Æskan

Volume

Æskan - 15.12.1937, Page 7

Æskan - 15.12.1937, Page 7
1937 3ólabók Æskunnar 5 Börnin hjúfruðu sig upp að gildum trjástofni. oftast lokaður, og börnunum ætlað að sinna öðru en leik og námi. —- Ó, þetta strið, segir telpan allt í einu. —• Já, segir drengurinn. — Það er voðalegt, segir telpan, — það er svo voðalegt, að maður er alltaf kviðandi, það er aldrei gaman heima. — Mamma verður að gera allt. — Mamma mín verður lika að gera allt, segir hann. Þau silja aftur þögul. —■ Og svo er mamma orðin lijartveik, heldur telpan áfram, eins og lienni sé léttir að tala við drenginn. —Hún er kviðin, þegar pósturinn kem- ur, hún er lirædd við að iita í hlöðin, liún hýst alltaf við voðalegum fréttum, — hún býst við þvi, að það sé búið að skjóta pabba, — hú.n er líka svo kviðin, þegar fer að dimma, — veistu, — nei, eg má ekki segja það. — —• Jú, þér er óhætt, segir drengurinn. Telpan lítur á drenginn, eins og til að sannfæra sig um, að henni haf-i verið óhætt að tala um þetta. — Yeistu, að hún sefur alltaf með hníf undir koddanum? —- Hvers vegna? — Æ, eg veit það ekki, — þú mátt ekki segja það. Hún er svo lirædd um að einhver óvinur komi í myrkrinu og læðist kringum bæinn og ráðist á okkur, þegar dimmt er. En þú mátt ekki segja þetta, Jens. — Eg segi það engum. — Ert þú aldrei liræddur? Jens. — Ekki svo mjög. — Ó, ef þú vissir, livað það er bágt að vera si- fellt kvíðandi og liræddur. — Svona er mamma og systir mín, síðan frændi var skolinn, segir drengurinn. Og telpan heldur áfram, það er óhætt að segja þessum dreng allt. — Það var svo voðalegt eina nótt, segir liún, eg vaknaði við það, að mamma stökk fram úr og greip hnífinn og hljóp út að glugganum, liún heyrði eitthvað á ferð fyrir utan gluggann, eg hlustaði og hlustaði, og mamma stóð lengi, lengi og heið nötr- andi af hræðslu, en það var víst enginn óvinur ná- lægt. En þú mátt engum segja þetta, Jens. — Eg segi það engum. Meðan hörnin eru að tala saman, dregur skýflók- ann hærra upp i suðrinu. Og nú lieyrast þungar drunur, — þrumurnar drynja yfir næstu byggða- lögum, fyrst strjálar, svo færist þetta nær og nær með ótrúlegum liraða. Börnin líta hvort á annað. —- Hvar eru hin? spyr telpan lirædd og á við hin börnin. — Það er alltof langt þangað, segir drengurinn. Við skulum hlaupa i skjól. Og nú skelfur loftið af sterkri þrumu. Á fáum mínútum hefir flókinn i suðrinu þanið úr sér yfir alla sveitina, það dinnnir i lofti og skýið æðir yfir allt eins og ægilegt dýr. Og fyrstu droparnir falla. — Fljótt, kallar drengurinn, — undir tré. Þau hlaupa sem fætur toga að skógarjaðrinum, og þegar þau koma að yslu trjánum, skellur óveðrið yfir. Börnin hjúfra sig upp að gildum trjástofni, en yfir þeim hvelfist limarik krónan. En laufið af liminu er í'arið af falla, lirúgur af gulnuðum blöðum liggja milli trjánna, þvi að haustið liggur í leyni bak við fegurð sumarsins, — enginn spornar við því. Drengurinn er i einni skyrtu og einum buxum, sem hann spennir yfir um sig með ól, hann er sokkalaus og gengur i gömlum tréskóm. Telpan er í einni skyrtu og þunnum kjól, ermalausum; hún er líka herfætt í skónum. Og þegar fyssir fyrir tréð og byrjar að di’júpa gegnum linxið, standa þessi tvö börn varnarlaus, droparnir smjúga gegnunx fötin og renna niður lierðar þeirra og brjóst. Nú dimrnir yfir skóginum, það livín og hvæsir allt í ki-ing, ljósunx bregður fyrir, og þrumurnar dynja liver á fætur annari yfir hqfðum þeix-ra, og skógur- inn tekur undir, það er eins og himininn skjálfi af æðisgenginni heift, og öllu þessu sé stefnt að tveimur eimxiana hörnum, sem lijúfra sig upp að trjástofninum. Þau horfa út i hryðjuna, þar sem veðrið leilcur sér að stórum dropunum, innan skanxnxs renna fossandi lækir eftir öllunx götuslóðum. Þá skelfur skógurinn af ógurlegri þrunxu, stærri öllum öðr- um, eins og trén jnuni klofna eða jörðin springa.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.