Æskan

Årgang

Æskan - 01.03.1987, Side 23

Æskan - 01.03.1987, Side 23
rauðhetta ” att mér í hug,“ hugsaði Lóa. ” etta sagði líka úlfurinn auðhettu. Tíndu blóm anda henni ömmu þinni,“ sa§ði hann. ”Kókið fer líka svo illa með tennurnar,“ Sa§ði úlfurinn í búðinni. ”Amma er ekki með alvöru tennur, hún getur tekið þær út úr sér og sett þær í vatnsglas. Hún geymir þær bara í glasinu meðan hún drekkur kókið,“ sagði Lóa. „Jæja vina, þú verður að ráða. En líttu samt á blómin, þau eru þarna í horninu.“ Úlfurinn gekk í burtu en Lóa stóð eftir. „Nú fer hann heim til ömmu og gleypir hana. Alveg eins og í Rauðhettu,“ hugsaði hún. Hún fékk tár í augun. Góða, hlýja, mjúka amma! Nú átti hún að lenda í maganum á úlfinum. „Ég kaupi bara kók einhvern tímann seinna,“ hugsaði Lóa og hljóp af stað til að finna útidyrnar. Hún ætlaði að verða á undan úlfinum heim til ömmu. En það gekk ekki vel. Hún villtist fram og aftur innan um þessar stóru hillur. Hún sá dósir og pakka, ávexti og álegg, og endalausa fætur á fólki. Hún sá allt nema útidyrnar. Hún fór að skæla. Hún skældi hærra og hærra þangað til kona sem var að fylla í hillur kom og spurði hvað væri að henni. „Ég vil fara til ömmu en ég finn ekki útganginn," snökti Lóa. „Ég skal fylgja þér,“ sagði konan. Hún fylgdi Lóu út og þurrkaði af henni tárin. Lóa hljóp eins og hún ætti lífið að leysa. Pegar hún kom til ömmu voru útidyrnar læstar. Hún hringdi bjöllunni en enginn kom. Hún fór aftur að skæla. „Nú er úlfurinn búinn að gleypa ömmu. Þess vegna kemur hún ekki til dyra,“ hugsaði hún. Hún hljóp í kringum húsið. Bakdyrnar voru opnar. „Hér hefur hann farið inn,“ hugsaði hún og læddist inn með hálfum huga. Þegar hún kom að svefnherbergi ömmu nam hún staðar. Átti hún að þora að opna? Hvað nú ef úlfurinn lægi í rúminu? Átti hún þá að láta hann gleypa sig? 23

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.