Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 15.12.1937, Qupperneq 15

Æskan - 15.12.1937, Qupperneq 15
1937 Jólabók Æskunnar 13 einn sér. Einn hinna ölvuöu manna kom auga á hann. — Nei, sjáið þið! Er það ekki Nýjabæjarstrák- urinn, sem stendur þarna? Hvað gengur nú að þeirri ströngu húsfrú Önnu, að liún slculi leysa lilekkina á gullbarninu og lofa því að hreyfa sig? Það sér á, að hann er óvanur, veslingur. Ójá, svona fer um þá, sem mömmurnar loka inni i húri! En úr þvi þú ert nú hérna, þá komdu og fáðu þér í staup- inu. Það iiressir mann upp, skaltu vila! — Nei, sagði karlinn, sem hafði brennivínskút- inn, og stakk tappanum i hann. Anna er ágætis kona, og eg vil ekkert mein gera henni. Það er vel skiljanlegl, að liún vilji vernda drenginn sinn fyrir þvi, sem varð föður hans að fjörtjóni. Níels hrökk saman. Hvað voru þeir að segja um pahha lians? Mamma hans liafði aðeins sagt hon- um, að hann hefði drukknað, en slíkt var ekki eins- dæmi þar í skerjagarðinum. Iiann leit á stóra, myndarlega smiðinn, sem nú var dotlinn flatur og lá hálfsofandi á jörðinni. Hann drafaði skammir að strákunum, en þeir l'leygðu í liann grasi og torfusneplum. — Ef tii vill, hugsaði Níels, og fékk sting i lijart- að. — Ef til vill hefir pabhi minn einhverntima legið svona? Hann þoldi ekki mátið lengúr og tók á rás í áttina til skógarins. tJli við skógarjaðarinn ló við sjálft að hann dytti um litla stúlku, sem lá þar á grúfu undir runni og hélt höndum fyrir andlitið. Hann gætti nánar að henni. Þetta var litla telpan smiðsins; þá skildi liann líka, af liverju hún grét. — Farðu nú heim, Greta litla, sagði hann. Það er framorðið, og mamma þin híður sjálfsagt eftir þér. — Ónei, sagði t'elpan og lyfti höfðinu lítið eitt. -— Það var hún, sem sendi mig liingað, til að . . . til að gæta að pabba. ... Er hann sofnaður? spurði hún svo þvermóðskulega. ■— Það held eg, svaraði Níels. Greta litla þaut upp. — Eg verð að láta mömmu vita það, svo að hún komi. Sjáðu til, við erum van- ar að aka honum heim á liandvagninum okkar. Mamma dregur hann, en eg ýti á eftir. Hún brosti gegnum tárin, og svo þaut hún burt. Níels gekk til sjávar, ýtti bátnum sínum á flot og reri heim, svo að freyddi um stefnið. Mamma hans sat inni og var að staga í hvers- dagstreyjuna hans. Ilún leit ekki upp, fyrr en hann var kominn inn á mitt gólf, — og þó sá Níels dá- litið, sem hann hafði aldrei séð fyrr: Mamma lians var að gráta. Hún þrýsti drengnum sínum að sér og strauk livað eftir annað um Iiöfuð lionum. — Mamma, sagði Níels eftir stundar þögn. — Ilvernig dó pabbi? Mamma lians virtist ekki verða hissa á spurning- unni. — Eg var einmitt að lmgsa nm að segja þér frá því í kvöld, sagði liún. Það er best að þú fáir að vita, hvaða óvin þú átl við að stríða. Eg hefi get- að verndað þig, þangað til núna — en nú ertu að verða stór, Niels, og verður að fara að sjá um þig sjáll'ur. Sestu nú liérna hjá mér, og svo skal eg segja þér frá pabha þínum. Hann var farinn að drekka, áður en við gift-

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.