Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 12.04.1901, Qupperneq 1

Æskan - 12.04.1901, Qupperneq 1
IV. ÁRG. Sally og söngkonan. Ensk saga. (Niðurl.) Hún hafði aldrei komið í jafn stórt hús áður og jafnskreytt á allar lnndir. en hún var ekkert að liugsa um það. Hún gekk beint áfram, inn ganginn og upp stigann, ■og það heyrðist ekkert fótatak í örlitiu fót- unum hennar á mjúku gólíábreiðunum. IJegar hiin kom upp úr stiganum urðu fyrir henni opnar dyr. Þarna sá hún nú engilinn. Það var að eins ungur kvennmaður, en þó alls ekki ólík engli, þegar á alt var litið. Hún sat fyrir framan fortepíano og Sally sá í and- lit hennar þegar hún vai' að syngja. And- litið var mjög fagurt, næstum jafn fagurt og röddin, og enn fremur var það bæði blíðlegt og þó djarflegt, og jafnframt sorg- blandið, öldungis eins og röddin. Sally t.ók nú ekki eftir neinu af þessu í þetta sinn; hún hugsaði urn ekkert nema sönginn. Og engilfagra konan sá Sally alls ekki; hún var að eins að hugsa um sönginn, og svo hélt hún áfrarn að syngja hvern sönginn á fætur öðrum. Sally hafði enga hugmynd um það, að kona þessi var framúrskarandi söngkona, ein af allra beztu söngkonunum í Lundun- um, og að röddin hennar gat komið fólki til þess a.ð gráta þúsundum saman. En það mundi hvorki hafa gert til né frá þó ■Sally hefði vitað það. En þá hélt hún dauðahaldi i brauðið, en 12,—13. BL. nú lagði hún það niður við hlið sór á góiflð, og svo stóð hún og hlustaði svo nákværn- lega, að hún hélt niðri í sér andanum og hélt að sér höndum. Þannig leið æði langur tírni — Sally vissi ekki hve langur — að fræga söngkonan söng fyrir litlu tötralegu stúlkuna, en loks var þó eins og hún findi að einhver horfði á sig, og ieit hún þá alt í einu við. — Hún kiptist öll við og rak upp dálítið hljóð, en fór svo að hlæja; enda var pað von, þvi það var skrítið að sjá hana Sally þarna inni í stóru stofunni í rifna kjóinum, með tærnar berar frarn úr sokkunum og með brauðið við hlið sér á gólfinu. Sally fanst þetta samt ekki vera neitt til að hiæja að. Jafnskjótt og söngurinn hætti rankaði hún við sér, og þegar aum- ingja litla telpan sá, að hún var komin inn i þetta ókunna stóra herbergi, sem var svo ólíkt öllu, er hún hafði nokkru sinni séð áður, og að kvennengillinn, sem sai við hljóðfærið, tók að hlæja að henni, varð Sally svo hrædd, að hún fór að hágráta, tók upp brauðið sitt, og bjó sig til að hlaupa í burtu. Söngmærin hætti alt í einu að hlæja, spratt skjótt upp úr sæti sínu og lagði hönd sína á öxlina á Sally litlu. „Yertu ekki að gráta telpan mín góð,“ mælti hún blíðlega. „Ég ætlaði mér ekki að hræða þig. Komdu nú og segðu mér hvernig þú komst hingað og í hvaða er- indum þú varst.“ Sally leit upp feimnislega og þá sá hún ÆSK AN. Eigniurrétt heflr Stór-SMka íplnnds (I. O. G. T.) 12. APRIL, 1901. Ritstjórí: Hj álmar Sigurðsson.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.