Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 39

Heima er bezt - 01.02.1998, Síða 39
þakklát fyrir að hafa fengið að fara með. Frænka hennar hafði sagt að hún hefði gott og gaman af því, auk þess sem hún yrði örugglega liðtæk við rúninginn. Fleiða vissi nú lítið hvað rúningur var, en fram að þessu hafði henni gengið vel að aðlagast sveitinni og störfum þeim sem hún átti að vinna. Var það mikið Ingi- björgu að þakka, sem með þolin- mæði sinni útskýrði allt á svo ein- faldan hátt. Það var auðvelt að skilja það sem hún sagði og tileinka sér það. Reyndar líkaði Heiðu mjög vel á Hóli, það sem af var. Ef mamma hennar hefði ekki verið ein i risíbúð- inni í Reykjavík hefði stúlkan verið alsæl. Það hafði verið rétt hjá Erlu, sveitin gerði henni gott. Heiðu fannst líka gaman að kynn- ast dýrunum. Hún var hrifin af kún- um. Þær voru svo ólíkar og strax fyrsta daginn komst hún að því að þetta voru ekki bara einhverjar kýr. Skjalda var nythæst, Branda var sú sem engan vildi þýðast nema Ástu, Huppa var svo ljúf að hún var alltaf notuð til að kenna mjöltun og Búkolla var langelst af kúnum og hafði alltaf forustuna þegar verið var að reka þær. Svona voru allar kýrnar, hver með sínu sniði og eins var með önnur dýr á bænum. Það var auðvelt að tengjast þeim tilfinningalegum böndum og þykja vænt um þau, hvert og eitt. Ungi maðurinn, sem Gangna-Siggi hafði sent Heiðu með, reið þögull við hlið hennar. Heiða vissi að hann hét Árni og var yngri sonur prestsins. Hann var alvarlegur á svip, brún- hærður og móeygður. Árni var þrek- inn en ekki mjög hár. Ásta hafði sagt henni að hann væri mikill bóndi, en Páll eldri sonurinn, væri sá sem héldi sig við bókina. Páll var líka með í smöluninni. Hann var stærri en bróð- ir hans, ljósari yfirlitum og ekki eins þrekinn. Heiða gjóaði augunum á Árna og var hálf feimin. Honum hlaut að þykja hún heldur viðvan- ingsleg á hestinum. Loks leit piltur- inn á hana. - Nú erum við að verða komin það langt að við getum ekki lengur riðið saman. Eg skal vera upp í hlíðinni, en það er best að þú ríðir meðfram ánni og passir að féð fari ekki yfir. Jóhanna á Fossi er hinu megin. Reyndu að sjá til hennar svo að ekk- ert fari á mis. Heiða kinkaði kolli. Hún vonaði að hún gæti innt þetta skammlaust af hendi. Það yrði ævarandi smán að missa féð til baka. En ótti stúlkunnar var ástæðulaus, féð vildi fram í frels- ið. Árni skildi við Heiðu og reið upp brekkurnar. Heiða hottaði á Ljóma og hann brokkaði þægur á bökkum Dalsár. Hún sá Jóhönnu, elstu dóttur- ina á Fossi, hinu megin. Stúlkan veif- aði glaðlega til hennar og Heiða veif- aði á móti. Það var gott að hafa ein- hverjar ungar stúlkur í nágrenninu. Jóhanna var mun yngri en Heiða en henni leist vel á hana. Safnið rann ffam hlíðarnar og hundarnir gjömmuðu öðru hvoru. Ein og ein ær þráaðist við, en það var ekki lengi. Ákveðnir smalarnir ráku á eftir og fólkið var í sólskinsskapi. Veðrið var eins og best verður á kos- ið, sólin skein á menn og málleys- ingja og útlitið var gott. Heiða var farin að verða öruggari með sig. Féð reyndi ekkert að fara yfir ána og hennar göngur voru létt- ar. Það var því engin ástæða til ann- ars en njóta ferðarinnar. En til allrar óhamingju lágu göturnar alveg á ár- bakkanum og einu lambinu skrikaði fótur með þeim afleiðingum að það lenti í ánni. Einmitt þar sem lambið lenti, var hylur og hringiða og á þess- um stað var áin straumþyngri en ann- arsstaðar í dalnum. Heiðu dauðbrá, hún stökk af baki og hljóp að bakk- anum. Lambið snerist í hringi og virtist engan möguleika eiga til þess að komast upp. Heiða reyndi að sæta lagi og teygja sig til þess, en þá vildi ekki betur til en svo, að stúlkan steyptist sjálf ofan í strauniþungt vatnið. Heiða saup hveljur þegar kalt vatnið skall á henni. Hún var ósynd og vissi ekki hvað til bragðs skyldi taka. Stúlkan barðist um af öllum kröftum en allt kom fyrir ekki, straumurinn reif hana með sér og færði hana í kaf. Heiða varð skelf- ingu lostin, hún gat ekki andað, gleypti vatn, kom upp úr, náði smá lofti, en fór síðan á bólakaf aftur. Hún var sannfærð um að þetta væri hennar síðasta. „Guð minn,“ hugsaði Heiða, „láttu mig ekki deyja, ég verð að komast aftur heim til mömmu. Góði Guð.“ Árni, sem var í miðri hlíðinni, sá hvað gerðist. Hann hikaði ekki held- ur hleypti hestinum á harðastökki undan brekkunni og beint út í á.- Árni, sem var vel ríðandi eins og hann var vanur, stýrði hestinum fim- lega upp í strauminn og reyndi að koma auga á stúlkuna. Skyndilega skaut henni upp og hann náði taki á blússunni hennar. Hann var sterkur og eitt augnablik barðist hann við strauminn, þar til Dalsáin varð að sleppa feng sínum í hendurnar á prestsyninum í Árdal. Árna var brugðið. Stúlkan lá eins og slytti fyrir framan hann á hnakk- nefinu. Hann flýtti sér í land. Piltur- inn hafði hraðar hendur, tók stúlkuna af baki og lagði hana frá sér þannig að runnið gæti upp úr henni. Undr- andi starði hann á fölt andlitið, sem honum fannst undurfrítt. Hann vissi ekki alveg hvað hann átti að gera næst, en hann vissi það og hafði vit- að það frá því um morguninn, er hann sá hana fyrst, að þessi stúlka mátti ekki deyja. Árni skildi ekki til- finningar sínar, en í einhverju æðiskasti hristi hann stúlkuna til, sló á bakið á henni og hrópaði á hana. Þegar hann var að gefa upp alla von hóstaði hún skyndilega og kúgaðist. Vatn rann upp úr henni en fallegu augun opnuðust. Heiða stundi og starði á unga piltinn, sem skelfingu lostinn strauk henni um hárið. Framhald í nœsta blaði. Heimaerbezt 79

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.