Æskan

Árgangur

Æskan - 09.09.1901, Blaðsíða 1

Æskan - 09.09.1901, Blaðsíða 1
IV. ÁRG. Kipnnrr/tt hefir S'6r-StAV:i< I.ImiiU (I O. fí. T.) SEPT. 1901. Jl i t . t J A r I: Hjfilinar Si^urðsBon. 22.-23. Árnesstapi í Trékyllisvík. Mynd og saga úr blaðinu „Hank.“ Drangi sá, sem hér er sýndur, stendui- að norðvestanverðu við TrékyllisvíkáStrönd- um skamt frá prestsetrinu Ár- nesi, og er um hann þjóðsaga þessi. Tröllahjón voru á ferð á Ströndum á næt- urþeli. Komu þau af tröllaþingi ofan úr öræfum. Attu þau heima í Hornbjargi og voru að halda heim til sín. Jöt- uninn var öllu stórstígari en kona hans og þvi dálít- inn kipp"á undan. Fundurinn hafði orðið nokkuð lengi’i en við var búist og þurftu þau hjónin því að flýta sér, svo þau væru komiti heim fyrir dögun, eila var þeim dauðinn vís, því þetta voru nátt- tröll, sem þoldu ekki að vera úti um há- bjartan dag. Tók jötuninn því að greikka sporið. Og er hann kom að Trékyllisvík, steig hann yfir víkina á sama hátt og vér stigum yfir lítinn bæjarlæk. Sér enn fót- spor hans i kletti einum austan vikurinn- ur, því jötuninn ltefir stigið í gegn um klettinn og er kietturinn kallað- ur Sporið enn í dag. Þegar jöt- uninn var kom- inn yfir víkina sneri hann sér við til að gæta að hvernig konu sinni reiddi af. í sama biii ljómaði dagur í augu honum. Brá honum svo við, að hann varð þegar að steini og þar stendur hann enn í dag eins og myndin sýnir, Þykjast menn glögt geta séð alla mannsmynd á dranginum: augu, eyru, nef, herðar o. s. frv., en vöxt hans má ráða af því að bera liann saman við manninn, sem á myndinni er að klifa

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.