Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1987, Blaðsíða 6

Æskan - 01.03.1987, Blaðsíða 6
Hæðir Sjöundi bekkur var að fara í landa- fræðipróf. Það sást líka á krökkunum. Kvíði speglaðist í hverju andliti. í frímínútunum reyndu sumir að lesa, þó að hávaði væri á ganginum, og spyrja hverjir aðra um það hvernig jörðin væri í laginu og annarra álíka gáfulegra spurninga. Aðrir gengu um gólf og nokkrir kepptust við að skrifa landafræðibókina upp allan handlegg- inn. Hilda leit einu sinni yfir aðalatrið- in, - svo kom kennarinn. Krakkarnir tróðust inn í stofuna, færðu borðin í sundur og reyndu að yfirgnæfa hróp kennarans: „Dóra, þú ferð alveg út í horn. Jó- hann, komdu aðeins nær mér og til vinstri..nei..svona, já..og Helgi, þvoðu þetta af hendinni á þér. Loks þögnuðu allir og kennarinn byrjaði að dreifa prófblöðunum. Sum- ir voru alveg rólegir þegar þeir fengu þau í hendur, aðrir voru í framan eins og þeim byði við þeim, prófblaðið væri ógeðslegt, slímugt skrímsli. Hilda var í fyrri hópnum. Hún sá enga spurningu sem ógnaði henni sér- staklega, svaraði þeim hverri á fætur annarri en staldraði svo við þá síðustu. Hvernig verða hæðir til? Hún átti nú að vita þetta. Hæðir? Öfugt við lægðir. En hvað voru lægðir? Hilda hugsaði svo mikið að það brakaði í heilanum á henni. Skyldi Sigga vita þetta? Áreiðanlega. Hún var algjör próffi í lesgreinum. Svo var pabbi hennar veðurfræðingur og hann átti nú að geta hjálpað henni. Hilda hallaði sér fram og reyndi að sjá á blaðið hjá Siggu en hún grúfði sig yfir það. Hilda andvarpaði. Vanþakk- lætið! Hún mundi ekki betur en hún hefði leyft henni að sjá hjá sér í síðasta enskuprófi. Var hún búin að gleyma því? „Hilda, gerðu þetta sjálf," heyrð's kennaranum. Hilda leit niður á blaðið. Hvernig verða hæðir til? ^ Hún gat ekki munað þetta, var ^ sjá svarið hjá einhverjum öðrum- það var ekki auðvelt, veggur til h£& , veggur fyrir aftan. Sigga í feluleik m blaðið fyrir framan og Óli á m1’^ borði til vinstri var ekki mikið ga‘ ljós. Af hverju var hún að velja Þe sæti? Hilda heimskingi! Hvernig verða hæðir til? Hilda togaði í hárið á sér. Hún he . átt að skrifa á svindlmiða og fela P‘.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.