Æskan

Volume

Æskan - 09.09.1901, Page 3

Æskan - 09.09.1901, Page 3
87 í hendinni. „Eldastúlkan sagði, að við mætt- um ekki kveikja." „Hver kærir sig um, hvað hún segir? Það þætti mér gaman að vita“, svaraði Hin- rik, og fór að kveikja í hrúgunni. „Eg vil helzt ekki gera það“, sagði Ge- org og gekk nokkur skref burt frá hrúg- unni. „Hvað þá? Viltu helzt ekki gera það, kjáninn þinn?“ „ Já, mamma segir allt af, að við eigurn að hlýða fullorðna fólkinu, og nú sagði eldastúlkan, að vfð mættum ekki kveikja í neinu. Eg vil helzt ekki vera með“, sagðí Georg. „En þú skalt vera með; það segi eg!“ ftskraði Ilinrik, og nú var hann aftur orð- inn rjóður út undir eyru af bræði; því hann vissi vel, að hann hafði rangt fyrir sór, en Georg rótt. „Eg skal sannarlega fá þig til að vera með; það geturðu reitt þig á.“ Georg hristi höfuðið og settist á stein. „Viltu koma hingað?" Veslings Georg var hræddur, og lá við að fara að gráta; en hann sat samt kyr. „Kemurðu nú?“ „Nei“, sagði Georg. „Það er ekki rótt að gera það.“ „Og það þorirðu að segja við mig? Viltu koma strax, þegar óg segi, að þú eigir að gera það.“ Hinrik hafði nú tekið upp stein og stóð með hann i hendinni. Georg stóð upp og lagði af stað heim- leiðis; hann þorði ekki að vera einsamall með bróður sínum lengur. „Vertu kyr!“ öskraði Hinrik á eftir hon- um. „Þú fær ekki að fara inn til mömmu •og segja frá. Ileyrirðu það! Viltu verakyr?" Georg staðnæmdist; hann var orðinn ná- fölur en grót þó ekki. „Viltu koma?“ Georg hristi höfuðið. í sama bili fékk hann högg í andlitið, svo hann féll til jarðar og lá þar með háhljóðum. Nú var Hinrik runnin reiðin. Hann hafði kastað steininum, án þess að hugsa um, hvað hann gerði eða hverjar afleiðingarn- ar gætu orðið. Nú stóð hann yfir bróður sínum eins fölur og Georg hafði áður verið, og grót og kveinaði. „Æ, eg meinti ekkert ílt með því. Eg gerði það óviljandi.“ Eldastúlkan hafði heyrt hljóðin og kom nú til að sjá, hvað um væri að vera. Hún tók Gerg upp og sá þá, að andlit hans lagaði allt í blóði. Hinrik rak upp angist- aróp; en stúlkan tók Georg og bar hann inn í húsið. Þar kom móðirin á móti þeim; hún hafði heyrt, að Georg var að hljóða, og þegar hún sá, hvernig hann var til reika, varð hún náföl. Hinrik stóð við hlið henn- ar og grét sáran; en nú tók enginn eftir honum; allir hugsuðu um Georg. Stúlkan bar Georg inn í stofuna og hjálp- aði móður hans til að búa um hann í legu- bekknum. Móðir hans spurði hann, hvern- ig honum liði, en hann svaraði að eins: „Æ, mér er svo ílt. Talaðu ekki við mig.“ Móðir hans sendi strax eftir lækninum. Síðan settist hún fyrir framan Georg, sem iá í legubekknum og stundi af sársauka. Hinrik var líka í stofunni en hann hafði íalið sig úti í horni, þar sem enginn sá hann. Hann var hættur að gráta; en hann var svo hræddur og óskaði að eins, að læknirinn kæmí sem fyrst. Loksins opnuðust dyrnar og einhver kom

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.