Æskan

Årgang

Æskan - 15.12.1937, Side 11

Æskan - 15.12.1937, Side 11
1937 ]ólabók Æskunnar 9 vonbrigðum, er Sveinn bar sigur úr býtum. Hann var sjálfur hættuleg- asti keppinauturinn, en hann hafði orðið að sætta sig við að vera sá næst besti, eins og oft áður. Og Leifur var gramur, ekki vegna þess, að Sveinn hafði unnið, heldur af þvi, að hann hafði ætla.ð sjálfum sér sigurinn. Skólabræðurnir hópuðust auðvit- að utan um Svein og hylltu hann, en Leifur gekk burt einn síns liðs, og honuin fannst frammistaða sín, er var i raun og veru injög góð, vera ekkert annað en ósigur. Skólasveinarnir nefndu Leif stundum, Leif þögla; hann sagði sjaldan meira en nauðsyn krafði, var oftast einn útaf fyrir sig og átti enga vini innan skólans. Og þá sjaldan hann opnaði munninn, gerði tortryggni hans sitt til. Það, sem hann hafði að segja, varð svo undarlega fráhrindandi og fullt kaldhæðni. Leifur fékk þvi smám saman orð fyrir að vera sérvitur, og varð við það meira og ineira ein- mana. — Hann fann þetta sjálfur, og honum leið illa. Sveinn varð að viðurkenna það með sjálfum sér, að Leifur væri hættulegur keppinautur, en hann lét aldlei á því bera. Hann talaði þvert á móti æfinlega um Leif með nokkurri lítilsvirðingu, og átti sinn þátt í því, hve einmana Leifur var meðal drengjanna. Hann gekk jafn- an á lagið og gerði gys að honum, en með allra inestu varkárni þó. Hann hafði meira að segja nokkr- Rauáhetta og úlfurinn um sinnum reynt að æsa Leif upp og reita hann til reiði; það hafði samt aldrei tekist. Leifur tók allri ertni og áreitni með kaldri ró. Hann kærði sig ekki um, að láta neinn liafa gaman af að sjá sig stökkva upp á nef sér og verða sér til skammar, enda þótt honum sviði sáran. Hann gat líka átt á hættu að missa skólavistina, ef skólastjóri

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.