Æskan - 01.02.1991, Page 14
Ein afnýju stjörnunum í hand-
knattleiknum um þessar
mundir er landslidsmaðurinn
og KR-ingurinn Konráð Olavs-
son. Hann hefur vakið mikla
athygli fyrir mjög góða
frammistöðu í leikjum og und-
anfarna mánuði hefur hann
verið með markahæstu leik-
mönnum í leikjum KR og í
landsleikjum. Það er reyndar
ekkert óeðlilegt að hann skuli
vera góður í íþrótt sinni þar
sem hann hefur æft hana af
krafti frá 10 ára aldri.
Æskan ákvað að taka viðtal
við Konráð og kynnast honum
og handknattleiksheiminum
að nokkru.
Konráð er fæddur 11. mars 1968 og
er því að verða 23 ára. Fyrst var
hann spurður í hvaða skólum hann
hefði verið:
„Ég byrjaði í Laugarnesskóla, fór
svo í Æfingadeild Kennaraháskól-
ans og er nú að ljúka námi á hag-
fræðibraut í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla."
- Hvað finnst þér skemmtilegast
að læra?
„Ætli mér hafi ekki fundist
skemmtilegast í íþróttum, ásamt
hagfræði sem ég er að læra núna.
Annars hef ég mikinn áhuga á öllu
námi.
- Hvenær fékkstu fyrst áhuga á
handknattleik?
„Þegar ég var 8-9 ára. Ég var að
æfa knattspyrnu hjá Ármanni og
fór þá fyrst að stunda handbolta.
Ég byrjaði þó ekki að æfa að ráði
fyrr en ég var fluttur í annað
hverfi, Háaleiti, 10 ára. Þá fór ég að
æfa af fullum krafti með Val og þar
kviknaði áhuginn fyrir alvöru."
„Hélt að væri verið að
stríba mér"
- Langaði þig til að verða hand-
knattleiksmaður þegar þú varst lít-
ill?
„Ja, mamma segir að ég hafi byrj-
að að leika mér með bolta áður en
ég byrjaði að ganga svo að ég hef
alltaf verið eitthvað að fikta með
boltann. En mig fór að langa til að
verða handknattleiksmaður þegar
ég keppti í alþjóðlegu móti hér
heima. Ég var þá í fjórða flokki. Ég
fékk verðlaun, var valinn besti
maður mótsins. Ég hélt fyrst að
það væri verið að stríða mér, að
1 4 Æskan