Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.02.1998, Blaðsíða 7
það var einmitt útvarpið sem olli hraðanum sem varð hér á uppsetningu vindrafstöðvanna og síðar díselstöðvanna. Það varð nauðsynlegt fyrir hvern bónda að geta sjálfur hlaðið rafhlöður þær er útvarpið fékk sinn rafstraum frá. Svo voru það rafgeymar bílanna sem hér komu. Þá var nauðsynlegt að geta hlaðið heima fyrir, því þeir vildu oft tæmast. Aður en framangreindar rafstöðvar komu hér þurftu þeir sem höfðu fengið sér útvarp að fara með allar raf- hlöður í hleðslu austur að Ferjubakka í Öxarfirði. Það varð því mikill léttir er bændur fengu sínar eigin stöðvar. Þrátt fyrir allar stöðvarnar varð ævinlega að fara með nýj- ar rafhlöður og rafgeyma að Ferjubakka. Það stafaði ein- faldlega af því að nýjar rafhlöður og geyma varð að hlaða í einni lotu en það gátu vindstöðvar ekki, því fengju þær ekki byr í sitt segl (spaða) þá stönsuðu þær. Að Ferjubakka var hinsvegar vatnsknúin rafstöð er gekk stanslaust og jafnt. Nú var rafstöðin í Laufási komin upp og nýir geymar biðu fullhlaðnir að Ferjubakka er sækja þurfti. Það féll í minn hlut að fara þá ferð, með hest, lítinn sleða, sem ég hélt í, svo og tvo hunda er voru miklir vinir mínir. Ferðaá- ætlun var gerð fyrir mig, 13 ára snáðann. Ég átti að leggja strax af stað og flýta mér svo að ég yrði kominn í Ásbyrgi um kaffileytið á vesturleið, það er að segja á heimleið. í upphafi ferðar var lítill snjór, veðurútlit var ekki gott og kvöldið áður hafði veðurspá verið fremur slæm. Snjór fór vaxandi er upp í sveitina kom og er við komum upp á sandana var komið umbrotafæri fyrir hestinn og því sótt- ist ferðin hægt. Er ég komst að Feijubakka töldu þau Ólafur og Aðal- heiður er þar bjuggu, hið mesta óráð að ég reyndi að leggja af stað heimleiðis, þar sem náttmyrkur var að skella á. Enginn sími var kominn nærri heimili mínu á þessum tíma. Sími var aðeins á Skinnastöðum og Lindar- brekku, en þeir bæir voru allfjarri Laufási og því var ekk- ert hægt að láta vita af sér. Eftir miklar vangaveltur og heilabrot ákvað ég að halda heimleiðis, enda vissi ég að þar væri farið að óttast um mig, ég hafði nefnilega verið í Asbyrgi á austurleið á þeim tíma er ég átti að vera þar á vesturleið (heimleið). Ég lagði strax af stað og í fyrstu sóttist ferðin allvel, enda gátum við fylgt slóðinni að heiman frá því um morguninn. Er við komum niður yfir sandana að svo köll- uðum Veggjarenda, skall á iðulaus norðvestan stórhríð. Ég tók það ráð að fara ofan í gjána sem er vestan Veggjarendans, en þar er grasi gróinn botn og þar komst ég í allgott skjól með hest, hunda og sleðann. Ég fór nú að hugsa um hvað gera skildi. Framundan var mjór og niðurgrafinn vegur og nokkrar gjár yfir að fara og þar var vegurinn enn mjórri. Um morguninn hafði ég tekið eftir því að hundarnir þræddu sporaslóð á þessum kafla og gekk hesturinn í slóð þeirra á austurleiðinni. Ég taldi það hið mesta óráð að reyna að rata yfir gjárnar, eftir Heima er bezt 47

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.