Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1945, Síða 3

Æskan - 01.10.1945, Síða 3
46. drgangnr. ■» Reykjavík, okt.—nóv. 1945. ♦ ram höSd. S< onungsva Ævintýraleikur. iá. III. ÞÁTTUR (Sama stað). IvALLARI (gengur fram og aftur um garðinn). t dag er Jónsmessu- hátíð. Allir eru velkomnir í kon- ungsgarð. Kornið, börn, og skemmt- ið ykkur. Etið, drekkið og verið glöð. (Hljóðfærasláttur og fagnaðar- læti liegrast álengdar. Ómar og Svanlwít koma inn.) SVANHVÍT: Þú verður að far.a varlega, Ómar. Sjáðu, hvað þú ert óhreinn á höndunum. Ó, þarna blæðir lir þér. ÓMAR: Þetta verður gróið á morgun. SVANHVÍT: En það getur orðið ör eftir. Lofaðu mér að þvo það og bera á það smyrsl. ÁKI (kemur hlaupandi): Þetta var óvarlega gert af þér, Ómar. Þú gleymdir alveg höndunum. ÓMAR: Ég gat þó ekki látið barnið liggja ósjálfbjarga á göt- unni, þar sem fullt var af hestum og vögnum allt í kring. ÁKI: Það hefði einhver orðið til þess að bjarga krakkanum. Vertu viss. ÓMAR: Því var ekki að treysta, að neinn gerði það. ÁKI (tekur af sér vettlingana, réttir fram hendurnar): Sjáið þið hendurnar mínar. ÓMAR: Þær eru drifhvítar og fallegar. SVÁNHVÍT: Þú snertir lieldur ekki á neinu. Ég gæti bezt trúað, að þú létir hátta þig og klæða. ÁKI: Auðvitað geri ég það. Til hvers eru þjónarnir? ÓMAR: Ég ætlaði lika að varð- veita hendurnar mínar, en ég Eftir Ragnheiði ]ónsdóttur. gleymi mér svo oft, ef mikið liggur við. ÁKI: Það dugar ekki að gleyma sér, þegar kórónan er í veði. SVANHVÍT: Ég get ekki sldlið, hvernig þeir hugsa sér að fara eftir þessu. ÓMAR: Ég verð að játa, að ég skil það ekki heldur. SVANHVÍT: Komdu nú með mér, svo að ég geti búið um sárið. (Þau fara.) ÁKI (gengur fram og aftur og skoðar á sér hendurnar): Þær hljóta að verða fallegri. (Una og Grímur lcoma.) UNA: Ert þú þarna að skoða á þér hendúrnar, blessaður drengur- nn. Gæti ekki liugsazt, að þú tækir þetta of bókstaflega? Ég hef reynd- ar ekki vit á því. Mér var svona að detta það í hug. ÁKI: Það get ég elcki skilið. Fallegar hendur hljóta að vera hvít- ar og mjúltar og hreinar. Sjáið þið. (Þau skoða hendur lians. Una ætl- ar að strjúka þær.) Nei, snertu þær ekki. Þú getur verið óhrein. GRÍMUR: Hún er alveg tandur- hrein, konan. UNA: Já, já. Ég þvoði mér svo rælcilega áður en ég fór að heiman. (Ómar og Svanhvit koma.) ÓMAR: Velkómin hingað. UNA: Hvað er að sjá þetta? Ertu með reifaða höndina? ÓMAR: Já, liafðu engar áhyggj- ur af því. Ég varð fyrir smáslysi. UNA: Þú gætir þín ekki eins vel og Áki. ÓMAR: Það getur lieldur ekki nema annar olilcar orðið konungur. En nú skulum við liætta að hugsa um þetta. í dag skulum við skemmta okkur með fólkinu. ÁKI: Við horfum á fólkið skemmta sér. Annað er okkur ekki samboðið. (Nokkrar tatarastálkur koma dansandi inn. — Fjörgömul kona kemur haltrandi á eftir þeim.) STÚLKURNAR (dansa og sgngja): Nú sól á lofti ljómar og ljúfur söngur hljómar og æskugleðin ómar og örar hjörtun slá. Tra la la, la la la, hopp og hí og tra la la, og æskugleðin ómar og örar lijörtun slá. Er koma kátir sveinar, að kjósa ei verðum seinar, við dönsum aldrei einar til enda nokkurn dag. Tra la---------------- Við dönsum aldrei einar til enda nokkurn dag. Svo dönsum dátt og syngjum, og dýrum klukkum hringjum, og ellihruma yngjum við ómsterkt gleðilag. Tra la---------------- og ellihruma yngjum við ómsterkt gleðilag. (Fólk safnast saman til þess að horfa á dansinn.) GAMLA IÍONAN: Er hér ekki einhver, sem vill láta mig lesa í lófa? Venjulegur spádómur kostar aðeins eina krónu. Dálítil auka- þóknun fyrir mikla hamingju. SVANHVÍT (við móður sina): Má ég, mannna? UNA: Ef þig langar mikið til þess og faðir þinn vill gefa þér krónu. SVANHVÍT: Viltu gefa mér svo- lítið meira en krónu, pabbi minn? GRÍMUR: Sér er nú hver vitleys- an. (Fær henni peninga.) SVANHVÍT (gengur til spákon- unnar og réttir fram höndina): Viltu spá fyrir mér? 95

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.