Æskan

Árgangur

Æskan - 30.08.1902, Síða 5

Æskan - 30.08.1902, Síða 5
ÆSKAN. 89 eigin líkama móti fallbyssukúlunum, sem enn þá þutu út úr skotvirkjum óvinanna. Gekk hann fram moð her Frakka, þangað sem móðir barnsins stóð, án þess að skeyta um byssustingi óvinanna, er stefndu á hann. „Skjótið ekki, félagar! skjótið ekki!“ kallaði gamall frakkneskur hermaður upp, veðurbarinn í andliti og svartur í framan af púðri og reyk. „Því þó hann væri tutt- ugu sinnum enskari en haun er, þá er hann samt eins góður og engill af himn- um sendur“. í sama bili heyrðust óp enska hersins, sem tók upp úr fallbyssudununum; voru það fagnaðaróp til ungu hetjunnar, sem kominn var yfir hættulega millibilið á víg- vellinum, alheill og með barnið óskaddað í fangi sér. Og naumast var þetta fagnað- aróp á enda, þegar Frakkaher svaraði með svo miklu fagnaðarópi, að slétturnar dundu undir. Var þá Charles lávarður kominn þangað sem móðirin var, frá sér af örvænt- ingu, lagði hann barnið hoilt á húfi í fang hennar, grúfði sig niður að því og kysti það á báðar kinnarnar. Hann var að snúa aftur til hersveitar sinnar, en tíguiegur gamall frakkneskur hershöfðingi, gráskeggjaður, og með brjóst- ið alt þakið af orðum og heiðursmerkjum gekk þá í veg fyrir hann og rétti honum höndina; „Herra minn!“ mælti hann og hneigði sig um leið mjög hæversklega. „Má eg hafa þá ánægju og þann heiður, að taka í hendina á þeim hugaðasta manni, sem eg hefi séð“. Bardaginn hélt áfram og Frakkar hörf- uðu undan. Tæpri stundu síðar lá Ohar'- les lávarður særður á vígvellinum. Ein af fyrstu kúlunum, sem óvinirnir höfðu sent„ hitti hann og fleygði honum til jarðar. Sárið var hættulegt og hann leið miklar þjáningar, en iifði þó lengi á eftir og vai ð' einn auðugasti maður á Englandi, og viit- ur og eiskaður framar flestum öðrum. En kæmist í tal, hvernig hann bjargaði barn- inu, sagði hann jafnan, að það hefði verið sæluríkasti dagurinn á aliri æfi sinni. Föðurlandsást. _______ (Framh.) Kona Hopfers hafði ekki svarað hermann- inum einu orði; hún stóð grafkyr og starði fram undan sér iíkt og hún heyrði hvorki né sæi neitt. Drengurinn hennar, hann Frank, var særðui-, og ef til vill dáinn, og þó var sagt við hana: „Farðu aldrei þangað, það er árangurslaust“. Var hún þá ekki móðir hans? Hún vildi sjá hann, hún vildi fara þegar af stað, á sama augabragði. En aumingja konan hafði gleymt því, hve magnþrota hún var. Hún riðaði og hefði dottið, hefði Timide ekki komið og stutt hana í rúmið. Þetta var voðaleg nótt. Móðirin lá með ólgusóttaróráði, unz hún sofnaði ör- magna undir dögun. Timide vakti. Hún var brennandi heit áhöíðinu, starði út í myrkr- ið, og var stöðugt að hafa yfir síðustu kveðju Franks, som hermaðurinn hafði flutt þeim mæðgunum. Hver gat þessi dýrmæti gripur verið,. sem bróðir hennar geymdi á sér? Það voru engar líkur til, að þær fengi nokkru sinni að líta það, því móðir hennar var ekki fær um að komast til bæjarins. Frank hlaut því að deyja án þess að geta afhent nokkr-

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.