Æskan

Árgangur

Æskan - 30.10.1901, Blaðsíða 6

Æskan - 30.10.1901, Blaðsíða 6
4 ir aðra eik. Er það þór satt að segja, að ekki var þá óttalaust að sofa. En að miðri nótt þá heyrir Þór, að Skrýmir hrýtur og sefur fast, svo að dunar í skóginum. Þá stendur hann upp og gengur til hans, reiðir hamarinn títt og hart og lýstur ofan i miðjan hvirfil honum; hann kennir, að hamars muðurinn sekkur djúpt í höfuðið. En í því bili vaknar Skrýmir og mælti: „hvað er nú? féll akarn nokkuð í höfuð mér? eða hvað er títt um þig, Þór?" En Þór gekk aftur skyndilega og svarar, að hann var þá nývaknaður, sagði, að þá var mið nótt-, og enn væri mál að sofa. Þá hugsaði Þór það, ef hann kæmi svo í færi að slá hann hið þriðja högg, að aldrei skyldi hann sjá sig siðan; liggur nú og gætir, ef Skrýmir sofnaði fast. En litlu fyrir dögun þá heyrir hann, að Skrýmir mun sofnað hafa, stendur þá upp og hleyp- ur að honum, reiðir þá hamarinn af öllu afli og lýstur á þunnvangann þann, er upp vissi; sekkur þá hamarinn upp að skaptinu. En Skrýmir settist upp og strauk um vang- ann og mælti: „hvort munu fuglar nokkr- ir sitja í trénu yfir mór? mig grunaði, er ég vaknaði, að tros nokkuð af kvistunum félli í höfuð mér; hvort vakir þú, Þór? Mál mun vera upp að standa og klæðast, en ekki eigið þér nú langa leið fram til borgarinnar, er köiiuð er Útgarðui'. Heyrt hefi ég, að þér hafið kvisað í milli yðar, að ég væri ekki litill maður vexti, en sjá skulu þór þar stærri menn, er þér komið í Útgarð. Nú mun ég ráða yður heilræði: látið þér eigi stórlega yíir yður, ekki munu hirðmenn Útgarðaloka vel þola þvílíkum kögursveinum köpuryrði; en að öðrum kosti hverfið aftur, og þann ætla ég yður betra af að taka. En ef þér viljið fram fara, þá stefnið þér i austur, en ég á nú norður leið til fjalla þessa, er nú munu þér sjá mega.“ Tekur Skrýmir nestisbagg- ann og kastar á bak sér og snýr þvers á braut í skóginn frá þeim, og er þess eigi getið, að æsirnir bæði þá heila hittast. Þór fór fram á leið og þeir félagar, og gekk fram til miðs dags; þá sjá þeir borg standa á völlum nokkruni og settu hnakk- ann á bak sér aptur, áður þeir feiigu séð yfir upp; ganga til borgarinnar, og var grind fyrir borgarhliðinu og lokuð aptur. Þór gekk á grindina og fékk eigi upp lokið; en er þeir þreyttu að komast í borgina, þá smugu þeir milli spalanna og komu svo inn; sjá þá höll mikla og gengu þangað; var hurðin opin; þá gengu þeir itm og sáu þar marga menn á tvo bekki og ílesta ærið stóra. Því næst koma þeir fyrir kon- unginn, Útgarðaloka, og kvöddu hann, en hann leit seint til þeirra og glotti um tönn og mælti: „seint er um langan veg að spyrja tiðinda, eða er annan veg, en óg hygg, að þessi sveinstauli sé Ökuþór? on meiri muntu vera, en mér lízt þú; eða hvað íþrótta er það, er þér félagar þykist vera við búnir? Engin skal hór vera með oss, sá er eigi kunni nokkurs konar list eða kunnandi um fram flesta menn.“ Þá segir sá, er siðast gekk, er Loki heitir: „kann eg þá íþrótt, er ég em albúinn að reyna, að enginn er hér sá inni, er skjót- ara skal eta mat sinn en ég. “ Þá svarar Útgarðaloki: „íþrótt er það, ef þú efnir, og freista skal þá þessar íþróttar;“ kallaði utar á bekkinn, að sá, er Logi heitir, skal ganga á gólf fram og freista sín í móti Loka. Þá var tekið trog eitt og bor-

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.