kynnast þessum vinnubrögðum. en
þetta var stutt ævintýri.14
Þjónustulundin í erfðir
Þær Bára og Jóhanna eru dætur Hauks
Magnússonar og Erlu Finnsdóttur á
Siglufirði. Haukur var lengi kennari þar
í bæ, en Erla hefur lengi satt maga
þeirra sem komið hafa svangir á hótelið
á Siglufirði. Þau hjónin eignuðust fjögur
börn.
Jóhanna er elst, en næstur kom Finnur,
sem var sjómaður. Hann drukknaði í
hörmulegu slysi við störf sín á sjónum
fyrir nokkrum árum. Næst í röðinni er
Bára, en Bylgja er yngst. Hún var lengi
verkstjóri hjá Þormóði ramma á Siglu-
firði, en hún starfar nú sem sölu- og
markaðsstjóri hjá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna.
Já, Erla móðir þeirra systra, hefur gert
mörgum svöngum gott á Siglufirði og
eplið fellur sjaldan langt frá eikinni. Jó-
hanna fór frá Siglufirði 16 ára gömul og
settist í Húsmæðraskólann á Laugar-
vatni.
,,Það var ofsalega gaman þar,“ segir Jóhanna
glettin á svip.
,,Fyrir það fyrsta lærði ég þar margt gagnlegt,
sem hefur komið mér vel, en auk þess kynntist ég
þarna fjöldanum öllum af lífsglöðu fólki. Þetta var
að vísu húsmæðraskóli og þar af leiðandi eingöngu
stelpur í nemendahópnum. En það var stutt yfir í
Iþróttakennaraskólann og Héraðsskólann, þannig
að ævintýrin voru á næsta leiti. Að vísu settu
skólareglur stundum strik í reikninginn en það voru
nú til gluggar á skólahúsinu og kærkominn trjá-
gróður rétt við húsvegginn, til að skýla þeim sem
vildu leynast,“ segir Jóhanna og hlær dátt við þess-
ar endurminningar.
✓
„Eg tek á móti gestum í Tœlandi á nœsta ári, þegar
ég verðfertugsegir Jóhanna Hauksdóttir og
hlær dátt.
afmælisdaginn,“ segir Jóhanna sposk, en þær syst-
ur hafa ferðast víða á undanförnum árum. Bára er
hins vegar rétt liðlega þrítug, þannig að síldarævin-
týrið er henni lítið annað en ,,ævintýri“ í barns-
minni, og þó. Nokkrum árum eftir að hinu raun-
verulega síldarævintýri lauk var saltað um tíma á
Siglufirði.
„Þá var ég byrjuð að vinna á hótelinu á Siglu-
firði,“ segir Jóhanna, „en mig langaði mikið til að
komast í síld. Þeir eldri fengu alltaf stjörnur í aug-
326 Heima er bezt