Æskan - 01.04.1986, Qupperneq 12
„ÉG TÓK EKKII
RÆTT VIÐ ÍSLANDSMEISTARANN í FRJÁLSUM DANSI i
Úrslitakeppni íslandsmóts
unglinga ífrjálsum dansi var
haldin í Tónabœ um miðjan
mars sl. Áður hafði farið fram
undankeppni á sex stöðum á
landinu. Keppt var í bæði ein-
staklings- og hópdansi. íslands-
meistari íflokki einstaklinga
varð Axel Guðmundsson, eini
karlkynskeppandinn. íhóp-
dansinum sigruðu Svörtu ekkj-
urnar.
Axel Guðmundsson er í 9.
bekk í Hlíðaskóla. Hann hefur
œft með Dansnýjung Kolbrúnar
Aðalsteinsdóttur í rúmt ár.
Frami hans er því skjótur.
12
Hrífur þetta?
„Frænka mín sem æfði hjá
Dansnýjung vildi endilega fá mig með
í hópinn og ég lét tilleiðast,“ sagði
Axel þegar við röbbuðum við hann
eftir keppnina.
Eins og þið sjáið á meðfylgjandi
mynd er hann í framandlegu gervi.
Við spurðum hann nánar um það.
„Ég vildi vera frumlegur,“ sagði
hann. „Ég veit ekki hvað við getum
kallað gervið. Þetta er bara eitthvert
rugl. Það er ekkert gaman þegar allir
eru eins.“
Axel valdi sjálfur þau þrjú lög sem
hann dansaði eftir í úrslitakeppninni.
Vinur hans hjálpaði honum að skeyta
þau saman. -En kom það honum á
óvart að verða íslandsmeistari?
„Jú, ég get ekki neitað því. Nokkt'f
vinir mínir, sem fylgdust með und'
ankeppninni, spáðu mér sigri en
tók ekki mark á þeim.“
— Felldirðu gleðitár á sigurstund11
eins og fegurðardrottningar gera?
Axel hló. „Nei, engin gleðitár £l1
mér leið frábærlega vel. Maður ætla^1
varla að trúa þessu.“
- Æfðirðu þig mikið íyr’f
keppnina?
„Já, bæði heima hjá mér og einS 1
Tónabæ. Ég samdi dansinn endanleg1'
sama dag og úrslitakeppnin fór úaín'
Það mátti ekki tæpara standa.“
Verðlaun íslandsmeistarans vor0
ekki af lakara taginu: Verðlaunape11
ingur, bikar, og flugferð til Rhodosaf’
Hann vonast til að geta skipt á ferðun1
Úrslita beðið...